Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 78
62 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Ólafur Ragnar Grímsson, forsetiÍslands, hefur loks tekið heima-
síðuna www.forseti.is í notkun en
síðan hefur verið í vinnslu álíka
lengi og Ólafur hefur
haft aðsetur á Bessa-
stöðum. Langur og fjöl-
breyttur starfsferill for-
setans áður en hann
settist á friðarstólinn
á Bessastöðum er
rakinn á síðunni og
þar er þess meðal
annars getið að
hann „starfaði sem ritstjóri Þjóðvilj-
ans 1983-1985“. Vefþjóðviljinn
bendir á að þetta samræmist ekki
málflutningi Ólafs Ragnars í kosn-
ingabaráttunnni 1996, þar sem
hann sór af sér ritstjórastarfið. Vef-
þjóðviljinn vitnar í greinargerð sem
kosningamiðstöð Ólafs Ragnars
sendi frá sér að loknum kosningum
en þar segir: „Hann var aldrei skráð-
ur ritstjóri og gegndi ekki ritstjórnar-
legri ábyrgð, en hins vegar vann
hann á og með ritstjórn blaðsins á
þessu tímabili og skrifaði meðal
annars forystugreinar í blaðið ásamt
öðrum.“ Þetta hefur hér með verið
leiðrétt á heimasíðu forsetans, sem
var í raun og veru ritstjóri Þjóðvilj-
ans á árunum 1983-1985.
Nýja Blaðið í ritstjórn Karls Garð-arssonar kom fyrir sjónir les-
enda í fyrsta sinn í gær. Það er altal-
að að fæstir sem starfi á rit-
stjórn Blaðsins hafi mikla
reynslu af blaðamennsku
og ungt fólk sé þar í meiri-
hluta. Fæstar fréttir og
greinar í blaðinu eru
merktar með nafni en
þó munu gamlir
reynsluboltar leynast
inni á milli og nægir þar að nefna
hægrisinnaða álitsgjafann Andrés
Magnússon, sem hefur komið víða
við í blaðamennsku í gegnum tíð-
ina. Þá er einn skeleggasti bók-
menntagagnrýnandi Íslandssögunn-
ar, Kolbrún Bergþórsdóttir, einnig
komin á Blaðið en síðast hefur
heyrst til hennar á Útvarpi Sögu. Þá
er Karl Th. Birgisson, nýhættur
framkvæmdastjóri Samfylkingarinn-
ar, einnig mættur til leiks hokinn af
reynslu en hann ritstýrði meðal ann-
ars Pressunni sálugu fyrir margt
löngu. Karl Garðarsson mun ekki
ætla að staldra lengi við en fylgja
blaðinu að minnsta kosti fyrstu
metrana.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Lárétt: 1 æfa, 6 hátíð, 7 tvíhljóði, 8
hræðast, 9 vexti, 10 sjáðu til, 12 hagnað,
14 ambátt, 15 stafur, 16 samtenging, 17
sönghópur, 18 áreynsla.
Lóðrétt: 1 tap, 2 kyrra, 3 á fæti, 4 land
í afríku, 5 tóm, 9 hagnað, 11 vísa, 13
vindur, 14 mikill fjöldi, 17 skáld.
Lausn
Lárétt: 1trimma,6jól,7au,8óa,9arð,
10sko,12akk,14man,15ká,16og,17
kór, 18raun.
Lóðrétt: 1tjón,2róa,3il,4marokkó,5
auð,9akk,11baga,13kári,14mor, 17
kn.
Fimm frískir karlar gáfu sig
fram við Vesturportshópinn eft-
ir ákaft ákall um loðinn stað-
gengil leikarans Gísla Arnar
Garðarssonar í kvikmyndina
Kvikyndi í leikstjórn Ragnars
Bragasonar. Voru skilyrði sett að
mögulegir staðgenglar væru vel
loðnir af skeggi og hári, þá bæði
á haus, bringu og maga, og að-
eins mjúkir um maga og lendar.
Prufur fóru fram í gærkvöld
með staðgenglunum fimm, en
þegar blaðið fór í prentun var
ekki enn komið í ljós hvort ein-
hver gat fyllt skarð Gísla Arnar,
né hvort einhver fimmmenning-
anna hefði verið ráðinn í mynd-
ina.
Kvikyndi er tragísk og raun-
sæ úthverfamynd með fjöl-
breyttu persónugalleríi og
skelfilegum söguþræði. Ástæða
ákallsins til þjóðarinnar að líta
eftir staðgenglum kom vegna
óvæntra kvikmyndatakna sem
þurftu að gerast í dag, en mynd-
in verður frumsýnd á vetri
komanda. ■
Fimm tvífarar Gísla Arnar
LOÐNIR STAÐGENGLAR Þessir hugrökku menn og mögulega tilvonandi kvikmyndaleik-
arar höfðu samband við Vesturport þegar kallað var eftir staðgengli leikarans Gísla Arnar
Garðarssonar. Hér eru þeir í prufutökum í gærkvöld.
Þau verða ekki fleiri laugardags-
kvöldin með Gísla Marteini en
síðasti þáttur kappans er sýndur
í kvöld. „Við ákváðum að enda
þetta eins og við byrjuðum,“
segir Gísli og á við að í þættinum
í kvöld verða sömu gestir og
sátu og spjölluðu við hann í
fyrsta þættinum. Þetta eru þau
Guðni Ágústsson, Birgitta Hauk-
dal og Örn Árnason. „Þau voru
öll að gera eitthvað stórmerki-
legt þegar fyrsti þátturinn var
sýndur og eru ennþá að gera
eitthvað stórmerkilegt. Birgitta
og Írafár frumflytja lag í þætt-
inum en hljómsveitin er að fara
af stað á ný. Örn og félagar voru
að semja um einn vetur í viðbót
en þegar Örn kom fyrir tveimur
árum var Spaugstofan að byrja
aftur eftir lang hlé.“
Að sögn Gísla hættir þáttur-
inn ekki með látum og upprifjun-
um á bestu þáttunum eins og er
svo vinsælt heldur mun þáttur-
inn hverfa á lágstemmdum nót-
um. „Við erum búin að vera út
um allt og að gera mikið af
óvenjulegum hlutum í síðustu
þáttum. Við vildum því enda á
frekar látlausum nótum en það
hefur alltaf verið aðalsmerki
þáttarins.“
Þættirnir eru nú orðnir rúm-
lega hundrað talsins og Gísli
hættir því sáttur. „Ég held að
það sé varla til íslenskur
skemmtiþáttur sem hefur geng-
ið lengur. Þættinum var miklu
betur tekið en við þorðum að
vona og um helmingur þjóðar-
innar hefur horft á hvern þátt.
Áhorfið fór upp í sextíu prósent
þegar mest var og ég er hæst-
ánægður.“
Ástæðan fyrir því að þáttur-
inn verður ekki aftur á dagskrá
Sjónvarpsins í haust er sú að
hugur Gísla virðist reika annað.
Hann er á leið í prófkjör með
Sjálfstæðisflokknum og getur
því ekki haldið áfram að spjalla
við mæta menn í sjónvarpssal.
Ekki vill hann þó viðurkenna að
hann sækist sérstaklega eftir
borgarstjórastólnum. „Það er
ekkert komið í ljós ennþá en ég
verð með í prófkjörinu. Pólitík á
núna allt mitt hjarta og næsti
vetur verður undirlagður af
stjórnmálum. Við sjáum svo
bara hvert það leiði mig,“ segir
hann og útilokar ekki að hann
eigi eftir að birtast aftur á sjón-
varpsskjánum. „Ég býst alveg
eins við því að ég verði einhvern
tíma aftur í sjónvarpi, það er
skemmtileg vinna.“
hilda@frettabladid.is
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON Þessi þjóðkunni sjónvarpsmaður snýr sér nú að
stjórnmálum og mun ekki birtast aftur á skjánum í haust. Hann kveður þó sæll og glaður
og sáttur við þættina sem urðu rúmlega hundrað talsins.
SJÓNVARPIÐ: LAUGARDAGSKVÖLD MEÐ GÍSLA MARTEINI
Kveður á rólegum nótum
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hárspangir. Þær voru heitari en allt heitt á sjöunda ára-tugnum þegar stelpurnar túperuðu hárið og skelltu
svo breiðri spöng ofan á allt saman. Þær eru á leiðinni
inn aftur og eru skemmtileg viðbót í hárskrautið. Einnig er
pínulítill nostalgíu-fílingur í þeim sem er alltaf gott.
Bleikur varalitur. Það er skemmtilegt aðkrydda látlausan fatnað með smá áber-
andi varalit. Bleikur varalitur er mjög heitur í sumar en var-
ast ber að ofgera ekki málningunni. Ef varirnar eru áber-
andi þá eiga augun ekki að vera það og öfugt. Náttúruleg
og látlaus augnförðun við fallegan bleikan varalit gerir rosa-
lega mikið.
Ray Ban. Þetta eru sólgleraugun sem kennderu við flugmennina. Þetta eru sólgleraug-
un sem fara aldrei úr tísku. Alvöru Ray Ban-sól-
gleraugu eru frekar dýr en þar sem þau eru
klassískari en allt þá eru þau hin fínasta fjár-
festing. Það eru líka til hinar fínustu eftirlíking-
ar sem eru alveg jafn góðar.
Brjóstahaldarar með stórum púðum. Wonder-bra-byltingin er gengin yfir og úr hófi-bólstrað-
ir brjóstahaldarar eru ekki lengur mál málanna.
Það er líka hálfkjánalegt að ganga tvisvar sinnum
barmminni út úr sundklefanum en þegar gengið
var inn í hann í brjóstahaldaranum. Hver vill líka
ganga með einhverja púða.
Dökk föt. Nei, þetta er ekki málið. Það er kominnmaí, bráðum kemur júní. Það er sumar og við ætt-
um að líta út eins og það sé sumar. Sumarið gerir fólk
glaðara en venjulega. Skærir litir og falleg munstur,
það er málið. Jarðarfararklæðnaður er bara fyrir jarðar-
farir. Hver vill ganga um eins og Svarthöfði í Star Wars?
Innipúkar. Þrátt fyrir að vera inni þá eru innipúkar samtúti, semsagt ekki sniðugir. Ekki núna! Farið út og gangið á
fjöll, siglið um höfin og baðið ykkur í sumrinu. Reynið líka
að muna eftir tilfinningunni að vera barn á sumrin. Stelist til
að róla eða henda frisbí ykkar á milli, jú líka þið fullorðnu!
Og afhverju að labba þegar hægt er að valhoppa?!
INNI ÚTI
...fá stelpurnar í Nylon, sem hafa
þraukað saman í gegnum súrt og
sætt í eitt ár.
HRÓSIÐ
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf