Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN14 F Y R I R T Æ K I F Ó L K Á F E R L I Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu, segir að í gegnum tíðina hafi hann fundið ýmsa speki og gáfulega mola í bókum. „Maður las Spámanninn og Lao Tse og allt þetta og fann sér ýmis haldreipi og kennisetningar,“ segir hann. Hann segir að eftir því sem árin hafi liðið hafi hann hætt að sjá einhvern algildan sannleika í slíkri speki. Lífið sé flóknara en svo. „Þegar maður er kominn á þennan aldur þá gerir maður þetta allt á einhverjum reynslu- brunni sem þarf ekki að skil- greina frá degi til dags,“ segir hann. Páll Bragi segist ekki hallast að neinum einföldum sannind- um og að ekki sé að hægt að gera mikinn greinarmun á því sem gagnist mönnum sem stjórnendum í fyrirtækjum eða í lífinu almennt. „Maður er náttúrlega fyrst og fremst manneskja,“ segir hann. „Í ólgusjó hversdagsins finnst mér ágætt að hafa í huga það sem Shakespeare sagði að enn hafi ekki fæðst sá heimspekingur sem tekið hef- ur tannpínu með rósemd. Ég hef líka gjarnan í huga að mót- lætið er oft dulbúinn vinur og ég hef í huga að sigurmáttur manns sjálfs grundvallast á bjargfastri trú – og svo hef ég það sem algjöran grundvöll að bænin er brú til æðri máttar,“ segir Páll Bragi. - þk B E S T A R Á Ð I Ð Í hjarta Vesturbæjarins stendur Melabúðin og sækja Vesturbæingar og nærsveitungar þangað að sögn Friðriks Ármanns Guð- mundssonar. Verslunin er fjölskyldufyrir- tæki og Friðrik sér um reksturinn ásamt Pétri Alan, bróður sínum. Þeir tóku við af föð- ur sínum, Guðmundi Júlíussyni, sem hafði stjórnað búðinni um langt árabil. Melabúðin var stofnuð 4. júlí 1956 í sinni upprunalegu mynd og heldur hún því upp á fimmtugsafmæli sitt næsta sumar. Búðin er ekki stór í fermetrum talið en vöruúrvalið er með því besta sem gerist. Friðrik segir mikilvægt að bjóða upp á það sem viðskiptavininn vantar og að þeir þurfi ekki að leita annað. Friðrik segir búðina ekki hafa verið stóra í sniðum í upphafi. Í húsnæðinu sem Melabúð- in er í núna var einnig mjólkurbúð á vegum Mjólkursamsölunnar en búðin stækkaði svo sem því nemur þegar mjólkurbúðin lagði upp laupana. Búðin var í þeirri mynd þangað til síðasta sumar en þá stækkaði hún lítillega í viðbót til að bæta aðgengi viðskiptavinanna en þeir eru um þúsund á dag. „Okkur er þröngt stakkur skorinn á þessum fermetrum hérna þannig að það munaði um stækkunina. Ég fullyrði að engin verslun sé með jafnmikla sölu á fermetra eins og þessi verslun,“ segir Friðrik. SÆLKERAVERSLUN Mikið vöruúrval einkennir Melabúðina og segir Friðrik þá alltaf passa að fylgjast vel með nýrri vöru á markaði. „Við erum oftar en ekki fyrstir til að taka inn nýjungar.“ Hann segir viðskiptavini búðarinnar ánægða með úrvalið. „Við erum vel vakandi og það endurspeglast í ánægju viðskiptavinanna.“ En það fylgja því bæði kostir og gallar að vera með mikið vöruúrval. Friðrik segir mikla vinnu fylgja breiðu vöruúrvali en þeir bræður geri allt til þess að hafa viðskipta- vininn ánægðan. „Það hefur verið okkar lífsmottó að eiga allt fyrir alla. Það gefur auga leið að það er ekki hægt að hafa allt, við verðum að velja og hafna. Það má segja að við séum allt frá því að vera nauðsynjavöru- verslun upp í að vera sælkeraverslun. Kjöt- borðið er okkar stolt, val sælkerans á góðu verði.“ ALDREI VERIÐ ÓDÝRARI Friðrik segir meira vöruúrval ekki endilega þýða hærra verð. „Með aukinni samkeppni hefur verðið farið lækkandi hjá okkur á undanförnum árum og hefur aldrei verið lægra en það er í dag.“ Hann segist trúa því að meðalálagningin í Melabúðinni sé með því lægsta sem gerist. Ef verðið í Melabúðinni er borið saman við aðrar matvöruverslanir er verðið á svipuðu róli og Hagkaup, ef ekki ódýrari í ákveðnum vöruliðum. Friðrik leggur mikið upp úr því að skapa ákveðna umgjörð sem viðskiptavinir sæki í. „Það sem gerir búðina spennandi er sam- bland af vöruúrvali, skemmtilegu umhverfi og samhentu starfsfólki.“ Oftast er annar hvor þeirra bræðra á staðnum og eru þeir oftast tilbúnir til skrafs og ráðagerða ef svo ber undir. „Það er þessi persónulegi þáttur sem vill oft gleymast þegar fólk fer í stærri búðir.“ Hann segir Melabúðina vera verslun Vesturbæinga og nágrannasveitarfélaganna. „Hingað kemur fólk og hittir vini og kunningja. Fólk kemur ótrúlega víða að til þess að sækja hingað vöru og þjónustu.“ Kaupmannsbúðirnar hafa verið að týna tölunni smátt og smátt og Friðrik segir hverf- isverslanir ekki vera margar eftir. Velta Melabúðarinnar hefur aftur á móti verið að aukast síðustu ár. „Að öðrum ólöstuðum held ég að við séum svo heppin að geta með þess- ari umgjörð okkar boðið fólki þá vöru og þjónustu sem virðist vera vinsæl því að veltan er mikil.“ MELABÚÐIN EKKI FÖL Melabúðin er í samtökum Þinnar verslunar sem eru samtök kaupmanna á horninu. Friðrik segir að þegar lagt hafi verið af stað í upphafi hafi verið góður hugur í mönnum. Síðan hafi þessar verslanir týnt tölunni. „Verslanir hafa selt sig stóru keðjunum og eftir stendur góður kjarni fimm verslana, tvær í Reykjavík og þrjár úti á landi.“ Friðrik segir að líkt og hjá smærri versl- ununum hafi oft gengið á ýmsu hjá þeim stærri. „Til dæmis nefni ég tilraunina með Nýkaup þannig að þetta gengur upp og ofan á öllum vígstöðvum.“ En liggur þá ekki beinast við að Melabúðin verði einnig keypt af stærri samkeppnis- aðilum? Friðrik segir að oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hafi verið falast eftir Mela- búðinni en þeir haldi sínu striki. „Við bræð- urnir höfum tekið meira og minna við rekstr- inum af föður okkar Guðmundi, sem bregður sér enn bak við búðarborðið. Ég kom að rekstrinum fyrir tveimur árum til að taka slaginn og ekki hefur veitt af. Það hefur verið brjálað að gera,“ segir hann og snýr sér aftur að því að afgreiða úr kjötborðinu. Melabúðin Mottó: Að eiga allt fyrir alla Stofnuð: 4. júlí 1956 Val sælkerans á góðu verði Margur er knár þótt hann sé smár gæti verið mottó Melabúðarinnar. Vöruúrval- ið er mikið og oftar en ekki er búðin þétt skipuð en fermetrarnir eru ekki margir. Dögg Hjaltalín heimsótti búðina og náði tali af Friðriki Guðmundssyni verslun- arstjóra þar sem hann var önnum kafin við að afgreiða. JOSTEIN SÆTRENES hefur verið ráðinn forstjóri KredittBanken í Álasundi. Sætrenes er í dag forstjóri skipafélagsins Bourbon Offs- hore Norway AS. Áður var hann fjár- málastjóri Havila Supply, vann hjá Fokus Bank og gegndi ýmsum störfum í skipa- iðnaðinum. Sætrenes tekur við stöðu forstjóra KredittBanken í ágúst og mun kom í stað Frank O. Reite, sem nýverið var gerður að framkvæmdastjóra yfir starfsemi Íslandsbanka í Noregi og á sæti í framkvæmdastjórn Íslandsbanka. ALMAR ÖRN HILMARSSON hefur verið ráðinn forstjóri Sterling. Almar hefur verið framkvæmda- stjóri Iceland Ex- press síðan í byrjun nóvember á síðasta ári. Almar er lög- fræðingur og er fæddur 1973. Hann varð framkvæmda- stjóri Ágætis árið 1999 og eftir að Ágæti og Bananar sameinuðust árið 2001 stýrði Almar hinu sameinaða fyrirtæki. Í árslok 2002 tók hann svo við starfi fram- kvæmdastjóra Tæknivals. MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Austurbakka. Margrét, sem er fædd 1954, hefur víðtæka stjórnunar- reynslu bæði á Ís- landi og í Danmörku. Síðustu 10 ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Neytendasviðs Skeljungs hf. Þar á undan starfaði Mar- grét í níu ár sem framkvæmdastjóri hjá olíufélaginu Q8 í Kaupmannahöfn. Mar- grét lauk Cand. Oecon prófi frá HÍ 1978 og Cand Merc prófi frá Copenhagen Business School 1981. Eiginmaður Mar- grétar er Lúðvíg Lárusson sálfræðingur og eiga þau tvö börn. STENDUR VAKTINA Í KJÖTBORÐINU Friðrik Guðmundsson, verslunarstjóri Melabúðarinnar. PÁLL BRAGI KRISTJÓNSSON Mótlæti getur verið dulbúinn vinur Fr ét ta bl að ið /H ei ða FRÁ AÐALFUNDI SA Hrund Rudolfsdótt- ir og Brynjólfur Bjarnason. Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins Nýja stjórn Samtaka atvinnulífs- ins skipa: Ingimundur Sigurpáls- son, formaður, forstjóri Íslands- póst, Arnar Sigurmundsson, Samtökum fiskvinnslustöðva, Björgólfur Jóhannsson, Síldar- vinnslunni, Brynjólfur Bjarna- son, Landssíma Íslands, Eiríkur Tómasson, Þorbjörn-Fiskanes, Friðrik Jón Arngrímsson, Lands- sambandi ísl. útvegsmanna, Gunnar Sverrisson, Íslenskum aðalverktökum, Grímur Sæ- mundsen, Bláa lóninu, Guðmund- ur Ásgeirsson, Nesskipi, Hreiðar Már Sigurðsson, KB banka, Hjör- leifur Jakobsson, Olíufélaginu, Hrund Rudolfsdóttir, Lyf og heil- su, Jens Pétur Jóhannsson, Raf- magnsverkstæði Jens Péturs, Kristín Jóhannesdóttir, Baugi Group, Loftur Árnason, Ístaki, Óskar Magnússon, Trygginga- miðstöðinni ,Ragnhildur Geirs- dóttir, FL Group, Rannveig Rist, Alcan á Íslandi, Sveinn Hannes- son, Samtökum iðnaðarins, Þor- geir Baldursson, Prentsmiðjunni Odda og Vilmundur Jósefsson, Gæðafæði. - dh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.