Fréttablaðið - 12.05.2005, Side 4
SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti lands-
manna styður áframhaldandi
samstarf Framsóknarflokks, Sam-
fylkingar og Vinstri grænna í
Reykjavíkurlistanum, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins. 61 prósent þeirra sem tóku af-
stöðu til spurningarinnar töldu
það rétt að flokkarnir sem standa
að R-listanum bjóði aftur fram
saman til borgarstjórnar. 39 pró-
sent voru því andvíg.
Nokkur munur er á afstöðu
fólks eftir búsetu. Íbúar höfuð-
borgarsvæðisins eru því greini-
lega ekki eins fylgjandi að R-
listinn bjóði aftur fram, því ein-
ungis tæpur meirihluti þeirra,
54,6 prósent voru því fylgjandi,
en tæplega 72 prósent lands-
byggðarfólks. Þá eru konur að-
eins líklegri til að styðja R-list-
ann, en tæplega 73 prósent
kvenna telja það rétt að R-list-
inn bjóði aftur fram, en tæplega
60 prósent karla.
Ef einungis er litið til þeirra
íbúa höfuðborgarsvæðisins, sem
jafnframt segjast myndu kjósa
Framsóknarflokk, Samfylkingu
eða Vinstri græna, væri boðað
til kosninga nú, virðast stuðn-
ingsmenn flokkanna sem standa
að R-listanum vera minna
spenntir fyrir framtíð hans en
stuðningsmenn annarra flokka,
ásamt þeim sem eru óákveðnir
eða gefa ekki upp hvað þeir
kjósa. Rétt tæpur meirihluti,
52,3 prósent stuðningsmanna
flokka sem standa að R-listanum
eru því fylgjandi að R-listinn
bjóði fram aftur. 47,7 prósent
eru því andvíg. Innan þessa
hóps eru konur heldur hlynntari
áframhaldandi R-lista en karlar.
62,2 prósent kvenna eru þessu
fylgjandi, en minnihluti karla,
einungis 45,5 prósent. Hafa
verður í huga að af 480 svarend-
um á höfuðborgarsvæðinu sögð-
ust 145 ætla að kjósa einhvern
þeirra flokka sem stendur að
R-listanum. Af þessum 145 voru
það 111 sem gáfu upp afstöðu
gagnvart framtíð R-listans.
Hringt var í 800 manns 8.
febrúar, sem skiptust jafnt milli
kynja og hlutfallslega eftir kjör-
dæmum. Spurt var: Er rétt að
flokkarnir sem standa að R-list-
anum bjóði aftur fram saman til
borgarstjórnar? 67 prósent tóku
afstöðu til spurningarinnar.
svanborg@frettabladid.is
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,64 64,94
121,76 122,36
83,27 83,73
11,186 11,252
10,301 10,361
9,034 9,086
0,6133 0,6169
97,59 98,17
GENGI GJALDMIÐLA 11.05.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
115,06 +0,41%
4 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Benedikt Davíðsson um fjárhag eldri borgara:
Binda vonir vi› fjárlagager›ina
KJARAMÁL Benedikt Davíðsson,
fyrrverandi formaður Landssam-
bands eldri borgara, segir að það
komi sér ekki á óvart að tæplega
1.600 ellilífeyrisþegar fái engar
greiðslur úr lífeyrissjóði. Það hafi
verið vitað fyrir löngu síðan.
„Það sem verra er er að skerð-
ingar í almannatryggingakerfinu
eru svo brattar að fjöldi fólks sem
hefur greiðslur frá lífeyrissjóðum
hefur samt sem áður lítið hærri
tekjur en þeir sem fá framfærslu
sína eingöngu úr almannatrygg-
ingakerfinu,“ segir hann.
„Þriðjungur aldraðra hefur
tekjur innan við 110 þúsund krón-
ur á mánuði og borgar af því 13
prósenta skatt. Þarna er um fá-
tæktargildru að ræða sem erfitt
er að komast út úr nema frítekju-
mörk séu hækkuð eða skattleysis-
mörk fylgi launaþróun í landinu.“
Benedikt á von á viðræðum við
stjórnvöld og vonar að tekið verði
tillit til ábendinga eldri borgara
við undirbúning fjárlagagerðar
2006. Ríkisstjórnin hafi fallist á að
setja starfshóp með eldri borgur-
um sem geti komið fram með til-
lögur til úrbóta. - ghs
Stu›ningur vi› R-lista
mestur úti á landi
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Mánu›ur
fyrir árás
DÓMSTÓLAR 22 ára gamall maður
var í gær dæmdur í 30 daga fang-
elsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir
líkamsárás 14. desember 2002.
Dómurinn var kveðinn upp í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur, en málið
var dómtekið 20. apríl síðastlið-
inn. Lögreglustjórinn í Reykjavík
gaf út ákæru í málinu í lok janúar.
„Ákærði hefur ekki sætt refs-
ingum svo kunnugt sé. Við ákvörð-
un refsingar verður litið til þess, en
einnig horft til þess að ákærði
sparkaði í höfuð liggjandi manns
og gerði þannig alvarlega atlögu að
líkama hans,“ segir í dómnum.
Skaðabótakröfu þess sem ráðist
var á var vísað frá dómi. - óká
BANDARÍKIN
HVÍTA HÚSIÐ OG ÞINGHÚSIÐ
RÝMD Hvíta húsið og alríkisþing-
húsið á Capitol-hæð í Washington
voru rýmd í stutta stund í gær
þegar í ljós kom að lítil flugvél
var komin inn á flugbannsvæði
yfir stjórnarbyggingum borgar-
innar. Herþotur beindu vélinni á
brott enda var hún á svæðinu
fyrir misgáning. Bush Banda-
ríkjaforseti var ekki í borginni.
VEÐRIÐ Í DAG
Samkvæmt sko›anakönnun Fréttabla›sins er stu›ningur vi› áframhaldandi
samstarf R-listans mestur á landsbygg›inni. Stu›ningurinn er minnstur me›al
stu›ningsmanna fleirra flokka sem mynda R-listann á höfu›borgarsvæ›inu.
61,0% 71,6% 54,6% 52,3%
39,0% 28,4% 45,4% 47,7%
ER RÉTT AÐ FLOKKARNIR SEM STANDA
AÐ R-LISTANUM BJÓÐI AFTUR FRAM
SAMAN TIL BORGARSTJÓRNAR?
Allir Lands-
byggðin
Höfuð-
borgarsv.
Stuðningsfólk
R-listaflokka á
höfuðborgarsv.Nei Já
ILLA FARINN JEPPI Land-Rover jeppi hrökk
í gang og á næsta bíl eftir að upp kom
eldur í vélarhúsi hans eftir hádegi í gær.
Miðborg Reykjavíkur:
Logandi jeppi
hrökk í gang
SLÖKKVILIÐ Mannlaus jeppabifreið
hrökk í gang eftir að eldur kom
upp í vélarhúsi hennar nokkru
fyrir klukkan tvö í gær og rauk
aftur á bak á næsta bíl í bílastæði
við Egilsgötu rétt við Snorrabraut
í Reykjavík.
Að sögn slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins mun ekki fordæma-
laust að bílar hrökkvi í gang við
að upp kemur í þeim eldur, þótt
fátítt sé. Mildi er talin að jeppinn,
sem er af Land-Rover gerð, fór
ekki lengra, enda þungur og gæti
valdið miklu tjóni. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn en eldsupptök
eru ekki ljós. - óká
Kosturinn á Kárahnjúkum:
Mega taka
tvo ávexti
KÁRAHNJÚKAR Íslendingar sem
starfa hjá Impregilo á Kárahnjúk-
um eru óánægðir með að aðeins
megi taka með sér tvo ávexti úr
mötuneyti og að ekki sé lengur boð-
ið upp á annað brauðálegg en ost.
Ómar R. Valdimarsson, tals-
maður Impregilo, segir að fljót-
lega eftir að Impregilo hafi tekið
til starfa hafi í sparnaðarskyni
verið hætt að bjóða upp á annað
álegg en ost. Ekki hafi mátt taka
neitt með sér úr mötuneyti en nú sé
leyfilegt að taka tvo ávexti. Horft
sé í gegnum fingur sér taki menn
þrjá. - ghs
BENEDIKT DAVÍÐSSON Þriðjungur eldri
borgara hefur 110 þúsund krónur til umráða
á mánuði og borgar af því 13 prósent í skatt,
að sögn Benedikts Davíðssonar, fyrrverandi
formanns Landssambands eldri borgara.
NÚVERANDI OG FYRRUM BORGARSTJÓRI REYKJAVÍKURBORGAR Mikill meirihluti lands-
manna vill sjá áframhaldandi samstarf Reykjavíkurlistans í næstu sveitarstjórnarkosning-
um. Stuðningur kjósenda höfuðborgarsvæðisins er mun minni en stuðningur kjósenda
landsbyggðarinnar.
Bush í Georgíu:
Handsprengja
lá hjá svi›inu
TÍBLISI, AP Óvirk handsprengja fannst
nokkra metra frá sviðinu þar sem
Bush Bandaríkjaforseti ávarpaði
Georgíumenn í Tíblisi í fyrradag.
Í fyrstu var talið að einhverjir
hefðu reynt að ráða forsetann af
dögum en mistekist. Nú eru menn
farnir að hallast að því að sprengjan
hafi verið gerð óvirk af ásettu ráði
til að spilla fyrir annars vel heppn-
aðri heimsókn. Ekki er vitað hverjir
gætu hafa komið sprengjunni fyrir
en talið er líklegt að óánægðir
Georgíumenn hafi verið að verki til
að mótmæla skrautsýningu stjórn-
valda á meðan fjöldi fólks býr við
afar kröpp kjör. ■
Vinnuslys í Drammen:
Tveir létust í
kranaslysi
NOREGUR Tveir menn fórust í
hörmulegu vinnuslysi í Drammen í
Noregi í gær.
Mennirnir voru að vinna við að
taka sundur byggingakrana í mið-
bænum þegar hluti kranans losn-
aði. Féll annar mannanna til jarðar
og lést samstundis. Hinn hékk fast-
ur í 40 metra hæð yfir jörðu í
öryggislínu en lést af hjartaáfalli
skömmu eftir komuna á sjúkrahús.
Litlu mátti muna að kraninn félli
á lögreglustöðina í Drammen. ■