Fréttablaðið - 11.05.2005, Síða 39

Fréttablaðið - 11.05.2005, Síða 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 15 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Miðaldra ofurhetjurnar í bíó- myndinni The Incredibles láta sér ekki nægja að vinna sigurorð á hinum illa Syndrome heldur hefur þeim tekist að skila Pixar kvikmyndaframleiðandanum methagnaði. Kvikmyndaframleiðandinn Pixar, sem getið hefur af sér margar af þekktustu teiknimynd- um síðustu ára, þrefaldaði hagn- að sinn á fyrstu þremur mánuð- um ársins miðað við sama tíma í fyrra. Það er fyrst og fremst mikil sala á DVD-diskum með kvikmyndinni The Incredibles sem hefur gert gæfumuninn. Hlutabréf í Pixar hækkuðu snarlega á markaði í kjölfar tíð- indanna. Þá vekur það bjartsýni að Steve Jobs, stjórnarformaður Pixar og forstjóri Apple, lýsti yfir að hann hefði hug á því að ræða við nýjan forstjóra Disney- fyrirtækisins um samvinnu, en upp úr samvinnu fyrirtækjanna slitnaði vegna ágreinings milli Jobs og Michael Eisner fyrrum forstjóra Disney. Disney gerði samning um dreifingu á myndum Pixar en að- eins ein mynd er eftir á þeim samningi, myndin Cars sem kem- ur út síðar á árinu. Sala DVD-diska með kvik- myndum hefur bætt miklu við tekjumöguleika kvikmyndavera en sérstaklega er vinsælt að kaupa teiknimyndir á DVD-spól- um. Fyrir vikið hafa fyrirtæki á borð við Pixar lagt sig fram um að framleiða myndir sem höfða bæði til barna og fullorðinna svo allir á heimilinu vilji kaupa diskinn. Alls hafa selst tæplega tuttugu milljónir DVD-diskar með myndinni. - þk Ofurhetjurnar græða fyrir Pixar Hagnaður þrefaldast á milli ára. BOB PARR OG FJÖLSKYLDA Í OFUR- HETJUBÚNINGUNUM Hin ótrúlega Parr- fjölskylda hefur skilað Pixar dágóðri summu eftir að bíómyndin The Incredibles sló í gegn um heim allan. SJÓVÉLAR Tvöfaldað í Kína Breski fjárfestingarbankinn HSBC tvöfaldaði eignarhlut sinn í kínverska tryggingafélag- inu Ping An í fyrradag. Kaupverð hlutanna var 1,1 milljarður dollara eða í kring- um sjötíu millj- arðar króna. Notaði bankinn tækifærið til kaupanna eftir að hlutabréfaverð hafði náð sex ára lágmarki. Það voru Morgan Stanley og Goldman Sachs sem seldu. Eftir kaupin mun bankinn eiga tæp tuttugu prósent í Ping An, sem er annað stærsta tryggingafélag lands- ins. HSBC er stærsti vestræni fjárfestirinn í kínverskum fjár- málafyrirtækjum. – bg SLÁTRUN HJÁ SS Markaðsvirði rúmar 200 milljónir. Enn fækkar á Aðallista SS á Tilboðsmarkaðinn vegna lítilla viðskipta og aukinna krafna. Sláturfélag Suðurlands verður fært af Aðallista yfir á Tilboðs- markaðinn í byrjun júní. „Vegna lítilla viðskipta, síaukinna krafna sem gilda um skráningu og kostnaðinn sem af því leiðir höf- um við valið þá leið að færa fé- lagið yfir á Tilboðsmarkaðinn,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS. Hann bætir við að auk þess hafi stjórnendum félagsins verið skylt að færa það vegna lág- markskröfu um markaðsvirði fé- laga á Aðallista. Markaðsvirði SS miðað við síðustu viðskipti er 214 milljónir en skráningarskilyrði á Aðallist- anum miða við að markaðsvirði félaga sé yfir 600 milljónir. Um helmingur af eiginfé félagsins er skráð í Kauphöllina. - dh TANNTÆKNI Ómar B. Hansson, tannsmið- ur og framkvæmdastjóri tannsmiðjunnar Krónu, bauð viðskiptavinum sínum í heim- sókn til að kíkja á nýjasta tæki tannsmiðj- unnar. Tækið gerir kleift að skanna staka tennur eða fleiri til að hanna undirlag fyrir krónur og brýr. Hönnunin fer fram á tölvu- skjá með hjálp þrívíddarhugbúnaðar. Upp- lýsingarnar eru síðan sendar til Svíþjóðar þar sem undirlagið er smiðað úr Zircon ker- amiki og sent til baka í pósti. Ómar segir marga kosti við efnið og tæknina. Undirlag- ið sé hvítt og ekki komi grár skuggi eins og þegar notast er við gullefni, auk þess sem mikil vinna og tími sparast miðað við hefð- bundnar aðferðir. Fr ét ta bl að ið /S te fá n

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.