Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 2
2 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL „Meginmálið er að það
reynir á hvort þessi stefnumótun
spítalans sé lagalega réttmæt eða
ekki,“ sagði Jóhannes M. Gunnars-
son lækningaforstjóri Landspítala-
háskólasjúkrahúss um málshöfðun
fyrrverandi yfirlæknis á geðsviði
LSH á hendur spítalanum. Jóhann-
es bætti við að hann teldi stefnu-
mótunina „siðferðilega hafna yfir
efa hvað réttmæti varðaði.“
Læknirinn, Tómas Zoega, hefur
höfðað mál gegn sjúkrahúsinu til
ógildingar á breytingu á stöðu
sinni. Forsagan er sú, að í desem-
ber 2001 samþykkti yfirstjórn LSH
að yfirlæknar skyldu starfa í fullu
starfi á sjúkrahúsinu. Þeim skyldi
óheimilt að starfa annars staðar,
með tilteknum undantekningum.
Þar með var þeim óheimilt að reka
sjálfstæðar einkastofur úti í bæ, en
það hafði Tómas gert um árabil.
Þessu hafnaði hann.
Þann 1. maí gerði yfirstjórn
LSH þær breytingar á starfi hans
og verksviði á spítalanum að hann
myndi gegna stöðu sérfræðings
þar. Hafði hann þá með bréfi frá
forstjóra sjúkrahússins í lok apríl
verið leystur frá stjórnunarskyld-
um sem fylgja starfi yfirlæknis á
geðsviði.
Tómas telur þessar aðgerðir
spítalans varðandi starf sitt stang-
ast á við lög. -jss
JÓHANNES M. GUNNARSSON Telur stefnumót-
un spítalans siðferðilega hafna yfir allan efa.
DÓMSMÁL „Málið er að því leyti
óvenjulegt hvaða eiginleikar
umsækjandans um ættleiðinga-
leyfi eru látnir ráða niðurstöðu
dómsmálaráðuneytisins. Það er
fyrst og fremst þyngdin,“ sagði
Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður um mál konunn-
ar sem fékk ekki að ættleiða
barn vegna ofþyngdar hennar,
samkvæmt úrskurði dómsmála-
ráðuneytisins.
Sigríður Rut Júlíusdóttir hér-
aðsdómslögmaður hefur rekið
þetta mál, en Ragnar mun flytja
það fyrir héraðsdómi Reykjavík-
ur í dag í fjarveru hennar.
„Ráðuneytið reynir að blanda
aldri stefnanda inn í til að styrkja
niðurstöðuna,“ sagði Ragnar. „En
auðvitað vitum við og getum sýnt
fram á að fjölmargir hafa fengið
leyfi til ættleiðingar þótt þeir
væru eldri en 45 ára.“
Ragnar sagði að umrætt mál
væri einsdæmi sem dómsmál
hér á landi og prófmál á ýmsa
vegu, til að mynda hvað varðaði
mannréttindaþátt og mismunun.
-jss
Reknir og leiddir burt
í fylgd öryggisvar›ar
Tveimur starfsmönnum Alcan var tilkynnt uppsögn í síma en annar var flá í
sjúkrame›fer›. Starfsmönnum hefur veri› sagt upp án sk‡ringa og fleir látnir
yfirgefa svæ›i› umsvifalaust í fylgd öryggisvar›ar.
STARFSMANNAMÁL „Þeir eru að
vinna eftir einhverri mannauðs-
stefnu þar sem allir eiga að falla
svo vel inn í liðið að þeir sem ekki
falla alveg inn í þetta eru bara
látnir fara,“ segir Gylfi Ingvason,
trúnaðarmaður starfsmanna ALC-
AN í álverinu við Straumsvík.
Mikil óánægja er meðal
starfsmanna með að fimm
starfsmönnum hefur verið sagt
upp frá 1. mars og þykir mönn-
um sérlega harkalega að upp-
sögnunum staðið.
Markús Kristjánsson er einn
þeirra sem var rekinn. „Ég hafði
fengið leyfi til að fara í hádeginu
þar sem ég varð að fara í jarðar-
för. Klukkan hálftólf var ég svo
boðaður á fund og fékk reyndar
ekki að hafa trúnaðarmann með
mér eins og ég vildi. Þar var mér
sagt upp án nokkurra skýringa.
Svo var mér fylgt af svæðinu líkt
og fanga. Þannig lauk 30 ára
starfsferli mínum á þessum stað.“
Einn þeirra fimm sem sagt var
upp var í sjúkrameðferð á Stykk-
ishólmi þegar hringt var í hann og
honum tilkynnt að hans biði upp-
sagnarbréf þegar hann kæmi
heim. Að sögn Gylfa vildu for-
ráðamenn ALCAN tryggja í viður-
vist vitna að símtalinu að upp-
sögnin hefði verið kynnt starfs-
manni fyrir mánaðamót. Hann
var í meðferð vegna meiðsla sem
hann hlaut í starfi en ALCAN við-
urkennir ekki að meiðslin séu af
þeim toga og er mál hans nú hjá
lögfræðingi að sögn Gylfa.
Í öðru tilfelli var hringt í
starfsmann heim og honum til-
kynnt að honum bærist uppsagn-
arbréf eftir mánaðamótin.
Gylfi segir að starfsmenn séu
afar ósáttir við að mönnum sé
fylgt líkt og föngum út fyrir
svæðið eftir að búið er að segja
þeim upp.
Hrannar Pétursson upplýs-
ingafulltrúi ALCAN segir að hann
geti ekki tjáð sig um einstök mál
né einstaklinga. Hinsvegar segir
hann að mönnum hafi verið til-
kynnt um uppsagnir símleiðis þar
sem ekki væri öruggt að tilkynn-
ingin bærist með öðrum hætti.
Trúnaðarráðsfundur fór fram í
gær þar sem þessi mál voru rædd
og mun stjórn ALCAN berast
ályktun frá þessum fundi í dag.
Ekki náðist í forstjóra, starf-
manna- né ráðningastjóra ALCAN
í gær .jse@frettabladid.is
Blair um ESB-sáttmála:
Heitir fljó›ar-
atkvæ›i
BRETLAND, AP Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, lýsti því yfir í
gær að breskir kjósendur myndu
fá tækifæri til að greiða atkvæði
um staðfestingu stjórnarskrár-
sáttmála Evrópusambandsins,
óháð því hver dómur franskra
kjósenda verður um málið. At-
kvæðagreiðslan í Frakklandi fer
fram 29. þessa mánaðar og sam-
kvæmt skoðanakönnunum eru
fylkingar fylgjenda og andstæð-
inga sáttmálans hnífjafnir.
Hreyfing breskra andstæðinga
sáttmálans hóf í gær formlega
baráttu fyrir því að Bretar hafni
honum í hinni boðuðu þjóðarat-
kvæðagreiðslu. ■
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Framhaldsskólavist:
Börnin gætu
rá›i› fer›inni
FRAMHALDSSKÓLAR Nokkurrar óá-
nægju hefur gætt meðal foreldra
með að menntamálaráðuneytið
sendi nemendum í tíunda bekk en
ekki foreldrum þeirra bréf um
hvernig hægt væri að sækja um
skóla á netinu
Reiður faðir hafði samband við
Fréttablaðið og sagði frá því að
bréfin væru stíluð á nemendur og
þeim því í sjálfsvald sett hvort
forráðamenn séu hafðir með í ráð-
um þegar sótt er um skóla.
Samkvæmt upplýsingum frá
menntamálaráðuneytinu þá hafa
menn þar áttað sig á mistökunum
og því send út ný bréf, í þetta skipt-
ið stíluð á forráðamenn. -oá
Fjármálasvindl:
66 milljar›a
í bætur
BANDARÍKIN, AP Morgan Stanley
verður að greiða fjárfestinum
Ron Perelman andvirði 66 millj-
arða króna í skaðabætur. Þetta er
niðurstaða dómstóls í Flórída sem
komst að þeirri niðurstöðu að fyr-
irtækið hefði beitt svikum og
hjálpað Sunbeam að hafa fé af
fjárfestum í viðskiptum árið
1998.
Morgan Stanley hafði milli-
göngu um kaup Sunbeam á fyrir-
tækinu Coleman sem Perelman
átti. Fyrirtækið segir að Perelman
hafi hagnast á viðskiptunum þar
sem hann hafi fengið greitt and-
virði tíu milljarða króna fyrir fyr-
irtækið og losnað við skuldir fyr-
irtækisins upp á 34 milljarða. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLVELTA Á SNÆFELLSNESI
Bíll valt á veginum skammt vest-
an við Vegamót á Snæfellsnesi
um hádegisbilið í gær. Tveir
ferðamenn voru í bílnum sem er
bílaleigubíll. Bíllinn valt á hliðina
og hvorki farþegi né ökumaður
slasaðist. Bílnum var komið aftur
á réttan kjöl og þá gátu ferða-
mennirnir ekið sína leið.
ÍSJAKI Á EYJAFIRÐI Lögreglan á
Dalvík segir nokkuð marga hafa
komið til að berja ísjakann sem
lónir úti á firðinum augum. Jak-
inn bráðnar og minnkar hægt og
rólega og á meðan nætur eru
bjartar stafar sjófarendum lítil
hætta af honum. Hann er hins
vegar þeim mun tilkomumeiri.
ÁLFT KVEIKTI SINUELD Lögregla
og slökkvilið þurfti að slökkva
sinueld nærri Kirkjubæjar-
klaustri í fyrrinótt. Álft hafði
flogið á rafmagnsvír og kviknað í
henni sem og sinunni sem hún
lenti í auk þess sem rafmagn fór
af nálægum bæjum. Þegar elds-
upptök voru könnuð fannst álftin
eða það sem var eftir af henni.
SPURNING DAGSINS
Vilhjálmur, eigum vi› ekki a›
fyrirgefa vorum
skuldunautum?
„Jú, en um leið frelsa oss frá R-listanum.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn, sakar R-listann um óráðsíu
í fjármálum og segir skuldaaukningu borgarinnar
með ólíkindum.
MARKÚS KRISTJÁNSSON Í síðustu viku fékk Markús fyrrum starfmaður ALCAN að taka
poka sinn fyrirvaralaust og var fylgt út fyrir svæðið af öryggisverði. Þannig lauk 30 ára
starfsferli hans hjá fyrirtækinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR Hefur rekið
mál konunnar.
RAGNAR AÐALSTEINSSON Flytur málið í
Héraðsdómi í dag.
Lækningaforstjóri segir stefnumótun um vinnu lækna hafna yfir efa:
Læknir kærir Landspítalann
Kolmunnaveiði:
100 flúsund
tonn á land
SJÁVARÚTVEGUR Kolmunnaafli ís-
lenskra skipa á vertíðinni fór yfir
hundrað þúsund tonnin í fyrradag
þegar Hólmaborg SU landaði tæp-
um tvö þúsund tonnum á Eskifirði.
Íslensku skipin hafa nú veitt
103 þúsund tonn af þeim 345 þús-
und tonnum sem þeim er heimilt
að veiða. Að auki hafa erlend skip
landað 82 þúsund tonnum hér-
lendis og því hafa samanlagt
borist 185 þúsund tonn af
kolmunna á land.
Mest hefur borist á land hjá Síld-
arvinnslunni á Seyðisfirði, 33 þús-
und tonn, og næstmest hjá Eskju á
Eskifirði, 30 þúsund tonn. - bþg
Lögmaður konu sem synjað var um ættleiðingu:
Rá›uneyti› lét flyngdina rá›a
02-03 18.5.2005 22:10 Page 2