Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 8
1Hversu margir verða dregnir fyrirdóm vegna hryðjuverkanna í Beslan?
2Hverjir hafa gefið kost á sér til vara-formennsku í Samfylkingunni?
3Hvaða íslenska kvikmynd verður sýndá alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Shanghai?
SVÖRIN ERU Á BLS. 54
VEISTU SVARIÐ?
8 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Frítekjumark námslána afnumið og skerðingarhlutfall lækkað:
Tekjulægstu námsmenn græ›a ekkert
NÁMSLÁN Skerðingarhlutfall
námslána lækkar en frítekju-
mark er lagt niður samkvæmt
nýjum úthlutunarreglum sem
stjórn Lánasjóðs íslenskra náms-
manna hefur samþykkt. Grunn-
framfærsla námsmanna hækkar
jafnframt úr 79.500 krónum í
82.500 krónur.
Stærsta breytingin er sú að
skerðingarhlutfallið lækkar úr
33 prósentum tekna eftir skatt í
fjórtán prósent af öllum tekjum.
Hingað til hafa fyrstu 300 þús-
und krónur í tekjum ekki skert
námslánin en frítekjumarkið
fellur nú niður.
Samkvæmt útreikningum
lánasjóðsins hækka ráðstöfunar-
tekjur námsmanna um sjö pró-
sent að meðaltali. Fulltrúar
námsmanna benda hins vegar á
að afnám frítekjumarks kemur í
veg fyrir að námsmenn með lág-
ar tekjur hagnist á breytingun-
um. Því verða þau fimmtán pró-
sent námsmanna sem hafa lægst-
ar tekjur af kjarabót en á móti
kemur að aukin tækifæri opnast
fyrir námsmenn til að fram-
fleyta sér með vinnu. Þeir sem
hagnast mest á breytingunni eru
námsmenn með tekjur nálægt
skattleysismörkum. - bþg
Abu Ghraib:
Herma›ur
hl‡tur dóm
FORT HOOD, AP Herréttur í Texas
hefur dæmt Sabrinu Harman í
sex mánaða fangelsi fyrir að
misþyrma íröskum föngum í Abu
Ghraib-fangelsinu síðla árs 2003.
Á meðan yfirheyrslum stóð
brast Harman í grát og sagðist
sjá mjög eftir hegðun sinni.
Harman er annar hermaður-
inn sem er dæmdur fyrir mis-
þyrmingar í Abu Ghraib en í jan-
úar fékk Charles Graner tíu ára
dóm. Lynndie England bíður eft-
ir að refsing hennar verði ákveð-
in. Ekki er búist við að nokkur
hátt settur embættismaður verði
dreginn til ábyrgðar. ■
MIÐ-AUSTURLÖND
HEIMSMÁLIN RÆDD Á þriðja tug
nóbelsverðlaunahafa eru nú sam-
ankomnir í bænum Petra í
Jórdaníu til að ræða ýmis mein
sem hrjá heimsbyggðina, til
dæmis fátækt, sjúkdóma og of-
beldi. Á meðal verðlaunahafanna
eru Dalai Lama og Elie Wiesel.
Bandaríski leikarinn Richard
Gere er einnig á meðal fundar-
manna.
MÁTTI EKKI REYNA VIÐ DÓTTUR-
INA Sautján ára ísraelskur piltur
sem fór á fjörurnar við dóttur
rabbína nokkurs hefur stefnt
rabbínanum fyrir margvísleg
myrkraverk. Honum er meðal
annars gefið að sök að hafa látið
ræna piltinum, berja hann og
ógna með hnífi fyrir að stíga í
vænginn við stúlkuna.
Matur hefur lækka›
um rúman flri›jung
Matvöruver› heldur áfram a› lækka í flestum
verslunum en mest fló í verslunum Bónuss og
Krónunnar samkvæmt könnun ASÍ.
NEYTENDUR Vöruverð hefur lækk-
að umtalsvert hjá Krónunni,
Bónus og í Fjarðarkaupum síðan
um áramót en mun minna hjá
öðrum verslunum samkvæmt
þriðju verðkönnun Alþýðusam-
bands Íslands. Þetta er þriðja
könnun samtakanna á þessu ári
og vekur athygli að vöruverð
hefur hvergi hækkað síðan síð-
asta könnun var gerð um miðjan
mars.
Áberandi mikill munur er
milli lágvöruverslana og annarra
stórmarkaða á hæsta og lægsta
verði og reyndist munurinn á
dýrustu og ódýrustu vörukörf-
unni þannig vera um hundrað
prósent. Það er mun meiri munur
en mælst hefur áður í öðrum
könnunum ASÍ.
Mest hlutfallsleg lækkun á
vöruverði mældist í Bónusi en
vörukarfan þar lækkaði um 37
prósent milli kannana. Í Krón-
unni lækkaði verð um 33 prósent.
Aðrar verslanir standa þeim
nokkuð að baki. Í Fjarðarkaupum
lækkaði karfan um tæp fimmtán
prósent, tæp tíu prósent í Sam-
kaupum en minna en sex prósent
hjá Nóatúni, Hagkaupum og
Sparkaupum.
Reyndar metur Alþýðusam-
bandið það svo að ólíklegt verði
að teljast að þessi mikli munur
fái staðist til lengdar og reikna
með að saman dragi með versl-
unum þegar fram líða stundir en
þangað til njóta neytendur góðs
af.
Í umræddri vörukörfu voru
algengar mjólkurvörur, ávextir,
grænmeti, morgunkorn, kaffi,
ostur og brauð eða vörur sem að
jafnaði sjást á borðum fjöl-
skyldna hér á landi. Mest lækkun
í Bónus reyndist vera á fjórum
lítrum af nýmjólk en lækkunin
frá því í febrúar reyndist vera
65,8 prósent. Hjá Krónunni
reyndist kíló af grænum vínberj-
um hafa lækkað mest eða um
67,6 prósent og 150 gr af Camem-
bert-osti lækkaði hlutfallslega
mest í Fjarðarkaupum eða um
35,2 prósent.
albert@frettabladid.is
Vestur-Kongó:
Ebóla-veiran
enn á kreiki
BRAZZAVILLE, AP Starfsmenn Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar í Vestur-Kongó staðfestu í
gær að níu manns hefðu að und-
anförnu dáið úr ebóla-veikinni og
tveir til viðbótar væru smitaðir.
Sjúkdómurinn kom upp í
Itoumbi-héraðinu, 700 kílómetra
norðvestur af höfuðborginni
Brazzaville.
Sjúklingar sem smitast af
ebóla-veirunni fá mikinn sótthita
og blóð vellur úr vitum þeirra.
Sjúkdómurinn er bráðsmitandi
og enginn lækning er til við hon-
um. Á bilinu fimmtíu til níutíu
prósent þeirra sem smitast af
veirunni deyja innan nokkurra
daga.
Það er því mikið áhyggjuefni
ef veikin fer að láta verulega á
sér kræla á ný. ■
... gOÐur MeÐ GrIlLmAtnum
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
16
4
3
4
NÁMSMENN Í ÖSKJU Námsmenn með
tekjur nálægt skattleysismörkum hagnast
mest á breytingunum.
SABRINA HARMAN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
KJARABÓT FYRIR HEIMILIN Samkvæmt nýjustu verðkönnun ASÍ er enn verðstríð milli lág-
vöruverslananna Bónuss og Krónunnar en um hundrað prósenta verðmunur getur verið á
körfunni þar og í öðrum verslunum.
LÆKKUN VÖRUVERÐS
FRÁ 1. FEBRÚAR TIL 11. MAÍ
Sparverslun Hagkaup Nóatún
Samkaup
Fjarðarkaup
Krónan
Bónus
4,7% 4,9% 5,8%
9,8%
14,8%
33,3%
37,3%
08-09 18.5.2005 21.30 Page 2