Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 20
Próflestur Gott ráð er að lesa í 50 mínútur, standa svo upp og sinna öðru í 10 mínútur. Hringdu í vin, fáðu þér að borða, teygðu úr þér eða labbaðu hring í kringum húsið og horfðu upp í himininn. [ ] Bankastræti 10 • Sími 562 23 62 • info@exit. is • www.exit. is Færð þú MasterCard Ferðaávísun? Viltu starfa erlendis? Ef þú ert á aldrinum 18-30 ára er starfsþjálfun góð leið til þess að læra tungumál, kynnast ólíkri menningu og öðlast starfsreynslu. Um er að ræða störf á hótelum, veitingahúsum, hjúkrunarheimilum og hjá fyrirtækjum í öðrum greinum. Þeir sem sækja um starfsþjálfun í Evrópu eiga kost á Leonardo da Vinci styrk til greiðslu á hluta kostnaðar. Stúdentaferðir úthluta þessum styrkjum fyrir hönd Landsskrifstofu Leonardo á Íslandi. Sungið og leikið í sumar Söngkonan Ingveldur Ýr kennir unglingum að syngja í sumar. Unglingarnir læra meðal annars raddbeitingu, úthald og öndun auk þess að fá þjálfun í leiklist. Söngur á æ meira upp á pallborð- ið hjá ungmennum landsins og er það vel. Ingveldur Ýr, söngkona og söngkennari, býður unglingum námskeið í söngtækni í sumar. „Þar ætla ég að leggja áherslu á rétta og heilbrigða raddbeitingu, úthald og öndun, stuðning og lík- amsstöðu. Tóneyrað verður einnig þjálfað svo þau læra að syngja í röddum og rúsínan í pylsuendanum er leiklistarþjálf- un hjá Sigríði Birnu Aðalsteins- dóttur sem meðal annars setti upp söngleikinn Súperstar með nem- endum Hagaskóla.“ Námskeiðin standa í mánuð í senn og verða í gangi í allt sumar. Kennt verður tvisvar í viku og fyrsta námskeiðið byrjar 19. maí. „Þetta verður alls ekki klassísk raddþjálfun heldur vil ég kenna heilbrigða raddbeitingu. Það er mikilvægt að krakkar sem syngja mikið fái strax rétta tilsögn því að ósiðir festast fljótt og það er erfitt að laga skemmdir eftir á. Loka- útkoman verður vonandi meira sjálfstraust og betri rödd,“ segir Ingveldur og drífur sig svo beint í kennslu. Nánari upplýsingar um skrán- ingu og fleira má nálgast á heima- síðunni www.songstudio.ehf.is. ■ Ingveldur Ýr hefur kennt söng í mörg ár og nú ætlar hún að leyfa unglingum að njóta visku sinnar í sumar. Draugur í diktafóni Útskriftarsýning myndlistardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar Lista- háskólans er á Kjarvalsstöðum til 29. maí. Draugur í diktafóni, Mugimetall-þung- arokk, bangsar sem bæta úr vandamál- um eins og heimþrá og myrkfælni, fata- hönnun og listaverk úr sykri, osti og vaxi eru meðal fjölmargra verka eftir nem- endur Listaháskólans sem nú eru til sýnis á Kjarvalsstöðum. Þau eru afrakstur þriggja ára náms. Þetta er í fyrsta sinn sem nemendur í arkítektúr eiga verk á sýningunni því kennsla í arkitektúr hófst við Listaháskólann haustið 2002. Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna alla sunnudaga kl. 15 og þá munu nem- endur veita gestum innsýn í verkin sín. Hægt er líka að panta leiðsögn fyrir hópa virka daga í síma 590 1200. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. ■ Alþýðulist í N-Dakóta og á Íslandi SPENNANDI NÁMSKEIÐ Í VESTUR- FARASETRI. Í samstarfi við North Dakota Council of the Arts og Vesturfarasetrið á Hofs- ósi verður efnt til námskeiðs á Hofs- ósi um samanburð á þjóðháttum í Norður-Dakota og á Íslandi. Nám- skeiðið er ætlað áhugafólki um þjóð- fræði og alþýðulist, jafnt fræðimönn- um sem leikmönnum. Á námskeið- inu, sem haldið er á Vesturfarasetrinu á Hofsósi, verður leitast við að draga fram andstæður og sameiginlega þætti í þjóðháttum og alþýðulist á Ís- landi og í Norður-Dakóta. Á hverjum degi námskeiðsins kynna margir ein- stakir og þjóðþekktir alþýðulistamenn list sína og fræði með sýningum, kynningum og fyrirlestrum. Skráning- arfrestur er í Endurmenntun Háskóla Íslands til 23. maí, en námskeiðið stendur frá 25. maí til 6. júní. ■ SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.