Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 70

Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 70
Kvikmyndahátíðin IIFF 2005 stóð yfir í tæpan mánuð og sló svo sannarlega í gegn. Yfir þrjátíu þúsund gestir mættu á sextíu og fimm myndir og þeir hafa nú skil- að áliti sínu á hvaða mynd var best. Það var kvikmyndin Hótel Rúanda sem fékk flest atkvæði en myndin lýsir þjóðarmorðunum í Rúanda á einstakan hátt. Leik- stjóri myndarinnar, Terry George, fær því styttu hátíðarinn- ar, Jökul, senda til sín en það er lítill feitur, nakinn og frekar feim- inn karl. Það voru Mótorhjóladag- bækurnar sem lentu í öðru sæti og þýska myndin Fallið í þriðja en hægt var að kjósa á netinu eða skila atkvæðaseðlum sem lágu frammi í kvikmyndahúsunum. Anna Marín Schram, verkefn- isstjóri hjá IIFF, sagði aðsóknina á hátíðina hafa farið fram úr björt- ustu vonum. „Þetta var vissulega tilgangurinn, að fá fólk í bíó, en við bjuggumst ekki við þessum viðbrögðum.“ Fallið var vin- sælasta myndin á hátíðinni og Mótorhjóladagbækurnar næstvin- sælastar. Anna Marín segir viðburði eins og Spurt og svarað hafa mælst vel fyrir. „Þetta var alveg pottþétt. Það var reyndar erfitt að fá fólk af stað en þegar það komst í gang var erfitt að stoppa það,“ segir hún. Kvikmyndahátíðin vakti einnig töluverða athygli fyrir að sýna myndir sem kannski aðrir höfðu ekki hugrekki til þess að sýna. „Við ætlum að halda áfram að sýna góðar myndir og taka áhættu,“ segir Anna Marín og reiknar með því að undirbúningur fyrir næstu hátíð fari í gang eftir kvikmyndahátíðina í Cannes. freyrgigja@frettabladid.is 54 7. maí 2005 LAUGARDAGUR ■ TÓNLIST ■ TÓNLIST H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 OPNUM Í DAG LAUGARDAG 7. MAÍ 14 - 18 PH . A TL I M Á R Söngkonan Selma Björnsdóttir hefur skrifað undir samstarfs- samning við Landsbankann sem felur í sér að bankinn styrkir hana til þátttöku í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva. Með samningnum fær Selma aukið fjárhagslegt svigrúm til að helga sig þátttöku í þessari mikil- vægu keppni. Nú standa yfir miklar æfingar og undirbúningur sem ná hámarki þegar staðið verður á sviðinu í Kænugarði fyrir framan hundruð milljóna áhorfenda. „Við bankastjórarnir vitum, eins og þjóðin öll, að Selma vill leggja sig 120% fram í þetta og gerir miklar kröfur til sín og ann- arra um miklar æfingar og undir- búning, sem felur í sér ákveðið tekjutap því menn eru ekki í annarri vinnu á meðan,“ segir Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér. Selma mun í tilefni af þessu taka þátt í auglýsingum fyrir Landsbankann. „Þetta kemur sér vel. Þetta er kærkominn bónus,“ segir Selma. „Auðvitað styður RÚV dyggilega við bakið á okkur en þetta gefur okkur meira svigrúm. Það hefur öllu verið tjaldað til við undirbún- inginn, dýrir búningar keyptir og dansarar sem eru búnir að vinna stöðugt í tvo mánuði, þannig að þetta er alveg frábært.“ Selma segir að upphæð samn- ingsins sé trúnaðarmál, rétt eins og útlit búningsins sem hún mun klæðast í Kænugarði. „Hann er al- gjört leyndarmál og það kemur bara í ljós 19. maí. Við fórum til London og keyptum efni í hann og ég er mjög sátt við hann. Hún Hildur Hafstein er algjör snilling- ur,“ segir hún. Þungarokkhljómsveitin Nevo- lution frá Akureyri mun hita upp fyrir rokkarana í Iron Maiden á tónleikum þeirra í Egilshöll sjö- unda júní. Nevolution hefur verið starf- andi síðan í lok árs 2003. Meðlimir hennar eru gítarleikararnir Ágúst Örn Pálsson og Gunnar Sigurður Valdimarsson, Heiðar Brynjars- son á trommur og Heimir Ólafur Hjartarson, söngvari og bassa- leikari. Þegar strákarnir fréttu af því að leit stæði yfir að upphitunarhljóm- sveit fyrir Iron Maiden ákváðu þeir að senda inn kynningarplötu sína The Jumpstop Theory til tón- leikahaldaranna. Nú, nokkrum mánuðum síðar, er Nevolution á leiðinni í Egilshöllina þar sem þús- undir manna munu hlýða á hana. „Þetta er gríðarlega spennandi og mikið stökk fyrir okkur,“ segir Ágúst Örn. „Við höfum á góðum dögum verið að spila fyrir 200 manns þannig að þetta er góð breyting, ég vona það.“ Eins og hjá flestum þungarokk- urum hefur Iron Maiden verið í uppáhaldi hjá liðsmönnum Nevo- lution. Ágúst á þó erfitt með að nefna sérstaka áhrifavalda í dag, en sænsku sveitirnar In Flames og Meshuggah eru samt ofarlega á listanum. „Við vorum í bandi sem spilaði sænskt þungarokk, sem er melódískt deathmetal, en ákváðum að hætta og fara bæði í meira þungarokk og fallegri músík,“ segir hann. Næst á dag- skrá hjá liðsmönnum Nevolution er að æfa eins og vitleysingar fyrir tónleikana í Egilshöll og taka síðan upp ný lög fyrir fyrstu stóru plötu sveitarinnar. „Við höfum verið sveittir að semja og ætlum að taka upp efni á plötu í haust, en við erum svo heppnir að vera nokkuð klárir í þessum upp- tökupælingum. Síðan kemur í ljós hver gefur plötuna út, eða hvort við göngum í það mál sjálfir,“ segir hann. Nevolution hefur lítið spilað í Reykjavík en kom þó fram á Iceland Airwaves síðasta haust. Einnig spilaði hún á tvennum tón- leikum kanadísku hljómsveitar- innar Into Eternity í október í fyrra. Uppselt er í A-svæði á tónleik- ana í Egilshöll en sala er í fullum gangi á B-svæði. Upplýsingar um sölustaði er að finna á www.rr.is. freyr@frettabladid.is Grí›arlega spennandi NEVOLUTION Heimir Ólafur Hjartarson, söngvari og bassaleikari Nevolution, þenur raddböndin á tónleikum. Sveitin spilar í Egilshöllinni 7. júní. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /Á SA Ó LA FS D Ó TT IR Selma helgar sig Eurovision SAMNINGURINN Í HÖFN Selma Björnsdóttir ásamt Halldóri J. Kristjánssyni og Sigur- jóni Þ. Árnasyni, bankastjórum Landsbankans, eftir undirritun samningsins. Hótel Rúanda: Valin besta myndin á IIFF 2005 Leikstjórinn fær Jökul sendan til sín ANNA MARÍN SCHRAM Segir viðtök- urnar við há- tíðinni hafa farið fram úr björtustu von- um. VINSÆLUSTU MYNDIRNAR 1) Der Untergang (Fallið) 2) Diarios de motocicleta (Mótorhjóla- dagbækurnar) 3) La Mala educacion ( Slæm menntun) BESTU MYNDIRNAR 1) Hótel Rúanda 2) Diarios de motocicleta (Mótorhjóla- dagbækurnar) 3) Der Untergang (Fallið) HÓTEL RÚANDA Myndin um þjóðar- morðin í Rúanda snart kvikmyndahúsa- gesti mest og var hún valin besta myndin á hátíðinni. FALLIÐ Kvikmyndin um síðustu daga Adolfs Hitler var vinsælasta myndin á IIFF 2005 kvikmyndahátíðinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.