Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 16
GÁÐ AÐ GÆSUNUM Þetta reffilega lama- dýr hafði góðar gætur á þessari gæsafjöl- skyldu sem fékk sér göngutúr í grasinu á bóndabæ í Colorado í Bandaríkjunum þar sem þau öll búa. 16 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR Deilt um atburðina í Úsbekistan: Rannsóknar krafist á skothrí› ÚSBEKISTAN, AP Mannréttindafull- trúi Sameinuðu þjóðanna, tals- menn fleiri alþjóðastofnana og ráðamenn ýmissa ríkja heims kölluðu eftir því í gær að óháðum aðilum yrði falið að rannsaka ásakanir um að hermenn í Ús- bekistan hefðu skotið til bana hundruð mótmælenda í óeirðum þar í lok síðustu viku. Fulltrúar stjórnvalda í Ús- bekistan fylgdu í gær nokkrum erlendum erindrekum og blaða- mönnum í örstutta heimsókn til Andijan í Fergana-dal austast í landinu, þar sem blóðbaðið átti sér stað. Hinum erlendu gestum sem farið var með á vettvang var í skyndingu sýnt fangelsið þar sem átökin áttu upptök sín á föstudag, og stjórnsýslubygging sem rústað var í uppþotunum. Einu heima- mennirnir sem gestunum var leyft að tala við voru foreldrar lögreglumanns sem særðist til ólífis í óeirðunum, en þeir sögðu stjórnvöld fara rétt með hvað gerðist. Samkvæmt frétt AP lýsti leið- togi uppreisnarhóps herskárra múslima í landamærabænum Korasuv því yfir í gær að hann og fylgismenn hans hyggist koma á íslömsku ríki í landinu. - aa Bygging álvers fyrir austan: Minni verktakar ósáttir IÐNAÐUR „Ég hef heyrt af þessu undanfarið en það kæmi mér ekki á óvart að þeir uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru,“ segir Jón Ingi Kristjánsson, formaður Starfsgreinasambands Austur- lands. Borið hefur á óánægju verktaka fyrir austan land, og þá smærri verktaka sérstaklega, vegna þess að ekki fá allir bita af þeirri sneið sem í boði er við upp- byggingu álvers Alcoa á Reyðar- firði. Allnokkrir verktakar starfa nú þegar fyrir Bechtel, sem byggir álverið fyrir hönd Alcoa, en meðal þeirra eru fáir heimamenn og hafa gagnrýnisraddir heyrst vegna þess enda hafi í upphafi verið talað um að heimamenn nytu sérstaklega forgangs þegar kæmi að störfum tengdum álvers- framkvæmdum. Jón segir að vandamálið sé að einhverju leyti þær ströngu kröf- ur sem byggingaraðilinn gerir en þær reglur eru einsdæmi á Ís- landi. „Þær eru mun meiri en við höfum nokkurn tíma séð áður og það getur hafa staðið í mörgum sem eiga slíku ekki að venjast.“ -aöe INNFLUTNINGUR Innflutningur á am- erískum bílum, nýjum eða notuð- um, hefur aukist gríðarlega síð- ustu mánuði og fer þessi innflutn- ingur að stærstum hluta fram á vegum einyrkja sem flytja inn bíl- ana í nafni kaupendanna og firra sig þar með ábyrgð. Snorri Páll Jónsson, framkvæmdastjóri fyr- irtækisins IB ehf. á Selfossi, segir að verð sem viðgangist á mark- aðnum séu platverð. Egill Jó- hannsson, forstjóri Brimborgar, tekur undir þessa skoðun. „Það er altalað að það kemur nánast ekki bíll til landsins nema 5.000 dollarar séu greiddir undir borðið og gefinn út lægri reikn- ingur sem þessu nemur. Menn spara vörugjöldin því að þau eru yfirleitt hæst á þessum bílum og virðisaukann líka. Auðvitað hefur Tollurinn ákveðnar leiðir til að koma í veg fyrir þetta en þegar innflutningurinn er svona gríðar- lega mikill þá hef ég enga trú á að Tollurinn anni því,“ segir Egill. Bæði IB, sem sérhæfir sig í innflutningi nýrra og notaðra bíla, og Brimborg eru í sambandi við sölumenn í Bandaríkjunum og telja stjórnendur beggja fyrir- tækja að ekki sé hægt að bjóða ameríska bíla jafn ódýrt og gert er án þess að eitthvað sé athuga- vert við það. „Innflytjendurnir fá gefinn út reikning erlendis sem hefur verið lækkaður til að lækka vörugjöld og virðisaukaskatt. Þannig er hægt að bjóða bílana á betra verði,“ segir Snorri Páll. „Toll- stjóraembættið hefur gert ítrek- aðar tilraunir til að rannsaka bíla- innflutninginn frá Bandaríkjun- um. Ef verðið passar ekki við al- mennt viðmiðunarverð er ástæð- an sú að gefinn hefur verið út rangur reikningur. Við sem versl- um beint við heildsala í Banda- ríkjunum og kaupum hundruð bíla á ári vitum að einstaklingur getur ekki fengið bíla á 20-30 prósentum lægra verði.“ Tollstjórinn í Reykjavík, Snorri Olsen, segir að embættið fylgist með innflutningi bíla frá Banda- ríkjunum og sín tilfinning sé sú að tilvik með fölsuðum reikningum séu ekki hlutfallslega fleiri en áður og reikningum sé ekki vísað oftar til hliðar vegna fráviks frá markaðsverði en áður. Í innflutn- ingi á notuðum bílum kunni þó að vera meiri hætta á fölsuðum reikningum. ghs@frettabladid.is RÚSSLAND UPPREISNARMAÐUR DREPINN Rússneskar hersveitir hafa ráðið tsjetsjenska uppreisnarmanninn Alash Daudov af dögum. Yfirvöld grunuðu hann um að hyggja á stórfellda efnavopnárás á al- menna borgara en auk þess er hann bendlaður við gíslatöku í leikhúsi í Mosvku árið 2002 og ódæðin í Beslan í fyrra. Grænfriðungar handteknir: Hlekkju›u sig vi› færibönd LONDON, AP Mótmælendur úr röðum Grænfriðunga voru handteknir í byrjun vik- unnar eftir að hafa hamlað starfi í verk- s m i ð j u m Land Rover í gær. Með að- gerðum sínum vildu Grænfriðung- ar mótmæla Range Rover-jeppan- um sem þeir segja stuðla að lofts- lagsbreytingum með miklum út- blæstri á gróðurhúsalofttegundum. Snemma í gær hlekkjuðu Grænfriðungarnir sig við færi- band í verksmiðjunni og kröfðust þess að móðurfélag Land Rover, Ford, hætti að framleiða bílinn og markaðssetja hann fyrir borgar- búa. Grænfriðungarnir dulbjuggu sig sem starfsmenn til að komast inn í verksmiðjuna. ■ SVÍÞJÓÐ HÓTELBRUNI Í GÄVLE Stórbruni varð í fyrrdag í bænum Gävle, um 170 km norður af Stokk- hólmi, er hótel bæjarins brann því sem næst til kaldra kola. Engin slys urðu á fólki en slökkviliðsmenn börðust við eld- inn langt fram eftir degi. Grun- ur leikur á að eldsvoðann megi rekja til íkveikju. LÖGREGLUFRÉTTIR INNBROT Í HLÍÐUNUM Lögregl- an í Reykjavík fékk allnokkrar tilkynningar um innbrot í bíla í Hlíðunum í fyrrinótt. Þjófarnir voru á höttunum eftir geisla- spilurum og öðru lauslegu í bíl- unum sem auðvelt er að koma í verð. BÍLVELTA Á EYRARBAKKA Bíll valt á Eyrarbakka í gærmorgun en ökumaður hans slasaðist þó ekki. Bíllinn er að því er talið er ónýtur. Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 Dúndur Tilboð í tilefni Eurovision Eurovision humar ...........................3900 Risarækjur....................................... 1990 Túnfiskur .........................................1990 Smjörkrydduð lúðusteik..................1490 Hvítlauksmarineraður steinbítur.....1290 Hunangslegin laxasteik...................1290 Piparmarineruð keilusteik..............1290 Eigum fullt af harðfiski sem gott er að japla á, meðan stigagjöfin er!!!!! AXANDI UMFANG Byggingarfram- kvæmdir aukast jafnt og þétt á Reyð- arfirði í tengslum við fyrirhugað álver en allnokkrir verktakar eru ósáttir við verkefnaleysi á sama tíma. EGILL JÓHANNSSON Forstjóri Brimborgar segir ýmislegt athugavert við innflutning einyrkja á bílum. BÍLAR Á HAFNARBAKKANUM Mikill bílainnflutningur hefur verið undanfarið. Vegna lágs gengis dollars hefur sérstaklega mikið verið flutt inn af bæði nýjum og notuðum bílum frá Bandaríkjunum. Í ANDIJAN Zakir Almatov, innanríkisráð- herra Úsbekistans, talar við erlenda erindreka og blaðamenn á vettvangi í Andijan í gær. MALAVÍ BRÚÐKAUPIÐ BORGAÐ ÚR RÍKIS- KASSANUM Yusuf Mwawa, menntamálaráðherra Malaví, hef- ur verið handtekinn og leystur frá embætti eftir að upp komst að hann hafði dregið sér fé úr ríkis- kassanum og notað það meðal annars til að fjármagna brúðkaup sitt og Diönu Nkhulember, blaða- fulltrúa varaforseta landsins. Ver› á amerískum bílum sagt platver› Tugir einyrkja flytja inn ameríska bíla fyrir a›ra einstaklinga. Bílarnir eru í mörgum tilfellum fluttir inn í nafni vi›skiptavinarins og firrar innflytjandinn sig flar me› ábyrg›. Umbo›in telja a› ver›i› s‡nist lágt vegna blekkinga. 16-17 18.5.2005 21.16 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.