Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 67
Tveir vinsælustu þættirnir í sjón-
varpinu um þessar mundir eru
Lífsháski og Aðþrengdar eigin-
konur sem báðir eru sýndir á
RÚV. Athygli hefur vakið að hvor-
ugur þessara þátta er endursýnd-
ur en nú virðist Ríkissjónvarpið
ætla gera bragarbót á því. „Fjöldi
fólks hefur haft samband við okk-
ur og beðið okkur um að endur-
sýna þessa þætti. Við erum bara
að bregðast við því,“ segir Guðrún
Jónasdóttir, dagskrárfulltrúi inn-
kaupadeildar RÚV. „Þeir eru þess
eðlis að fólk vill ekki missa af ein-
um einasta þætti. Það verður al-
veg sjúkt í þetta,“ segir Guðrún
og bætir við að hún segist ekki
hafa áður upplifað slíkan áhuga.
„Fólk var byrjað að hringja í okk-
ur og spyrja um þættina löngu
áður en átti að byrja að sýna þá,“
segir hún og bætir við að þetta sé
nýbreytni hjá RÚV. „Við ætlum að
prófa þetta og sjá hvernig geng-
ur.“
Fyrstu þrír þættirnir af Lost
voru endursýndir í gærkvöld og
næstu þrír verða sýndir á föstu-
daginn. „Svo verða fjórir þættir
endursýndir á miðvikudagskvöld-
um einu sinni í mánuði,“ segir
Guðrún og því geta aðdáendur
Lífsháska sem hafa misst eitthvað
úr tekið gleði sína. „Þá er búið að
bæta við einum þætti,“ segir Guð-
rún en upphaflegur fjöldi Lost
voru tuttugu og þrír þættir en
þeir verða tuttugu og fjórir. „Þá
verður ákveðið á fundi á fimmtu-
daginn hvernig endursýningum
verður hagað á Aðþrengdum eig-
inkonum en ég get staðfest að þeir
verða endursýndir,“ segir Guð-
rún.
freyrgigja@frettabladid.is
Endurtekinn Lífsháski
LÍFSHÁSKI Þættirnir um strandaglópana hafa eignast stóran aðdáendahóp og nú stend-
ur til að þættirnir verði endursýndir reglulega.