Fréttablaðið - 19.05.2005, Side 32
Góðir skór
Það er afar mikilvægt að vera á góðum skóm á ferðalagi og ekki ráðlegt að leggja í hann
á nýjum skóm. Best er að ganga nýja skó vel til áður en farið er í ferðalag eða jafnvel
hafa gamla góða skóparið í töskunni þar sem auðvelt er að grípa til þess.[ ]
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
Það er ótrúlega gaman að ferðast með lest um Evrópu!
Með Interrail kort í farteskinu eru þér allar leiðir færar.
Interrail er fyrir fólk á öllum aldri sem vilja ferðast á ódýran hátt.
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
xxx
Keyrir ferðamenn á trukk
um Suður-Ameríku
Svava Ástudóttir fór í ævintýraferð með hópi fólks sem ferðaðist um á stórum trukk. Hún heill-
aðist gjörsamlega af ferðamátanum, sem varð til þess að hún sótti um starf hjá fyrirtækinu og
mun nú fara sína fyrstu ferð í sumar sem hópstjóri um Suður-Ameríku.
Jónsmessunæturganga Útivistar
Að fá að vera á göngu og fylgjast með sólinni rétt
tylla sér þar sem jökulinn ber við himin og rísa
einu augnabliki síðar eru forréttindi.
Laugavegi 178, sími 562 1000
www.utivist.is
Hvar verður þú helgina
24.-26. júní?
Bókun stendur yfir
nokkur sæti laus
„Þetta er svo hrikalega gaman og
er hinn fullkomni lífsstíll ef mað-
ur hefur gaman af því að ferðast,“
segir Svava Ástudóttir, sem mun
fljótlega taka við sinni fyrstu ferð
sem hópstjóri á stórum trukk sem
keyrir um Suður-Ameríku fyrir
fyrirtækið Dragoman.
„Áður en maður hefur störf
er níu mánaða þjálfun þar sem
nemendur læra meðal annars
bifvélavirkjun, enda verða leið-
sögumenn að geta gert við bílinn
hvar og hvenær sem eitthvað
kemur upp á. Auk þess þarf mað-
ur að fara eina ferð til að læra
rúntinn. Maður þarf að vera við
öllu búinn og geta tekist á við að-
stæður hverju sinni,“ segir
Svava, sem einnig þurfti að ná
sér í meirapróf og próf í skyndi-
hjálp. Bíllinn sem hún keyrir
rúmar vel um 25 manns auk þess
sem hann geymir hluti sem þarf
til ferðalagins. „Við erum meira
að segja með ísskáp í bílnum og
matar- og vatnsbirgðir sem duga
í 2-3 vikur ef eitthvað kemur upp
á,“ segir Svava. Auk hennar er
bílstjóri í bílnum en hún er sú
sem leiðir hópinn þó hún sjái
einnig um að keyra. „Við skipt-
umst á að keyra en ég leiði hóp-
inn,“ segir Svava.
Á ferðalaginu er gist á hótelum
eða tjaldstæðum eða bara tjaldað
úti í náttúrunni eða sofið á strönd-
inni. Bílstjórinn og hópstjórinn
gista hins vegar yfirleitt uppi á
bílnum.
Áður en hún fór á vit ævintýr-
anna starfaði hún sem stílisti við
verslunina ISIS í Smáralindinni
og segist hún ekki hafa nein plön
um framtíðina að ævintýrinu
loknu. „Ég geri ráð fyrir að vera í
þessu næstu 4-5 árin og vonandi
fæ ég að fara til Kína og Afríku,“
segir Svava.
„Þetta er auðvitað ekki fyrir
hvern sem er. Bíllinn er heimili
manns og maður er í mjög nánu
sambandi við samstarfsmann
sinn og því getur þetta reynst
erfiðara en hjónaband þar sem
maður hefur ekkert prívat,“ segir
Svava og bætir við að góð
stemmning myndist alltaf í hópn-
um á ferðalaginu og öllum líði vel.
Hún segir þessar ferðir alls
ekki vera neinar venjulegar skoð-
unarferðir heldur sé bíllinn að-
eins fararskjótinn. „Ferðirnar
miðast við að fleygja manni í
miðja menninguna og þær snúast
ekki bara um að keyra heldur að
kynnast menningu, landi og þjóð,“
segir Svava. Hún segir að fyrir-
tækið Dragoman sé á nokkrum
stöðum með verkefni þar sem
fólk láti gott af sér leiða og að-
stoði jafnvel við kennslu í bekkj-
um í Afríku eða hjálpi til við að
útbúa vatnsbrunna, auk þess sem
boðið sé upp á sérstakar fjöl-
skylduferðir.
„Ég á ekki orð til að lýsa því
hvað þetta er meiriháttar, eftir að
maður fer í svona ferð kemur
maður ekki sama manneskja til
baka,“ segir Svava.
Upplýsingar um ferðirnar er
að finna á vefsíðunni Drago-
man.com eða hjá Stúdentaferðum
á Exit.is.
kristineva@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Svava Ástudóttir ætlar sér að skoða heiminn næstu 4-5 árin.
Svava ferðaðist um Egyptaland á meðan
hún var að undirbúa sig fyrir starfið. Hér
smellir hún kossi á Sfinxinn í Egyptalandi.
Hér er Svava með leiðsögumanni í
eyðimörkinni.
Hér má sjá bílinn sem Svava mun keyra
um Suður-Ameríku.
32-33 (04-05) Ferðir 18.5.2005 16.46 Page 2