Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 56
Eiður Smári skoraði á Old Trafford
20 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við óttumst það ...
... að Íslandsmót kvenna í
knattspyrnu verði líkara léttri
æfingu en alvöru keppni
fyrir hið frábæra lið Vals.
Valur vann ÍBV 10–0 í
meistarakeppninni í gær
en ÍBV er spáð 4. sæti
deildarinnar.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... Eiði Smára Guðjohn-
sen, sem hefur skorað
í báðum leikjum
Chelsea gegn Man-
chester United í ensku
deildinni í vetur. Hvaða
framherji sem er í heim-
inum yrði stoltur af því
afreki. Eiður skoraði í gær
sitt 17. mark fyrir Chelsea,
og hefur enginn leikmaður
liðsins skorað meira en hann.
Körfuboltamaður dæmdur
Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Aron
Ingvason hefur verið dæmdur í
tveggja ára keppnisbann. Hann féll á
lyfjaprófi fyrr í vetur og efnið sem
felldi hann var amfetamín. „Þetta var
bara eins og ég átti von á og er alls
enginn heimsendir,“ sagði Ólafur
Aron við Fréttablaðið í gær.
Keflvíkingurinn Þórarinn Kristjánsson
hefur verið á mála hjá skoska úrvals-
deildarliðinu Aberdeen í vetur og er
samningsbundinn liðinu út mánuðinn.
Honum hefur þegar verið tilkynnt að
samningur hans verði ekki endurnýjað-
ur. Gunnlaugur Tómasson, umboðs-
maður Þórarins, segir að hann hafi full-
an hug á að reyna áfram fyrir sér er-
lendis og sé ekki á leiðinni heim í ís-
lenska boltann – ekki strax.
„Þórarinn er úti í Skotlandi og er þessa
stundina að jafna sig eftir meiðsli. Hann
ætlar að reyna áfram fyrir sér úti og ef
það gengur ekki upp hjá honum kemur
hann væntanlega heim,“ segir Gunn-
laugur. Hann og Þórarinn eru þessa
stundina að vinna í málinu og ræða við
félög um að fá hann til reynslu. „Við
erum í sambandi við félög ekki bara
hér á Bretlandseyjum, heldur einnig í
Hollandi, Belgíu og Grikklandi. Það er til
dæmis aldrei að vita nema að hann
skelli sér í sumarfrí til Grikklands og kíki
á nokkrar æfingar um leið,“ sagði
Gunnlaugur í léttum tón. „En hann hef-
ur mikinn metnað fyrir að halda áfram
sínum atvinnumannaferli og er alls ekki
að gefast upp á neinn hátt.“
Gunnlaugur segir að þjálfari Aberdeen
hafi verið ánægður með Þórarin en þar
sem verið að byggja upp nýtt lið geti
hann ekki treyst á að Þórarinn geti ver-
ið áfram meiðslafrír. „Það hefur eitt rek-
ið annað í meiðslasögu hans. Í vetur
var hann illa tæklaður í varaliðsleik og
var frá æfingum í sex vikur. Þá fékk
hann slæmt högg á bringubeinið og
hvíldi vegna þess í tvær vikur. Þetta er
ekkert stórvægilegt en nóg til að hafa
áhrif á framvindu mála.“
Komist Þór-
arinn ekki að í Evr-
ópu getur það ekki
verið slæmur kostur
að spila nokkra leiki
hér heima. „Það er lít-
ill fótbolti í Evrópu í
sumar þannig að
menn eru mikið að
koma hingað til
lands til að skoða
leikmenn.“
Chelsea vann 3-1 sigur á Manchester United í gær í næstsí›asta leik li›anna í ensku úrvalsdeildinni.
Chelsea bætti stigameti› me› sigrinum og er komi› me› 94 stig flegar a›eins einn leikur er eftir.
ÞÓRARINN KRISTJÁNSSON SENN SAMNINGSLAUS: KEMUR EKKI STRAX TIL ÍSLANDS
Ætlar a› reyna áfram fyrir sér erlendis
FÓTBOLTI Chelsea bætti stigamet
Manchester United í ensku úr-
valsdeildinni á Old Trafford í gær
þegar liðið sótti þrjú stig á heima-
völl Manchester United, sem átti
einmitt gamla metið. Chelsea
vann leikinn 3-1 og er því komið
með 94 stig en United fékk 92 stig
í 42 leikjum tímabilið 1993 til
1994. Chelsea á hins vegar leik
inni auk þess að tímabilið er
fjórum leikum styttra nú en
þegar United setti gamla metið.
Svo sannarlega stórkostlegur
árangur.
Það voru heimamenn í United
sem byrjuðu leikinn betur en
Ruud van Nistelrooy kom þeim
yfir á 7. mínútu með umdeildu
marki þar sem hann leit út fyrir
að vera rangstæður þegar hann
skoraði.
Portúgalinn Tiago jafnaði
metin með stórkostlegu marki tíu
mínútum síðar og var staðan jöfn
í leikhléi. Það var síðan okkar
maður, Eiður Smári Guðjohnsen,
sem kom Chelsea yfir á 61.
mínútu þegar hann lyfti boltanum
smekklega yfir Roy Carroll,
markvörð United. Joe Cole rak
síðan síðasta naglann í kistu
United með marki átta mínútum
fyrir leikslok.
Eiður Smári var að vonum
kátur í leikslok þegar hann hitti
breska fjölmiðlamenn að máli.
„Við tókum stórt skref fram á
við sem lið í dag. Við vissum af
metinu og vildum ná því á þessum
velli. Við lögðum mikið á okkur og
ég tel að sigurinn hafi verið full-
komlega verðskuldaður,“ sagði
Eiður Smári.
„Tímabilið hefði vissulega
verið enn betra ef við hefðum
komist í úrslit Meistaradeildar-
innar en það er ekki dapurt afrek
að taka tvo titla á einu tímabili.
Það er hægt að byggja á því og við
munum reyna að gera enn betur
næsta vetur. Nú er aðeins leikur-
inn gegn Newcastle eftir og við
munum reyna að njóta okkar í
þeim leik. Við erum meistarar og
það er stórkostleg tilfinning.“
Þetta var annað mark Eiðs
Smára gegn United á tímabilinu
en hann skoraði sigurmarkið í
fyrri viðureign liðanna í deildinni.
„Ég virðist alltaf skora gegn
United. Ég nýt þess að leika gegn
United enda er það frábært
fótboltalið og það er hægt að spila
fótbolta gegn því,“ sagði Eiður
Smári Guðjohnsen, sem er búinn
að skora 17 mörk fyrir Chelsea í
vetur en það er stórkostlegur
árangur sem seint verður leikinn
eftir af íslenskum íþróttamanni.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
8 9 10 11 12 13 14
Miðvikudagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
18.30 Miami Heat – Washington
Wizards á Sýn. Endurtekinn leikur.
18.55 Arsenal – Everton á Skjá
einum.
20.30 Landsbankadeildin 2005 á
Sýn.
21.30 Íslandsmótið í
kraftlyftingum á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.20 Íþróttakvöld á Rúv.
Draumaliðsleikur Vísis:
Glæsileg
ver›laun
FÓTBOLTI Vísir og Landsbanki Ís-
lands bjóða upp á öflugan
draumaliðsleik á visir.is í tengsl-
um við Landsbankadeild karla í
sumar. Öllum er velkomið að taka
þátt og er fyrirkomulagið með
hefðbundnu sniði.
Verðlaun verða veitt fyrir best-
an árangur fyrir hvern þriðjung
mótsins og stigahæsta liðið í lok
mótsins hlýtur aðalvinninginn.
Meðal vinninga er ferð á leik í
enska boltanum, PSP-leikjatölva
og gjafabréf frá Landsbankanum.
Snæfell missir fleiri menn:
Sigur›ur til
Woonaris
KÖRFUBOLTI Landsliðsmaðurinn
Sigurður Þorvaldsson, sem lék
með Snæfelli í Intersportdeildinni
í körfuknattleik undanfarin tvö ár,
ákvað í gær að feta í fótspor sam-
herja síns, Hlyns Bæringssonar,
og samdi við hollenska liðið
Woonaris. „Samningurinn er til
eins árs og ég gat einfaldlega ekki
slegið hendinni á móti þessu tæki-
færi,“ sagði Sigurður í samtali við
Fréttablaðið. „Svo er mjög gott að
vita af Hlyni þarna með mér og
það átti stóran þátt í að ég sló til,“
bætti Sigurður við.
Samkvæmt Sigurði felst samn-
ingurinn aðallega í bíl, íbúð og
fæði ásamt einhverjum aurum í
vasann. „Aðalatriðið er að fá að
spila og ég stefni ótrauður að því
að komast í byrjunarliðið. Við
Hlynur munum æfa á fullu í sum-
ar og ætlum að mæta til Hollands
í haust í okkar besta formi,“ sagði
Sigurður að lokum.
Á LEIÐ TIL HOLLANDS Sigurður Þorvalds-
son hættur hjá Snæfelli.
FYRIRLIÐARNIR MEÐ BIKARINN Laufey Ólafsdóttir hóf leikinn í gær sem fyrirliði Vals en
afhenti Írisi Andrésdóttur fyrirliðabandið er hún kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik.
Þær kyssa hér bikarinn saman og leiðist það ekki.
Meistararkeppni KSÍ í kvennaflokki fór fram í gær:
Valur skora›i tíu mörk
KÖRFUBOLTI Það voru ótrúlegar töl-
ur á markatöflunni í Egilshöllinni
þegar leikur Vals og ÍBV var
flautaður af í gærkvöldi. Vals-
stúlkur höfðu skorað tíu mörk og
leikmenn ÍBV ekki neitt. Vals-
stúlkur eru því meistarar meist-
aranna og lyftu bikar í annað
skipti á fimm dögum. Þær unnu
KR, 6–1, í úrslitum deildabikars-
ins á föstudaginn var.
„Það er alltaf gaman að vinna
titla,“ sagði fyrirliði Vals, Laufey
Ólafsdóttir, eftir leikinn í gær.
„Það vantar auðvitað mikið í
Eyjaliðið en við vorum staðráðnar
að leggja okkur 100% fram í leikn-
um. Og þótt leikurinn hafi verið
eins og hann var er maður alltaf
sáttur við að vinna,“ sagði Laufey.
Í marki Eyjastúlkna stóð hin
fjórtán ára gamla Nína Björk
Gísladóttir, sem er gríðarmikið
efni og á síst sökina á mörkum
andstæðingsins. En hún náði sér
illa á strik rétt eins og aðrar í liði
ÍBV. Valsstúlkur virkuðu ekki
jafn sannfærandi og gegn KR í
síðustu viku en sjö markanna
komu á síðasta hálftímanum. En
þær bera klárlega höfuð og herð-
ar yfir önnur lið í deildinni eins og
staðan er nú.
eirikurst@frettabladid.is
HEITUR Eiður Smári fagnar hér
marki sínu gegn Manchester
United á Old Trafford í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI