Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2005, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 11.05.2005, Qupperneq 18
Tölvukerfi sem læra af reynsl- unni, bregðast við ófyrirséðum uppákomum og taka sjálfstæðar ákvarðanir eru hluti af því sem nýstofnað Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík vinnur að. Yngvi Björnsson og Kristinn R. Þórisson, forstöðumenn set- ursins, eru báðir doktorsmennt- aðir í gervigreind. Þeir hafa síð- astliðið ár unnið að rannsóknum á þessu sviði fyrir HR en um- fangið var orðið svo mikið að þeim fannst tími til kominn að stofna formlegt setur, sem var gert nú í apríl. „Heimurinn er orðinn mjög tæknilega flókinn,“ segir Yngvi, sem segir stofnun setursins vera einn lið í því að stuðla að þróun hátækniiðnaðar hér á landi. Ætlunin sé að tengja starf stofnunarinnar við atvinnulífið en einnig verði unnin rannsókn- arvinna í samstarfi við háskóla í Norður-Ameríku og Evrópu. Kristinn telur stofnunina hafa töluverða þýðingu í alþjóð- legu samhengi. Breidd í námi aukist, sem geri Ísland sam- keppnishæfara. „Með stofnun- inni gefst okkur möguleiki á að hafa áhrif á sviðið sem er mikill munur frá því að fylgja öðrum eftir,“ segir Kristinn sem finnst mjög spennandi að fá að móta nýtt svið sem á eftir að hafa mikil áhrif eftir nokkur ár. Sú mynd sem Hollywood hefur gefið okkur af gervi- greind er af ofurgreindum vél- mennum í leit að heimsyfirráð- um. Yngvi telur töluvert í að sú mynd verði að raunveruleika. Í dag nýtist tæknin í iðnaði, við- skiptalífi og víðar, til dæmis í stýrikerfum heimilistækja og í kerfum sem spái fyrir um þróun á fjármálamarkaði. „Hugbúnað- urinn lærir á þig í stað þess að þú lærir á hann,“ segir Yngvi og nefnir sem dæmi gervihnéð sem Össur hefur nýlega fengið al- þjóðleg verðlaun fyrir. Gervigreindin hefur einnig verið notuð í tölvuleikjum. Þar eru búnar til sýndararverur gæddar mannlegum eiginleik- um bæði til skemmtunar og rannsókna. Yngvi segir leikina hentuga þar sem þeir skapi rannsóknarstofuumhverfi þar sem tölvunarfræðingar geti stýrt umhverfinu eins og eðlis- fræðingar á rannsóknarstofu. solveig@frettabladid.is 18 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR BOB MARLEY (1945-1981) lést þennan dag. Hugsandi hugbúnaður TÍMAMÓT: GERVIGREINDARSETUR HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK STOFNAÐ „Ég stend ekki einungis fyrir svarta mann- inn, ég stend ekki heldur bara fyrir hvíta manninn. Ég stend fyrir mátt Gu›s.“ Bob Marley, fæddur í St. Ann á Jamaíka, var gífurlega áhrifamikill tónlistar- maður. Hann hefur með tímanum orðið táknmynd sameiningar kynþátta og alþjóðlegrar menningar, í gegnum undurfagra tónlist sína. timamot@frettabladid.is FÆDDUST fiENNAN DAG 1872 Einar Jónsson mynd- höggvari . 1888 Irving Berlin tón- skáld. 1904 Salvador Dali list- málari. 1932 Garavani Valentino tískuhönnuður. Á þessum degi árið 1987 voru þýska stríðsglæpamanninum Klaus Barbie birtar 177 kærur í Lyon fyrir stórfellda glæpi gegn mannkyni. Barbie, sem kallaður hefur verið slátrarinn í Lyon, var einn yfirmanna Gestapó-sveitar nasista í seinni heimsstyrjöld- inni og sagður ábyrgur fyrir flutningi meira en 7.500 franskra gyðinga og uppreisnar- seggja í útrýmingarbúðir. Barbie starfaði í áratugi fyrir bandarísk yfirvöld sem leyni- þjónustumaður og var á end- anum fluttur til Suður-Ameríku, þar sem hann settist að í Bólívíu og varð kaupsýslumað- ur. Barbie hélt áfram leyniþjón- ustustörfum sínum fyrir Banda- ríkjamenn þrátt fyrir sífellt vax- andi óánægju franskra gyðinga sem réttilega töldu Barbie komast allt of vel frá hrikalegri fortíð sinni. Eftir stjórnarskipti í Bólívíu í kringum 1980 sam- þykktu stjórnvöld þar í landi að framselja Barbie í skiptum fyrir frönsk hjálpargögn. Barbie var dæmdur sekur eftir dramatísk réttarhöld og fékk fyrir vikið að sitja í fangelsi það sem hann átti eftir ólifað. Hann lést úr krabbameini 1991. KLAUS BARBIE ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1812 Spencer Perceval, þáver- andi forsætisráðherra Bret- lands, er myrtur í London af geðveikum kaupsýslu- manni, John Bellingham að nafni. 1969 Bandarískir og suður-víet- namskir hermenn berjast við norður-víetnamska her- menn í frægri orrustu um Ap Bia fjall, sem síðar var nefnt Hamburger Hill vegna gríðarlegs mannfalls bandarískra hermanna þar. 1858 Minnesota er þennan dag formlega skráð sem ríki Bandaríkjanna, þá 32. ríkið. 1947 Ferrari keppir í fyrsta sinn í kappakstri í Piacenza á Ítal- íu. Bíllinn bilaði og þurfti að hætta keppni eftir að hafa verið fremstur í röð- inni. Barbie dreginn fyrir rétt Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér til hli›ar má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. GREINDIR MENN Dr. Yngvi Björnsson og dr. Kristinn R. Þórðarson eru doktorsmenntaðir í gervigreind. Þeir veita nýju Gervigreindarsetri Háskólans í Reykjavík forstöðu. Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona, barnabarn, frænka og vinkona, Lovísa Rut Bjargmundsdóttir sem lést fimmtudaginn 5. maí, verður jarðsungin frá Árbæjar- kirkju fimmtudaginn 12. maí kl. 15.00. Sólveig Guðlaugsdóttir Bjargmundur Grímsson Guðmundur Bjargmundsson Hrafnhildur Guðmundsdóttir Kolbrún Bjargmundsdóttir Lovísa Rut Bjargmundsdóttir og aðrir aðstandendur. „Fyrsta starfið mitt var þegar ég fékk að afgreiða í búðinni hjá afa mínum tólf ára gömul,“ segir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor í mann- fræði við Háskóla Íslands. „Afi minn var Júlíus Guðmundsson matvöru- kaupmaður, sem rak verslunina Bald- ur á Framnesveginum. Þessi búð var algjört himnaríki fyrir litlar stelpur og þegar ég var tólf ára leyfði hann mér stundum að afgreiða.“ Sigríður fékk dálitla þóknun fyrir vinnuna en launin voru ekki greidd út í hönd. „Afi fór með mig í bankann og lagði launin inn og þar át verðbólgan þau upp. Á endanum fékk ég því lítið fyrir mitt fyrsta starf þó vel væri að grunni búið.“ Sigríður vann hjá afa sín- um þangað til hún var sautján ára. Vinnan jókst með árunum og fimmtán ára fór hún að fá launin greidd beint út. Sigríður segir að það hafi skipt sig miklu að vinna fyrir afa sinn. „Mér var treyst fyrir einhverju og falin ábyrgð. Ég efast ekki um að þetta hafi haft góð áhrif á mig til lengri tíma. Verslunar- störf fela í sér samskipti við fólk, það þarf að gefa rétt til baka og svo fram- vegis. Afi var líka vandur að virðingu sinn og það var ekki ónýtt að taka fyrstu skrefin á vinnumarkaði undir hans handleiðslu.“ ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A H EL G AD Ó TT IR AFMÆLI Jóhannes Nordal, fyrrver- andi seðlabankastjóri, er 81 árs. Árni Vilhjálmsson fiskifræðingur er 73 ára. Sigurður Eyberg leikari er 34 ára. Björgólfur Takefusa knatt- spyrnumaður er 25 ára. ANDLÁT Jóna M. Sigurjónsdóttir, Skildinganesi 4, Reykjavík, lést föstudaginn 6. maí. Kristinn Guðlaugur Hermannsson, Jörfalind 4, Kópavogi, áður til heimilis að Molastöðum, Fljótum, lést laugardag- inn 7. maí. Bára Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi, Íra- gerði 12, Stokkseyri, lést laugardaginn 7. maí. JAR‹ARFARIR 13.00 Kjartan Ólafsson, bóndi, Sand- hólum, Bitrufirði, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju. 14.00 Agatha Þorleifsdóttir, Dvalar- heimilinu Höfða Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. Bætt við Bæjarútgerðina: Fær andlits- lyftingu „Endurreisn hafnarinnar er hafin,“ segir Sigrún Magnúsdótt- ir, forstöðumaður Sjóminjasafns- ins, sem opnar sína fyrstu sýn- ingu í Grandagarði 8 á sjómanna- daginn eftir þrjár vikur. Nú standa yfir viðamiklar breytingar á húsinu og er verið að steypa gólf í viðbyggingu við gömlu bæjar- útgerðina, sem hefur að sögn Sig- rúnar staðið illa frá gengin og öllum til ama í sex ár. „Þarna verður 80 fermetra verönd þar sem hægt verður að njóta útsýnis,“ segir Sigrún, sem telur safnið geta orðið menningar- miðstöð svæðisins. Að lokinni gönguferð í gegnum safnið geti menn gengið út á veröndina og séð hafnarstarfsemina og fjalla- hringinn en að sögn Sigrúnar er útsýnið „gullmoli safnsins“. Sigrún var ráðin forstöðu- maður í byrjun janúar og má telja galvaskt að klára framkvæmdir og setja upp sýningu á einungis fimm mánuðum. ■ SIGRÍÐUR DÚNA KRISTMUNDSDÓTTIR Ver›bólgan át upp fyrstu launin FYRSTA STARFIÐ SJÓMINJASAFNIÐ Verið er að steypa gólf undir útsýnispall.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.