Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 44
Hefja sölu veiðileyfa
Leigusamningur Víðidalsár staðfestur.
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins var haldinn
með miklum glæsibrag nýlega. Yfirskrift fundar-
ins var spurningin Áfram í úrvalsdeild? Með því
var verið að vitna til þess hversu vel Íslendingum
virðist vegna í viðskiptum og atvinnulífi. Fundar-
gestir fengu að líta á myndbönd um árangur at-
vinnulífsins, árangur stjórnvalda og um áherslur
atvinnulífsins og framtíðarsýn. Þetta var fersk og
skemmtileg nýbreytni og fín tilbreyting frá hefð-
bundnum ræðuhöldum.
Á fundinum stýrði Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, líflegum umræðum um áherslur atvinnu-
lífsins og framtíðarsýnina. Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóri Baugs, sagði Ísland vera statt neðar-
lega í úrvalsdeild, við værum rétt að byrja að spila
þar. Hann sagði Íslendinga hafa sýnt að þeir geti
keypt stór fyrirtæki erlendis en þeir ættu eftir að
sýna að þeir gætu rekið þau og af þeim verkum
yrðu Íslendingar dæmdir.
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group,
sagði bankana hafa með auknum umsvifum sínum
skapað gríðarleg tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki
en að æskilegt væri að fleiri fjárfestar tækju svo
virkan þátt í atvinnulífinu. - dh
Þegar er byrjað að spyrjast fyrir um veiði-
leyfi í Víðidalsá á Norðurlandi vestra
næsta sumar og verður fljótlega byrjað að
selja í ána, segir Harpa Hlín Þórðardóttir.
Leigir hún ána ásamt manni sínum, Stefáni
Sigurðssyni, undir merkjum H&S Ísland.
Þau vinna bæði á skrifstofu Lax-á, sem er
umsvifamesta fyrirtækið hér á landi í
leigu laxveiðiáa.
Harpa og Stefán undirrituðu leigusamn-
ing ásamt stjórn veiðifélagsins til fimm
ára í síðustu viku. Samningurinn er upp-
segjanlegur af hálfu beggja aðila að þrem-
ur árum liðnum. Þau greiða rúmar 52 millj-
ónir króna árlega fyrir veiðiréttinn til
veiðifélagsins. Það er eitt hæsta leiguverð
fyrir á sé tekið mið af stangafjölda.
Leigan hækkar um tæpar tuttugu millj-
ónir króna frá því sem núverandi leigutaki
greiðir. Stefán segir samninginn „nýkom-
inn úr ofninum“ og verið sé að verðleggja
leyfin. Að því loknu geti salan hafist. – bg
Skipasmíðastöð
– vélsmiðja
Undirritaður skiptastjóri í þrotabúi Óseyjar ehf. að Óseyrarbraut
40 í Hafnarfirði, óskar hér með eftir áhuga mögulegra kaup-
enda að eignum þrotabúsins.
Meðal annars er um að ræða nýlega u.þ.b. 3.500 fermetra fast-
eign á 12.240 fm leigulóð, sem skiptist m.a. í sal fyrir skipa-
smíðar með u.þ.b. 20 metra lofthæð, viðgerða- og renniverk-
stæði, og skrifstofu- og þjónustuhluta. Ennfremur getur verið
um að ræða áhöld, tæki, efnislager og rekstur fyrirtækisins.
Um er að ræða eignir þrotabús, og miðast möguleg sala við
forsendur þess s.s. varðandi veðsetningar og ábyrgð á ástandi
hins selda. Hið selda kann að verða selt í heild eða stökum
einingum.
Haft skal samband við undirritaðan skiptastjóra þrotabúsins.
Ólafur Rafnsson hdl.,
skiptastjóri.
sími 565-5155
KÁTT Á HJALLA Guðrún Lárusdóttir, forstjóri Stálskipa, Kristján Ragnars-
son og Magnús Kristinsson.
KJAFTAÐ Í KAFFIHLÉINU Hrund Rudolfsdóttir, stjórnarformaður SVÞ, og
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans.
ATVINNULÍFIÐ RÆTT Þórólfur Árnason og Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri
FL Group.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ei
ða
SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR Björn Magnússon, formaður veiðifélags
Víðidalsár og bóndi á Hólabaki, afhendir Stefáni Sigurðssyni undirritaðan
samning að lokinni undirskrift. Með á myndinni eru stjórnarmenn veiði-
félagsins.
Segja Ísland vera í efnahagslegri úrvalsdeild
Gestir á aðalfundi Samtak atvinnulífsins fengu ekki bara ljúffengar veitingar heldur líka kvikmyndasýningu.