Fréttablaðið - 11.05.2005, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN
Ú T L Ö N D
Dögg Hjaltalín
skrifar
Michael Jackson er mikil eyðslukló og eyðir hann
hátt í tveimur milljörðum á ári. Þetta kom fram í
vitnaleiðslum í réttarhöldunum yfir Michael
Jackson þar sem hann er sakaður um kynferðis-
afbrot gagnvart börnum. Eyðsla hans gæti kostað
hann höfundarréttinn að sínum eigin lögum og
hluta af lagasafni Bítlanna.
Jackson hefur eytt 20 til 30 milljónum dollurum
meira á ári en hann þénar og því breikkar alltaf bil-
ið milli eigna hans og skulda.
Skuldir hans eru metnar á 285 milljónir dollara
eða 17 milljarða króna. Sérfræðingar telja þó að
eignir hans sé vanmetnar og að virði þeirra sé
meira en kom fram í málaferlunum því að þar var
stuðst við skattskýrslur. Reikningarnir sem lagðir
voru fram voru frá miðju ári 2002. Þar kom fram að
eignir hans væru 130 dollarar og skuldir næmu 415
milljónum dollara.
Michael Jackson var á tímabili með efnuðustu
skemmtikröfum heims en nú virðist öldin önnur.
Hann hefur sólundað öllum auðæfum sínum og vel
það í ýmsa neyslu sem engin glóra virðist í. Heimili
hans, Neverland, sem frekar líkist skemmtigarði en
heimili, kostar skildinginn og var virði þess áætlað
um þrír milljarðar fyrir nokkrum árum.
Markaðurinn hafði samband við Ingólf H. Ing-
ólfsson, ráðgjafa í fjármálum einstaklinga, og
óskaði eftir ráðum fyrir Jackson. Hann lagði áher-
slu á að einstaklingar stýrðu útgjöldum sínum. „Það
skiptir engu máli hver innkoman er, það skiptir
máli hvað þú gerir við peningana.“
Jackson eyðir fimm milljónum dollara á ári í lög-
fræðinga og aðra sérfræðiþjónustu, fimm milljón-
um dollara eyðir hann í öryggisgæslu og viðhald á
heimili sínu Neverland, 7,5 milljónum dollara í per-
sónuleg útgjöld og 2,5 milljónum í annan kostnað,
sem er tilkominn að stórum hluta vegna trygginga.
Til viðbótar þarf hann að borga 11 milljónir dollara
í vexti af lánum sem hann tók til að geta keypt laga-
söfn. Þar á meðal höfundarréttinn að Bítlalögunum.
Jackson eyðir því samtals 31 milljón dollara á ári
eða rúmlega 1.800 milljónum króna. Líklega neyðist
hann fljótlega til að selja eitthvað af eignum sínum
til að greiða niður skuldir.
Kauphöllin í New York:
Dýrt að komast á gólfið
Myndir af sveittum og þreyttum verðbréfamiðlurum á
gólfi kauphallarinnar í New York eru í hugum flestra ein
af táknmyndum verðbréfaheimsins. Það komast hins
vegar ekki allir inn á gólfið og ef menn vilja taka þátt í
slagnum þarf að borga myndarlega summu fyrir.
Aðeins 1.366 manns hafa leyfi til að stunda viðskipti
á gólfi kauphallarinnar og stöðugt eru viðskipti með
þessi sæti. Í síðustu viku seldist sæti á 2,6 milljónir
Bandaríkjadala – sem samsvarar tæplega 170 milljónum
króna. Þetta er hæsta verð sem fengist hefur síðan árið
1999, þegar met var slegið og sæti selt á 2,65 milljónir
dala. Í niðursveiflunni á mörkuðum síðustu ára hefur
verðið lækkað og fór niður fyrir milljón dali í upphafi
þessa árs. - þk
Þann 11. maí 1997 átti sá sögulegi atburður sér stað
að tölva sigraði heimsmeistarann í skák í sex skáka
einvígi. Garrí Kasparov fékk 2,5 vinninga gegn 3,5
vinningum Deep Blue-tölvunnar sem IBM hannaði.
Um ári áður hafði Deep Blue unnið eina skák
gegn heimsmeistaranum í einvígi sem Kasparov
vann með fjórum vinningum gegn tveimur. Í kjöl-
farið hófust verkfræðingar IBM handa við að
endurhanna vélina, með þeim árangri að rúmu ári
síðar lagði nýja útgáfan af Deep Blue Kasparov að
velli.
Kasparov var ekki sáttur við ósigurinn og hélt
því fram að hann hefði orðið var við bæði frum-
leika og sköpunargáfu í leik tölvunnar, en slíkt
væri tölvum ekki eðlislægt. Hönnuðirnir höfnuðu
öllum slíkum tilgátum og þegar Kasparov heimtaði
nýtt einvígi neitaði IBM að veita honum það tæki-
færi.
Sumar af ásökunum Kasparov áttu við rök að
styðjast. Til dæmis unnu verkfræðingarnir streitu-
laust að því að endurbæta kerfið á milli viðureigna
til þess að verja tölvuna betur fyrir veikleikum
sem hún sýndi í fyrstu skákunum.
Þrír stórmeistarar í skák unnu að forritun Deep
Blue og bjuggu hana undir öll þekkt afbrigði af
byrjunum en styrkur Deep Blue fólst fyrst og
fremst í gríðarlegri getu til að bera saman nánast
óendanlega marga möguleika úr hverri stöðu sem
upp kom á skákborðinu. Forritarar létu tölvuna
komast að niðurstöðu um hvaða markmiðum best
væri að ná – til dæmis hvort mikilvægara væri að
verja kónginn eða sækja fram – og tölvan vann svo
úr þessum markmiðum með því að stúdera mörg
þúsund skákir stórmeistara. - þk Heimild: Wikipedia
S Ö G U H O R N I Ð
Tölva lagði
heimsmeistarann
Samvinna
= árangur
Velkomin á afmælisráðstefnu
Opinna kerfa
Hátíðarsal Öskju í Háskóla Íslands,
fimmtudaginn 12. maí 2005, kl. 13.00.
Dagskrá:
Halldór Ásgrímsson
Forsætisráðherra Íslands
ávarpar gesti
Frosti Bergsson
Einn stofnenda Opinna kerfa:
Saga Opinna kerfa sl. 20 ár
Bernard Meric
Forstjóri HP í Evrópu,
Mið-Austurlöndum og Afríku (EMEA):
HP – fyrirtækið og stefna þess í Evrópu
Andy Lockhart
Framkvæmdastjóri Cisco Systems í
Norður-Evrópu:
Áherslur Cisco til framtíðar
Andrew Butler
Framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs
Gartner Group:
Upplýsingatækni til framtíðar
Ráðstefnustjóri
Gylfi Árnason
Forstjóri Opin Kerfi Group hf.
kl. 16.30-18.00
Léttar veitingar
*Verð 20.000 kr. skráning fer fram á
www.ok.is/20ara
*Fjöldi sæta takmarkaður
Eyðir hátt í tveimur milljörðum á ári og skuldir hans eru um
20 milljarðar.
„Það skiptir engu máli hver innkoman er, það skiptir máli hvað þú gerir við
peningana,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson ráðgjafi í fjármálum einstaklinga.
MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Michael Jackson kann réttu sporin.
Michael Jackson skuld-
ugur upp fyrir haus
HAMAGANGUR Á HÓLI Það er slegist um að fá tæki-
færi til að taka þátt í viðskiptum í kauphöllinni í New York.