Fréttablaðið - 17.05.2005, Síða 6
6 17. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Öxnadalur í Hörgárbyggð:
Tvær konur létust í hör›um árekstri
BANASLYS Tvær konur létust í
árekstri jeppa og fólksbíls í Öxna-
dal í Hörgárbyggð um klukkan
hálf sex á föstudag. Önnur konan
ók fólksbílnum og var ein í honum,
en hin var farþegi í jeppanum.
Ökumaður jeppans var fluttur á
slysadeild, en er ekki talinn í lífs-
hættu.
Slysið átti sér stað um einn kíló-
metra sunnan við bæinn Syðri-
Bægisá í Öxnadal. Loka varð veg-
inum í rúmar þrjár klukkustundir
vegna árekstursins, eða til um
klukkan níu á föstudagskvöldið.
Jeppinn var á leið til Akureyrar, en
fólksbíllinn á suðurleið. Þá lenti
þriðji bíllinn aftan á jeppanum
eftir áreksturinn og endaði út fyrir
veg, en skemmdist ekki mikið og
sakaði engan í honum.
Ekki er vitað hvað varð til þess
að bílarnir rákust saman, vegurinn
er á þessum stað beinn og greiður
og skilyrði til aksturs voru ágæt.
Lögreglan á Akureyri fer með
rannsókn málsins. - óká
Göng til Vestmannaeyja:
Jar›lög milli lands og eyja rannsöku›
JARÐGÖNG Íslenskar orkurann-
sóknir eru að hefja rannsóknir á
jarðlögum milli Landeyjarsands
og Vestmannaeyja. Þessar rann-
sóknir eru gerðar að frumkvæði
Vegagerðar ríkisins í því að
skyni að kanna aðstæður til jarð-
gangagerðar milli Vestmanna-
eyja og fasts lands.
Ýmsar rannsóknir hafa farið
fram á þessu svæði áður, þó að
engar nákvæmar rannsóknir séu
til um jarðlögin sjálf.
Ólafur Flóventz, forstjóri Ís-
lenskra orkurannsókna, segir
þessar rannsóknir ekki duga ein-
ar og sér til þess að fá úr því
skorið hvort það er gerlegt að
ráðast í gangagerð milli eyja og
lands, en rannsóknirnar munu
gefa betri mynd af ástandi jarð-
laganna á svæðinu.
Gunnar Gunnarsson aðstoðar-
vegamálastjóri segir þessar
rannsóknir nauðsynlegar til þess
að komast að því hversu þykk
lausu jarðlögin eru, því jarð-
göngin verða vitanlega að vera á
föstu bergi.
Mælingarnar fara að fram
með hljóðbylgjumælingum þar
sem endurvarp hljóðbylgnanna
frá litlum sprengjum er notað til
þess að ákvarða þykkt jarðlag-
anna. Áætlaður kostnaður við
rannsóknirnar er um 10 milljónir
króna.
- mh
Uppreisn í Úsbekistan
Úsbekar vir›ast ætla a› hrinda af sta› byltingu líkt og nágrannar fleirra í
Kirgisistan, Úkraínu og Georgíu hafa gert. Miklar róstur hafa veri› í borginni
Andijan í austurhluta landsins undanfarna daga.
FRÉTTASKÝRING Mótmælendur hafa
farið mikinn í borginni Andijan í
austurhluta Úsbekistans undan-
farna daga í mótmælum gegn rík-
isstjórn Islams Karimov. Meira en
700 manns hafa látist í landinu
síðan á föstudag þegar uppreisn-
armenn réðust í fangelsi í borg-
inni og frelsuðu þaðan 23 pólitíska
fanga. Krafa uppreisnarmann-
anna er skýr; þeir vilja ríkis-
stjórnina frá. Stjórnarherinn hef-
ur barið niður uppreisnarmenn
með miklu offorsi og stefnir í
mesta mannfall í slíkum aðgerð-
um í Asíu síðan Kínaher barði á
stúdentum á Torgi hins himneska
friðar árið 1989.
Nú þegar eru flóttamenn farn-
ir að streyma frá landinu og sér-
staklega reyna margir að flýja til
Kirgisistans en þarlend stjórn-
völd eru þó treg til að taka við
flóttamönnunum.
Undanfarnar vikur hefur risið
upp hreyfing manna sem mót-
mæla stjórnarháttum ríkisstjórn-
ar Islams Karimov sem hefur
haldið fast um stjórnartaumana
síðan Sovétríkin liðu undir lok
fyrir fjórtán árum. Mótmælend-
urnir líta gjarnan til nágranna
sinna í Kirgisistan sem hröktu
forseta sinn, Askar Akajev, frá
völdum og þá einnig til Appelsínu-
og Rósabyltinganna í Úkraínu og
Georgíu. Kabuljon Parpiyev, leið-
togi uppreisnarmanna, sagði í
samtali við AP-fréttastofuna að
engan bilbug væri að finna á mót-
mælendum og þeim væri sama
þótt það myndi kosta hundruð
mannslífa enn að koma stjórn-
völdum frá.
Rússar eru farnir að saka
Bandaríkin og fleiri lönd um að
grafa meðvitað undan Moskvu-
hollum ríkisstjórnum í fyrrver-
andi Sovétlýðveldum. Nikolaj
Patrúsjeff, yfirmaður rússnesku
leyniþjónustunnar FSB, heldur
því fram að Bandaríkin beiti óháð-
um félagasamtökum til að njósna
og ýta undir róstur til að tryggja
að stjórnmálamenn sem vilja
halla sér til vesturs komist að í
sem flestum fyrrverandi Sovét-
lýðveldum.
Nýverið hrósaði George Bush
Bandaríkjaforseti Georgíumönn-
um fyrir Rósabyltinguna og var
ákaft hylltur í heimsókn sinni
þangað. oddur@frettabladid.is
Ætlar flú á leik í
Íslandsmótinu í fótbolta?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Nær FH a› verja Íslands-
meistaratitilinn í fótbolta?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
71%
29%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
N á tali hjá Hemma Gunn
Sunnudaga kl.16-18:30
GUNNAR GUNNARSSON Segir nauðsynlegt
að rannsaka jarðlög milli lands og eyja
betur áður en umræða um málið fer
lengra.
RÓSTUR Í ÚSBEKISTAN
Fregnir herma að um
700 manns hafi látist
í átökum stjórnarhers
og uppreisnarmanna
síðan á föstudag.
HALLDÓRA
ÁRNADÓTTIR
EDDA SÓLRÚN
EINARSDÓTTIR
ÁREKSTUR Í ÖXNADAL Í HÖRGÁRBYGGÐ Slysið átti sér stað á beinum vegi sunnan við bæ-
inn Syðri-Bægisá í Öxnadal. Ekki er vitað hvað varð til þess að bílunum laust saman.
M
YN
D
/G
EI
R
A.
G
U
Ð
ST
EI
N
SS
O
N
NÖFIN HINNA LÁTNU
Konurnar sem létust eftir bílslysið við
Syðri-Bægisá á föstudaginn hétu
Halldóra Árnadóttir og Edda Sólrún
Einarsdóttir.
Halldóra, sem var farþegi í jeppan-
um, var 63 ára, til heimilis að Kvista-
gerði 2 á Akureyri. Hún lætur eftir sig
eiginmann og fjóra uppkomna syni.
Edda Sólrún var 49 ára, til heimilis að
Baldursgötu 10 í Reykjanesbæ. Hún
lætur eftir sig tvo uppkomna syni.