Fréttablaðið - 11.05.2005, Qupperneq 28
Gengi krónunnar getur hreyfst töluvert í kjölfar nýrra
frétta á næstunni. Þetta kemur fram í efnahagsfrétt-
um KB banka. Töluverðar sviptingar hafa verið á
gengi krónunnar innan dags síðustu vikur. Þetta
bendir til þess að töluvert skiptar skoðanir séu nú á
meðal markaðsaðila um eðlilegt gengi krónunnar
að mati greiningardeildar KB banka.
Ásgeir Jónsson, greiningardeild KB banka,
bendir á að Ísland sé lítið hagkerfi þar sem hegð-
un fólks stjórnist mikið af gengi krónunnar. Við-
skiptahallinn slái til að mynda öll met um þessar
mundir.
Velta á gjaldeyrismarkaði jókst mikið seinni hluta
síðasta árs. Á síðastliðnum þremur mánuðum hefur
dregið úr veltu á gjaldeyrismarkaði þótt hún sé um
milljarði meiri en á sama tíma í fyrra. - dh
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Krónan hreyfist
vegna nýrra frétta
Hegðun fólks stjórnast af genginu.
Deilt um forstjóra
Fyrrverandi yfirmenn í Walt Disney-fyrir-
tækinu í Bandaríkjunum eru meðal þeirra
sem hafa lagt fram kæru á hend-
ur framkvæmdastjórn fyrirtæk-
isins. Stjórnin er sökuð um að
gefa hluthöfum villandi upplýs-
ingar er vörðuðu leit að arftaka
fyrrverandi forstjóra fyrirtækis-
ins, Michael Eisner. Hlutaðeigandi
vilja að kosning nýs forstjóra verði
ógild, kosið verði aftur og allar upplýsingar
varðandi ráðningarferlið verði gerðar opin-
berar.
Æðstu menn Disney eru sakaðir um að
hafa notað stöðu sína til að tala fyrir ráðn-
ingu nýja forstjórans án þess að hafa íhug-
að í alvöru aðra kosti í stöðunni. – bg
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Þegar lotu aðalfunda þeirra félaga sem skráð eru í
Kauphöll Íslands er lokið, er ljóst að konur sitja í
tólf stjórnarsætum. Sætunum hefur fjölgað um
helming á milli ára en eftir að aðalfundum ársins
2004 lauk sátu aðeins átta konur í stjórnum þessara
félaga. 149 stjórnarsæti falla körlum í vil. Hlutfall
stjórnarmanna er því körlum yfirgnæfandi í vil því
hlutfall kvenna í stjórnum Kauphallarfélaga er að-
eins 7,5 prósent.
Sex konur skipa þau 87 stjórnarsæti sem í boði
eru í þeim fimmtán félögum sem mynda Úrvalsvísi-
töluna. Hlutfallið er því 6,9 prósent en var til sam-
anburðar aðeins 2,3 prósent í fyrra og 5,3 prósent
árið 2003. Hlutfallið hefur sennilega aldrei verið
hærra.
Af þeim fyrirtækjum sem eru í Úrvalsvísitöl-
unni sitja flestar konur sitja í stjórnum Burðaráss
og Símans; Kristín Jóhannesdóttir og Þórunn Guð-
mundsdóttir hjá fyrrnefnda félaginu en þær Rann-
veig Rist og Sigríður Finsen hjá því síðarnefnda. Í
varastjórn Símans sitja svo tvær konur af fimm
varastjórnarmönnum. Brynja Halldórsdóttir situr
ein kvenna í níu manna stjórn KB banka, Steinunn
Jónsdóttir á sæti í bankaráði Íslandsbanka, Inga
Jóna Þórðardóttir situr í stjórn FL Group og Guð-
björg Matthíasdóttir á sæti í bankastjórn Lands-
bankans. Allt eru þetta Úrvalsvísitölufélög.
Guðbjörg er eina konan sem situr í stjórnum
tveggja eða fleiri félaga en hún á sæti í stjórn TM.
Margrét Guðmundsdóttir, hjá Austurbakka, Sigur-
laug Jónsdóttir, Sláturfélagi Suðurlands, og Nadine
Deswasiere, hjá SÍF, eru þær konur sem að auki
eiga sæti í stjórnum skráðu félaganna. Nadine er
líklega fyrsta erlenda konan sem tekur sæti í stjórn
Kauphallarfélags.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, sendi í febrúar bréf til stærstu félaga
landsins og hvatti stjórnendur þeirra til að auka
vægi kvenna í stjórnum félaganna.
Karlar þaulsetnir í stjórn-
um Kauphallarfélaga
Tólf stjórnarsæti af 161 falla í hlut kvenna.
Talsverðar breytingar hafa orðið
á eignarhaldi eins stærsta út-
gáfufélags landsins, Árvakurs,
sem gefur út Morgunblaðið.
Hluthafar í Morgunblaðinu nýttu
sér á dögunum forkaupsrétt á
tæplega sextán prósenta hlut í fé-
laginu sem var í eigu Haraldar
Sveinssonar. Er talið að hluturinn
hafi selst fyrir að minnsta kosti
sex hundruð milljónir króna sem
þýðir að markaðsverð Árvakurs
gæti verið 3,8 milljarðar króna.
Tveir hluthafahópar fara með
yfir 70 prósent eign-
arhlut í Morgunblað-
inu. Stærsti hluthafi
Morgunblaðsins er
eftir sem áður Út-
gáfufélagið Valtýr,
sem er í eigu Huldu
Valtýsdóttur og fjöl-
skyldu hennar.
Hinn hópurinn er
frændgarður Krist-
ins Björnssonar,
stjórnarformanns
Straums, sem fer
með um 35 prósenta
hlut í Árvakri. MGM
eignarhaldsfélag er í
eigu Kristins Björns-
sonar, stjórnarfor-
manns Straums, og
fjölskyldu hans en fé-
lagið komst nýverið í hóp eig-
enda blaðsins þegar það festi
kaup á Johnson ehf. Eignarhalds-
félögin Björn Hallgrímsson,
Erna og Lynghagi eru í eigu
þriggja barna Hallgríms Bene-
diktssonar. Félögin eignuðust
þessa hluti fyrir fimm árum
þegar eignum H. Benediktsson
hf. var skipt upp.
Kristinn Björnsson sagði við
Markaðinn á dögunum að hann
vildi sjá fjölgun í hluthafahópi
Árvakurs. - eþa
Hluthöfum fækkar í Mogganum
Markaðsvirði blaðsins gæti verið nálægt fjórum milljörðum.
Stofnfjáreigandi í Sparisjóði vél-
stjóra (SPV) gæti fengið um
fimm milljónir króna að jafnaði
fyrir stofnfjárhluti sína ef mark-
aður með bréf í sjóðnum myndað-
ist. Það verður þó ekki í bráð, þar
sem að aðalfundur SPV hafnaði
tillögu stjórnar um að rýmka
heimildir til kaupa á stofnfjár-
bréfum á aðalfundi sjóðsins í lok
mars. Þó er vitað að margir stofn-
fjáreigendur í SPV, sem eru rúm-
lega 700 að tölu, hafa lýst yfir
áhuga sínum á að kaupa eða selja
á markaði með stofnbréf. Meðal-
eign stofnfjáreigenda í SPV er
um 188.000 kr. að nafnverði.
Markaður með stofnfjárbréf í
SPRON var mjög virkur fyrir
síðustu áramót en lítið sem ekk-
ert framboð er með bréf í sjóðn-
um þar sem 60 prósent stofnfjár
hafa skipt um hendur eftir að við-
skipti hófust. Verð á stofnfjár-
markaði SPRON bendir til þess
að fjárfestar meti stofnfjárbréf á
70 prósent af eigin fé sjóðsins og
hefur Markaðurinn heimildir
fyrir því að þessi viðmiðun eigi
við um aðra sparisjóði. - eþa
MORGUNBLAÐIÐ Eftir að hlutur Haraldar Sveinssonar var
seldur eru aðeins níu hluthafar eftir í félaginu. Tveir hópar
fara með yfir 70 prósent atkvæða í félaginu.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ar
i
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ar
i
SKJALASKÁPAR
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF
Sundaborg 3 • sími 568 4800
www.olafurgislason.is
SKJALAPOKAR OG MILLIMÖPPUR
-og allt á sínum stað!
VIÐSKIPTAHALLINN SLÆR ÖLL MET Ásgeir Jónsson sérfræðingur
KB banka.
Stofnfé í SPV
3,5 milljarða virði
Hlutur hvers stofnfjáreiganda um fimm milljónir.
VERÐMÆTIR STOFNFJÁRHLUTIR Ekki er ólíklegt að meðalhlutur hvers stofnfjáreiganda
í SPV sé um fimm milljóna króna virði.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/S
te
fá
n
Hluthafi Eignarhlutur
1. Útgáfufélagið Valtýr 36,52%
2.-3. Garðar Gíslason 12,06%
2.-3. MGM ehf. 12,06%
4. Leifur Sveinsson 9,13%
5.-7. Björn Hallgrímsson ehf. 7,62%
5.-7. Erna ehf. 7,62%
5.-7. Lynghagi ehf. 7,62%
8. Árvakur hf. 4,34%
9. Björn B. Thors 3,00%
H l u t h a f a r Á r v a k u r s
RANNVEIG RIST
Rannveig Rist er
eina konan sem
gegnir stöðu
stjórnarformanns
félags í Kauphöll-
inni. Konum hefur
fjölgað um helm-
ing í stjórnum
Kauphallarfélaga á
milli ára, en þær
sitja samt aðeins í
7,5 prósentum
stjórnarsæta.