Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 58

Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 58
Fimmtíu metra afmæliskaka rann ljúflega niður í mannskapinn. Fjölbreytt dagskrá me› flekktum listamönnum Tónlistarhátí› stendur nú yfir í Tíbrá í Salnum, Tónlist- arhúsi Kópavogs, dagana 5.-14. maí. Löngu kominn tími á n‡ja laug A›sókn var geypimikil vi› opnun n‡ju laugarinnar a› Versölum 3 í Kópavogi og útlit fyrir a› hún ver›i gó› áfram. Helgina eftir opnun laugarinnar var ókeypis inn og flá mættu 6.700 manns á 3 dögum. „Mannvirki nýju íþróttamiðstöðv- arinnar Versala og útisvæði þess var vígt hér sumardaginn fyrsta, 21. apríl síðastliðinn,“ segir Guð- mundur Þ. Harðarson forstöðu- maður. „Þetta nýja svæði á sér nokkra sögu. Fyrsti áfangi verks- ins var boðinn út í lok ársins 2000 og þá fór ferlið fyrst af stað. Byggingarframkvæmdir töfðust aðeins í byrjun, enda flókið mann- virki, en við opnuðum hér fyrir skólasund 12. janúar í ár og heilsuræktina 22. janúar. Áætlað er að þegar skólar hefjist í haust verði íþróttahúsið opnað.“ Úti- laugin er 25 sinnum15 metrar og 1,10-1,70 m á dýpt. „Arkitekt að íþróttamannvirkinu er Benjamín Magnússon. Lögð var áhersla á það við hönnun útilaugarinnar að hún yrði sex brauta laug, en marg- ar af nýjustu laugum landsins eru aðeins fjögurra brauta. Síðan er innilaug sem er 16,67 sinnum 10 metrar. Hún opnaði fyrir skólann 12. janúar og er mjög hentug sem kennslulaug fyrir yngri börnin.“ Nýju laugina sækja að jafnaði eitt mtil tvö gestir á dag sem er ívið meira en búist var við. „Við vorum komnir með 480-490 þúsund gesti á ári í gömlu lauginni og hún var löngu búin að sprengja af sér. Það kæmi mér ekkert á óvart þó að það yrði 30-40% fjölgun sundgesta í Kópavoginum á þessu ári með við- bót nýju laugarinnar. Þessi nýja sundlaug þjónar aðallega Sala- og Lindaskóla og sjálfsagt einhverj- um fleiri í framtíðinni. Að mínu áliti hefur hönnun nýju sundlaugarinnar tekist mjög vel, þetta er mjög hlýlegt og fallegt mannvirki. Stutt á milli alls, potta og lauga, eimbaðs og útisturta. Það hefur alltaf verið mikið af fólki utan Kópavogs sem sótt hefur í laugarnar hjá okkur. Þegar ég byrjaði sem forstöðu- maður í Sundlaug Kópavogs var alltaf mikið um gesti frá nærliggj- andi bæjarfélögum, mest Reyk- víkingum og Garðbæingum.“ Engin þjóð í heiminum er sæk- ir eins mikið í sund og Íslending- ar. „Það helgast meðal annars af því að hér eru engar strandir eða tjarnir til að synda í. Á síðastliðn- um 15-20 árum hafa Íslendingar byggt gríðarlega mikið af sund- laugum, enda er rekstur þeirra mun ódýrari hjá okkur en í öðrum löndum. Einnig má geta þess að hvergi er ódýrara í laug- ar en hér á Íslandi. Ríkið og bæj- aryfirvöld hafa skilning fyrir því að sund er forvarnarstarf,“ segir Guðmundur. Framkvæmdir í gó›ri sátt vi› íbúana Búi› er a› samflykkja deiliskipulag fyrir Lundarsvæ›i› vi› N‡b‡laveg og fram- kvæmdir munu hefjast flar á næstu dögum. Tekist hefur gó› sátt vi› íbúa nágranna- bygg›arlaganna um skipulagi› á svæ›inu. „Ég geri ráð fyrir því að byggingarframkvæmdirnar í landi Lundar taki um 2-3 ár, en þar verður blönduð byggð íbúðarhúsa. Gera má ráð fyrir einhverjum töfum á umferð þegar framkvæmdir standa yfir en áformað er að færa Nýbýlaveginn til austurs,“ segir Gunnsteinn Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar og formaður skipu- lagsnefndar í Kópavogsbæ. „Eftir að framkvæmdum lýkur gengur umferðin á svæðinu eflaust betur fyrir sig en fyrir framkvæmdirn- ar. Samhliða endurskipulagningu á Lundi gerðum við umferðarlíkön af þessu svæði sem unnin voru á verk- fræðistofu og teljum okkur þannig hafa leyst úr álags- punktum í umferðinni. Við kynntum almenningi niður- stöðurnar og settum þær þannig fram að fólk gat séð myndlíkön og hreyfimyndir af umferð á þyngstu álags- punktum. Af því er ég best veit er það í fyrsta sinn sem það hefur verið gert. Það teljum við vera eftirsóknar- verð vinnubrögð og við höfum beitt þeim einnig við kynningu á öðrum hverfum, svo sem Bryggjuhverfinu og Kópavogstúni,“ segir Gunnsteinn. „Tónlistarhátíðin er sérstaklega haldin í tilefni 50 ára afmælis Kópavogsbæjar. Af því sem þegar er lokið á tónlistarhátíðinni eru tónleikarnir „Prímadonna“ sem samdir voru og fluttir af kanadísku söngkonunni Mary Lou Fallis við undirleik pánóleikarans og tónskáldsins Peter Tiefen- bach,“ segir Vigdís B. Esradóttir, forstöðumaður Salarins. „Á sunnudaginn fluttu Anna Schein og Earl Carlyss þrjár sónötur eftir Copland, Beethoven og Saints-Saens. Á fimmtudaginn næsta, 12. maí, flytur hinn heims- frægi söngvari, Kristinn Sig- mundsson og undirleikari hans, Jónas Ingimundarson, íslensk lög frá ýmsum tímum, söngva eftir Schubert og glæstar aríur. Á þeim tónleikum í Tíbrá gefst tónleika- gestum tækifæri til að hlýða á nýja efnisskrá sem þeir Kristinn og Jónas munu flytja á komandi tónleikaferð um Norðurlöndin,“ segir Vigdís. Salurinn, Tónlistarhús Kópa- vogs, var formlega tekinn í notk- un 2. janúar 1999. Við hönnun hans var sérstaklega lögð áhersla á að tryggja sem bestan hljóm- burð og leitað ráðgjafar færustu sérfræðinga á því sviði. Salurinn er leigður út til tónleikahalds og fyrir upptökur, en hentar einnig fyrir móttökur, fyrirlestra og ráð- stefnur af ýmsu tagi. ■ Vigdís B. Esradóttir, forstöðumaður Salarins í Kópavogi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A 22 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR Kópavogur 50 ára Afmælishátí›in stendur yfir allan maímánu›. „Ein stór hátíð í tilefni afmælis- fagnaðarins fór fram í Fífunni á sunnudaginn um síðustu helgi en þar mættu vel yfir 5.000 Kópa- vogsbúar til að fylgjast með hátíðahöldunum. Þar var boðið upp á 50 metra afmælisköku sem rann ljúflega ofan í mannskap- inn,“ segir Linda Udengaard, æskulýðs- og forvarnafulltrúi Kópavogsbæjar, sem jafnframt er starfsmaður afmælisnefndar. „Þar voru frumflutt vinnings- lögin úr lagasamkeppni um afmæl- islag Kópavogsbæjar. Helmingur- inn af Fífunni var fylltur upp með leiktækjum og óhætt er að segja að aldrei fyrr hafi afmælisveisla af þessari stærðargráðu verið haldin í Kópavogi. Á afmælisdaginn sjálf- an hefst dagurinn á söng 1.200 barna úr leikskólum Kópavogs og síðan verður hátíðarfundur bæjar- stjórnar Kópavogs þar sem von er á samþykkt sem hæfir afmælis- degi bæjarins. Síðan er hátíðar- dagskrá í Salnum og þar koma fram ungir listamenn og sýnd verður stutt heimildarmynd um 50 ára sögu Kópavogs. Þann 12. maí verða hátíðartónleikar með Kristni Sigmundssyni og Jónas Ingi- mundarson sér um undirspil. Afmælisdagskránni verður fram haldið í maímánuði og nánast öll félög og stofnanir bæjarins munu leggja fram sinn skerf,“ segir Linda. Aðsókn í nýju Kópavogslaugina að Versölum hefur verið meiri en búist var við. Nýja sundlaugin við Versali er keppnislaug með sex brautum og svo þykja ákveðin þægindi falin í því að hafa stuttar vegalengdir á milli laugar og heitra potta. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð á Lundarsvæðinu í Kópavogi. KÓPAVOGUR Í 50 ÁR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Guðmundur Þ. Harðarson á von á mikilli fjölgun sundgesta.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.