Fréttablaðið - 12.05.2005, Síða 10
12. maí 2005 FIMMTUDAGUR
FUGLAVERND Flateyjarbóndinn
Hafsteinn Guðmundsson, sem
átti gasbyssu sem fannst við
meint arnarhreiður í Borgar-
hólma í Hergilseyjarlöndum nú í
apríl, heldur því fram að ernir
hafi aldrei orpið í Borgarhólma
og að gasbyssuhvellirnir hafi ein-
ungis verið til þess að fæla geld-
fugla frá æðarvarpi í hólmanum.
Hafsteinn segir að eftirlitsflug
Kristins Hauks Skarphéðinssonar
og félaga yfir arnarvörp valdi
engu minni skaða þegar fuglar
fljúga upp við flugvélaniðinn. Þá
vill Hafsteinn meina að hann hafi
verið í fullum rétti að verja sinn
atvinnuveg, æðarvarpið.
Kristinn Haukur segir á hinn
bóginn að Hafsteinn hafi einmitt
unnið að því meðvitað að koma í
veg fyrir að ernir geti komið upp
ungum á þessum slóðum og að
brotavilji hans sé einbeittur. Um
þessi vinnubrögð Hafsteins segir
Kristinn: „Það er rótgróin óvild í
garð arnarins á þessu svæði og
Hafsteinn er verðugur fulltrúi
þeirra sem standa með annan fót-
inn í nítjándu öldinni og hinn í
þeirri átjándu.“
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
á eftir að taka afstöðu til þess
hvort gefin verði út ákæra á
hendur Hafsteini.
- oá
SVÍÞJÓÐ
ÁRNI FRIÐRIKSSON Á HVALFIRÐI Rann-
sóknaskipið Árni Friðriksson er þessa dag-
ana við tækjastillingar á Hvalfirði. Af og til
er farið með skipið í djúpa og fáfarna firði,
líkt og Hvalfjörðinn og Arnarfjörðinn fyrir
vestan til þess að fínstilla bergmálstæki
skipsins, sem eru af fullkomnustu gerð.
TRYGGINGAMÁL Ástæður endur-
kröfu tryggingafélaganna á hend-
ur tjónvöldum í umferðinni eru
langoftast ölvun tjónvalds, þá
ökuréttindaleysi, lyfjaneysla og
glæfraakstur. Um 74% krafnanna
eru vegna ölvunaraksturs.
Endurkröfuréttur verður til
þegar vátryggingafélag hefur
greitt bætur vegna tjóns sem öku-
menn ollu af ásetningi eða með
stórkostlegu gáleysi. Á árinu 2004
bárust þar til bærri endurkröfu-
nefnd samtals 158 ný mál til úr-
skurðar. Af þessum málum sam-
þykkti hún endurkröfu að öllu
leyti eða að hluta í 140 málum. Á
árinu 2003 var heildarfjöldi mála
á hinn bóginn 117 og samþykktar
endurkröfur að öllu eða einhverju
leyti 104.
Endurkröfur á síðasta ári
námu samtals tæplega 48 milljón-
um króna. Þá er tekið tillit til við-
bótarendurkrafna í eldri málum.
Á árinu 2003 námu samþykktar
endurkröfur tæplega 33 milljón-
um króna. -jss
Endurkröfur tryggingafélaganna:
Lyfjaneysla vegur flungt
ÁSTÆÐUR ENDURKRÖFU
Ölvun 106
Ökuréttindaleysi 16
Lyfjaneysla 12
Glæfraakstur 5
KYNJASKIPTING
Karlar 111
Konur 29
EVRÓPUSAMBANDIÐ Eiríkur Berg-
mann Einarsson, stjórnmála-
fræðingur, segir að upplýsingar ut-
anríkisráðherra um samþykkt Evr-
ópusambandsgerða hér á landi séu
villandi. Í svari ráðherrans við fyr-
irspurn kom fram að undanfarinn
áratug hafi 2.527 Evrópusambands-
gerðir verið teknar upp í EES-samn-
inginn eða aðeins um sex og hálft
prósent af heildarfjölda ESB-gerða
á sama tímabili.
Eiríkur segir að ekki megi
blanda saman tilskipunum, reglu-
gerðum og ákvörðunum Evrópu-
sambandsins. Tilskipanirnar séu
þýðingarmestar og EFTA-ríkin taki
meirihlutann af þeim upp. Þá hafi í
svarinu ekki verið tekið tilllit til um
1.500 lagagreina í sjálfum EES-
samningnum. „Í þetta vantar sem
dæmi 250 blaðsíður af reglugerðum
frá árinu 1998, en mikil vinna er að
ganga úr skugga um fjölda þeirra.
Þar við bætist að ekkert tillit virðist
tekið til Schengen- og Dyflinnar
samkomulagsins um löggæslumál.
Jafnvel þótt öllu þessu sé ýtt til hlið-
ar stendur eftir að EFTA-löndin
taka upp nær allar tilskipanir sem
gilda um innri markaðinn svo-
nefnda,“ segir Eiríkur.
Björgvin G. Sigurðsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, lagði
fram fyrirspurn á þingi í gær þar
sem spurt var hversu margar ESB
tilskipanir Ísland hafi innleitt í sam-
ræmi við samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið, Schengen sam-
starfið og Dyflinnarsamninginn. - jh
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Norski Hægriflokkurinn:
ESB-umsókn
ári› 2007
NOREGUR Erna Solberg, leiðtogi
norska Hægriflokksins, segir að
árið 2007, þegar gera megi ráð fyrir
að stjórnarskrársáttmáli Evrópu-
sambandsins verði genginn í gildi,
verði Norðmenn að gera aftur upp
hug sinn til aðildar.
„Þá munu ný aðildarríki knýja
dyra, þá hefst nýr kafli og þá verð-
um við að taka afstöðu,“ sagði Sol-
berg á landsþingi flokksins. Solberg
vill að Norðmenn leggi á ný inn að-
ildarumsókn á næsta kjörtímabili
Stórþingsins. Forsenda fyrir um-
sókn sé þó að Verkamannaflokkur-
inn styðji hana líka og að hún njóti
öruggs meirihlutastuðnings al-
mennings. ■
EFTA-ríkin taka upp meirihluta allra tilskipana ESB segir sérfræðingur
Margt vantali› í svari utanríkisrá›herra
EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON Í svari
utanríkisráðherra vantar meðal annars
1.500 lagagreinar úr EES-samningnum.
EFNAVERKSMIÐJA BRANN Stór
efnaverksmiðja í Gautaborg í Sví-
þjóð brann til kaldra kola í gær,
en engin slys urðu á fólki. Þykkan
eiturefnareyk lagði yfir nærliggj-
andi nágrenni og var mörghund-
ruð manns fyrirskipað að halda
sig innandyra. Þetta er einn mesti
bruni í Gautaborg á síðari árum
en tjón er metið á um 2-3 millj-
arða króna.
NEYTENDUR Auglýsingar Og Vodafo-
ne og Símans um ótakmarkað nið-
urhal á netinu með sérstökum
áskriftarleiðum eru villandi og
bæði fyrirtæki setja takmörk á það
gagnamagn sem hægt er að fá með
þeim hætti í mánuði hverjum.
Hjá Símanum er auglýst áskrift-
arleið 3 þar sem skýrt er kveðið á
um ótakmarkað niðurhal áskrif-
enda. Í smáa letri samningsins má
þó einnig lesa að fyrirtækið áskilji
sér rétt til að tak-
marka þjón-
ustuna sé
áskrifandinn
uppvís að
óhóflegu erlendu niðurhali. Bregð-
ist viðkomandi ekki við muni Sím-
inn takmarka þjónustuna tíma-
bundið.
Sama er uppi á teningnum hjá
Og Vodafone en á heimasíðu fyrir-
tækisins er hvergi minnst á tak-
markanir af neinu tagi. Viðskipta-
vinir fyrirtækisins hafa engu að
síður fengið send aðvörunarbréf
þar sem niðurhal þeirra er komið
fram yfir þau mörk sem fyrirtækið
setur sjálft.
Eva Magnúsdóttir, kynningar-
fulltrúi Símans, segir að umrædd
mörk gildi þegar magn niðurhals
sé farið að hafa áhrif á aðra not-
endur þjónustunnar en magnið sé
slíkt að afar fá dæmi séu um að
þessu hafi verið beitt. - aöe
SVEKKJANDI Takmörk eru á því ótak-
markaða niðurhali gagna sem stóru
símafyrirtækin tvö auglýsa.
Auglýsingar um frítt eða frjálst niðurhal af netinu:
Takmörk hjá Og Voda-
fone og Símanum
Fréttablaðið/Vilhelm
HAFÖRN Á FLUGI Rótgróin óvild í garð arnarins á þessu svæði segir Kristinn Haukur
Skarphéðinsson dýravistfræðingur.
Gasbyssubóndi ber af sér sakir:
Ernir verpa aldrei
í Borgarhólma
DANIR SÚPA SEYÐIÐ AF REFSI-
TOLLUM Refsitollar Evrópusam-
bandsins á norskan eldislax hafa
ekki bara áhrif á norskt atvinnu-
líf. Fiskverksmiðja í Hitshals í
Danmörku hefur þurft að segja
upp 160 manns síðan í febrúar
vegna þessa en verksmiðjan hefur
unnið vörur úr norskum eldislaxi.
DANMÖRK