Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 66
Í dag verður opnuð á Kjarvalsstöð-
um útskriftarsýning Listaháskóla
Íslands. Þar sýna nærri sjötíu
nemendur skólans verk sín og eru
þeir bæði úr myndlistardeild og
hönnunar- og arkitektúrdeild.
Á sýningunni úir og grúir af
fjölskrúðugum verkum úr smiðju
nemenda skólans. Þar á meðal er
ljósakróna án rafmagns, málverk
með hljóði, nýjar harðfiskumbúð-
ir, draugur í diktafóni, þungarokk
frá Mugison, bangsar sem lækna
heimþrá og myrkfælni, almenn-
ingsbókasafn og heilsugæslustöð
á Landakotstúni, sjálfsmyndir,
fatahönnun, manngerð fuglshljóð,
bókverk, stólar, byggðarmerki
fyrir hverfi í Reykjavík, mosa-
sæng og listaverk úr sykri, osti og
vaxi.
Í austursal Kjarvalsstaða má
til dæmis sjá torkennilegar beina-
grindur á gólfinu.
„Ég er bara að leika mér með
manna- og dýrabein, setja saman
einhvers konar skrímsli og gefa
fólki kost á að virkja ímyndunar-
aflið,“ segir Harpa Rún Ólafsdótt-
ir, höfundur þessa verks. Hún er
einn af 26 myndlistarnemum sem
eiga verk á sýningunni.
Til sérstakra tíðinda telst að á
meðal þeirra sem eiga verk á sýn-
ingunni eru sjö nemendur í arki-
tektúr, sem eru að útskrifast nú í
vor. Þetta er í fyrsta sinn sem hér
á landi eru útskrifaðir nemendur
með prófgráðu í arkitektúr.
„Þetta var búið að blunda lengi
í manni,“ segir Þóra Kjarval, einn
af arkitektúrnemendunum. Þegar
svo tækifærið opnaðist og boðið
var upp á arkitektúrnám hér á
landi sló hún til og nú, þremur
árum síðar, er hún að útskrifast
með BA-gráðu.
Hún og stallsystur hennar
segja mikilvægt að geta lært
byggingarlist hér á landi.
„Kosturinn er sá að við kynn-
umst bransanum hér á landi,“
segja þær, en bæta við að það sé
ekki síður mikilvægt að geta tekið
hluta af náminu erlendis.
Enn sem komið er þurfa nem-
endur að halda út fyrir landstein-
ana til þess að sækja sér meist-
aranám í arkitektúr.
50 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
... sýningu Daða Guðbjörns-
sonar í Grafíksafni Íslands, sem
er til húsa í Hafnarhúsinu í
Reykjavík. Gengið er inn hafnar-
megin. Sýningunni lýkur um helg-
ina.
... sýningu Birtu Guðjónsdótt-
ur í galleríinu Suðsuðvestur í
Reykjanesbæ. Þetta er síðasta
sýningarhelgin.
... sýningum á leikritinu Svik
eftir Harold Pinter í Borgarleik-
húsinu.
Elísabet Jökuls-
dóttir tekur á móti
gestum á Tilfinn-
ingatorginu, sem
verður haldið á
Hressó í dag milli
klukkan 14 og 17. Ef
veður leyfir verður það
haldið í garðinum
og þá verður hægt
að bera tilfinn-
ingar á torg
undir berum
himni.
Að þessu
sinni verða
óvenjuleg-
ar uppá-
komur á Tilfinningatorginu, því að nýrri sýn og
nýjum skilningi verður brugðið á tilfinningar í
fyrirlestri Sigurðar Bárðarsonar avatarmeistara,
sem talar um það hvernig við sköpum tilfinn-
ingar okkar og hvernig viðhorf okkar eru upp-
spretta tilfinninga.
Einnig ætlar Steinunn Helgadóttir myndlistar-
maður að selja tilfinningar, og verða allar til-
finningar til sölu. Steinunn býður meðal ann-
ars upp á hreinar tilfinningar, en þær eru dýr-
ari en aðrar tilfinningar og seldar sér. Fólk er
hvatt til að mæta, til að tala og hlusta, stutt
eða lengi, í gamni eða alvöru, og gæða sér á
ljúffengum veitingum á Hressó og upplifa vor-
stemmninguna í miðbænum. Þennan dag er
langur laugardagur, þá getur verið upplagt að
versla og bera svo á torgið allar þær tilfinning-
ar sem fylgja því.
Kl. 14.00
Málþing um franska heimspekinginn
Jean Paul Sartre, einn helsta frumkvöðul
tilvistarstefnunnar, verður haldið í Deigl-
unni á Akureyri. Sartre hefði orðið hund-
rað ára þann 21. júní næstkomandi.
Frummælendur á málþinginu verða Páll
Skúlason, Ragnar Hólm, Sigríður Þor-
geirsdóttir og Vilhjálmur Árnason.
menning@frettabladid.is
Fjölskrúðug útskriftarsýning
!
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
- Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Í kvöld 7/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20
- Síðustu sýningar
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Í dag kl 14 - UPPS.
Su 8/5 kl 14 - Lau 14/5 kl 14 - UPPS.
Su 22/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 4/6 kl 14
Su 5/6 kl 14, Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14
PURPURI - TÓNLEIKAR FABULU
Margrét Kristín Sigurðardóttir
Fi 12/5 kl. 21:00
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Fi 12/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20, Su 8/5 kl 20 - UPPS.
Fi 12/5 kl 20 - UPPS., Fö 13/5 kl 20 - UPPS.,
Lau 14/5 kl 20 - UPPS. Fi 19/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fi 12/5 kl 20 - Aukasýning
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Í kvöld kl 20, Fö 13/5 kl 20, Lau 14/5 kl 20
- Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Tenórinn
ALLRA SÍÐASTA
SÝNING
Laugardaginn
7. maí kl. 20.00
Tilfinningar til sölu
■ SÝNINGAROPNUN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
ÚTSKRIFAST ÚR ARKITEKTÚR Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Anna Sóley Þorsteinsdóttir,
Ragnhildur Kristjánsdóttir og Þóra Kjarval.
HARPA RÚN ÓLAFSDÓTTIR Leikur sér að beinum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R