Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 13
FIMMTUDAGUR 19. maí 2005 13
Dómur Hæstaréttar:
Fa›erni fæst
ekki sanna›
DÓMSMÁL Hæstiréttur hafnaði í
fyrradag kröfu manns um að gerð
verði lífsýnisrannsókn á látnum
manni til að fá úr því skorið hvort
sá sé líffræðilegur faðir manns-
ins. Áður hafði verið úrskurðað að
eiginmaður móður hans væri ekki
líffræðilegur faðir hans.
Barnalög veita í tilfellum sem
þessum heimild til dómsmála um
faðerni viðkomandi. Hinsvegar
þótti Hæstarétti maðurinn ekki
hafa komið fram með nægilegar
röksemdir varðandi grun sinn um
að sá er lífsýnið yrði rannsakað úr
væri lífræðilegur faðir hans.
-jse
Deilt um lögmæti mjólkursölu:
Semja vi› bændur um umframmjólk
NEYTENDAMÁL Mjólkursamlagið
Mjólka sem stofnað var í síðasta
mánuði hefur náð samningum
við tíu kúabændur sem munu
selja því mjólk sem þeir fram-
leiða umfram kvóta, Mjólka set-
ur sína fyrstu vöru á markað í
næsta mánuði. Afurðirnar eru
framleiddar hér á landi án
beinna styrkja frá hinu opinbera.
Bændasamtök Íslands sendu
frá sér tilkynningu þar sem þau
vekja athygli á því að ólöglegt
sé að selja mjólk innanlands
sem framleidd er umfram
greiðslumark án leyfis fram-
kvæmdarnefndar búvörusamn-
inga.
„Það ríkir atvinnufrelsi í
landinu og við erum ekki bundn-
ir að búvörusamningum svo við
þurfum ekki leyfi framkvæmd-
arnefndar,“ segir Ólafur M.
Magnússonar framkvæmda-
stjóri Mjólku.
Að fyrirtækinu standa átta
systkyni frá Eyjum ll í Kjós en
þau eru með um fimmtíu kýr.
Spurður hvað hann gerði við
mjólkina frá þeim nú þegar
framleiðsla er ekki komin í gang
sagði Ólafur að hann gæfi kálf-
um, lömbum og vinum hana. „En
frekar myndi ég reyna að
drekka hana alla heldur en að
setja hana inn í þetta ríkis-
kerfi,“ bætti hann við.
-jse
ÞUNGIR ÞANKAR Tuesday Ewusony, níger-
ískur lögreglumaður, stendur hugsi fyrir
utan lögreglustöð sína. Hann lenti í síð-
ustu viku í átökum við hóp ungmenna í
Port Harcourt sem mótmæltu drápi lög-
reglunnar á félaga þeirra.
Á KJÖRSTAÐ Kjörsókn var ágæt um helgina
en þetta er í þriðja sinn í 3.000 ára sögu
landsins sem Eþíópíumenn fá að kjósa sér
ráðamenn.
Byltingarflokkur alþýðunnar:
Hefur flegar
l‡st yfir sigri
ADDIS ABABA, AP Byltingarflokkur
alþýðunnar, stjórnarflokkurinn í
Eþíópíu, hefur þegar lýst yfir
sigri í þingkosningum sem þar
fóru fram um helgina en talsmað-
ur hans viðurkenndi þó að stjórn-
arandstaðan hefði sótt örlítið í sig
veðrið. Leiðtogar hennar segja
hins vegar ótímabært að tilkynna
úrslit enda eigi eftir að telja at-
kvæði stórs hluta kjósenda.
Á síðasta kjörtímabili hafði
stjórnarflokkurinn 95 prósent
sæta á eþíópíska þinginu.
Eftirlitsmaður á vegum Evr-
ópusambandsins sagði að kosn-
ingarnar hefðu farið tiltölulega
heiðarlega fram en hann átaldi þó
stjórnina fyrir að lýsa yfir sigri
svo snemma. ■
HRAFN JÖKULSSON Höfundur Skáksögu Ís-
lands sem var styrkt um hálfa milljón
króna.
Menningarsjóður:
Hæstu styrkir
hálf milljón
STYRKIR Menningarsjóður hefur
úthlutað 17,5 milljónum króna í
styrki til 69 verkefna. Færri
fengu en sóttu um því alls sóttu
109 einstaklingar, fyrirtæki,
stofnanir og félög um styrki að
andvirði 123 milljóna króna.
Hæstu styrkirnir nema hálfri
milljón króna. Þá fengu Ágúst Þór
Árnason vegna Stjórnarskrárbók-
arinnar, Edda útgáfa vegna Skák-
landsins Íslands og skáksögu
heimsins sem Hrafn Jökulsson
skrifar og Háskólaútgáfan vegna
útgáfu á ávörpum, fyrirlestrum
og ræðum Matthíasar Johann-
essens í ritstjórn Ástráðs Ey-
steinssonar.
- bþg
ÓLAFUR M. MAGNÚSSON Ólafur M. Magn-
ússon framkvæmdastjóri Mjólku segist
ekki sjá hvaða almannahagsmunum hann
sé að ógna með því að kaupa mjólk af
kúabændum og furðar sig á viðbrögðum
Bændasamtaka Íslands.
12-13 18.5.2005 20.45 Page 3