Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 35
FIMMTUDAGUR 19. maí 2005
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
Sumarlínan 2005
Glæsilegt úrval af bikiníum
Ný sending komin.
Fimmtugasta og áttunda alþjóða-
kvikmyndahátíðin stendur nú
yfir í Cannes í Suður-Frakklandi.
Um leið og þetta er stærsta kvik-
myndaveisla í Evrópu er hátíðin
mikil tískuveisla. La Crosette er
aðal tískugatan í Cannes á móti
ströndinni þar sem smástirnin
baða sig enn í dag fyrir ljós-
myndara. En hátíðin á sér að-
draganda bæði fyrir stjörnurnar
og tískuhúsin því hver og ein
dama þarf að velja kjól sem er
einstakur. Ef samböndin eru góð
getur hún fengið fötin lánuð eða
gefins en ef hún vill eða kann
ekki að nota áhrif sín kaupir hún
dressið. Oftast fara þessar þreif-
ingar í gegnum blaðaskrifstof-
urnar hjá tískuhúsunum. Þær sjá
um hvað fer í blöðin og um leið
hvað á að gefa frægu fólki til að
komast í blöðin sem svarar
kostnaði sem auglýsing.
Monica Bellucci var kynnir á
opnunarkvöldi Cannes-hátíðar-
innar 2003. Hún kom sjálf í búð-
ina þar sem ég vann í leit að
skóm og dró upp kortið sitt, sem
hún gerði í hvert sinn er hún kom
til okkar. Emmanuelle Seigner
leikkona (kona Roman Polanski,
lék á móti Catherine Deneuve í
„Place Vendôme“) var í uppá-
haldi hjá Tom Ford. Hún fékk
hreinlega sölumenn heim til að
velja eða kom í fylgd blaðafull-
trúans sjálf. Sjálfsagt hefur ekk-
ert verið borgað af því sem hún
fékk. Önnur smástjarna sem
kannski enginn þekkir á Fróni,
Amira Casal, hafði miklar
áhyggjur af því að ég vissi ekki
hver hún væri, endurtók þrisvar
nafnið sitt, hafði sérstakt sam-
band við blaðafulltrúann og fékk
því eitt og annað. En bak við
stjörnustælana var ósköp vina-
leg en óörugg stúlka sem varð
óskaplega hrifin af mér þegar
hún vissi að ég væri Íslendingur
og sagði að íslenskar konur væru
víst svo unglegar af því að þær
drykkju lýsi alla daga (sjálfsagt
milli vokdasjússana!).
Á miðvikudagskvöld í síðustu
viku í Cannes voru bæði stóru
tískuhúsin í sviðsljósinu eins og
minni spámenn. Catherine
Deneuve, ein frægasta leikkona
Frakka á alþjóðamælikvarða og
mótleikari Bjarkar í „Dancer in
the Dark“, var í fjólubláum Yves
Saint Laurent kjól úr næstu vetr-
arlínu. Deneuve hlaut einmitt
gullpálmann að þessu sinni fyrir
ævistarf sitt. Carole Bouquet
valdi ljósgrænan síðan frakka
með útsaumi frá Prada en hún
var áður andlit Chanel-tískuhúss-
ins og James Bond-stúlka.
Charlotte Gainsbourg, dóttir
Serge Gainsbourg og Jane Birk-
in, var í svörtum kjól með fjöðr-
um frá Balenciaca. En Salma
Hayek stal senunni í svarta og
eggaldinbláa kjólnum, hún var
kynþokkafyllst allra.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Stjörnur, sól og sandur í Cannes
Náttúrulegur þokki
GLITRANDI OG FRÍSKLEG SUMARLÍNA.
Sumarlínan frá N˚7 er náttúruleg og
glitrandi. Hún inniheldur meik og hylj-
ara sem gefa áferð gallalausrar húðar,
bleikan og frísklegan kinnalit sem gef-
ur sumarlegan gljáa og skemmtileg
augnskuggabox með fjórum glitrandi
litum. Auk þess er að finna augn-
skugga, maskara og glitrandi bleikan
gloss sem allt er nýtt til að draga fram
náttúrulegt og sumarlegt útlit. Sumar-
lína N˚7 undirstrikar áherslunar í sum-
arförðuninni sem er náttúruleg, glitr-
andi og frískleg.
Náttúrulegir og
glansandi
NÝIR KINNALITIR FRÁ MAC
Í sumar kynni MAC tvo nýja og fallega
kinnaliti í takmörkuðu upplagi. Þetta
eru tvítóna kinnalitir, annars vegar í
bleiku og hins vegar í brúnu. Sá brúni
er mattur og gefur náttúrulegt útlit en
sá bleiki er glansandi og glitrandi. Í
þeim mætast áherslan á förðun í sum-
ar, sem er náttúrulegt og glansandi út-
lit þar sem húðin lítur út fyrir að vera
örlítið sólbrún með glitrandi áferð.
Klútur 1.420,- Jakkapeysa 4.480,-
Belti 1.780,- Pils 4.480,-
Skór 3.220,-
VÖRUR, NÝ SENDING
GLÆSILEGT ÚRVAL
Nánar á netsíðu:
www.svanni.is
SENDUM LISTA ÚT Á LAND
SÍMI 567 3718
SUMAR
2005
Gerum göt í eyru með Blomdahl
húðvinsamlegum skartgripum!
Eftirtaldir aðilar nota BLOMDAHL MEDICAL BEAUTY SYSTEM
Brúskur Höfðabakka, Didrik Spa Faxafeni, Gullsmiðja Óla Smáralind, Hársnytistofan Pílus Mosfellsbæ,
Meba Rhodium Smáralind, Rhodium Kringlunni, Meba úra og skartgripaverslun Kringlunni, Ósæð
Hverfisgötu, Snyrtistofan Greifynjan Árbæ, Snyrtistofan Mist Grafarvogi, Lipurtá Setbergi, Hárhús Kötlu
Akranesi, Naglasnyrtistofa Siggu Ólafsvík, Georg Hannah Keflavík, Snyrtistofan Ylur Hvolsvelli, Lyfja
Patreksfirði, Apótek vestmannaeyja, Snyrtistofan Norðurljósum Raufarhöfn.
Fyrir börn er valið 0 % Nikkel
Einnig höfum við silfur titaníum,
gull titanium og natural titaníum
Öruggara getur það ekki verið,
hannað í samvinni við
húðsjúkdómalækna.
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466 Sendum í póstkröfu
Kínaskór!
EITT PAR KR. 1290-
TVÖ PÖR KR. 2000-
Litir: rauðir, bleikir, túrkis,
orange, grænir, svartir og
hvítir.
Einnig mikið úrval af
skóm með kínamunstri
Ný sending af blóma-
skóm kr. 990-
Barna- og dömustærðir
Tilboð
Falleg
og vönduð
Festina úr.
Ný spennandi
módel.
ÚTSKRIFTARGJAFIR
Laugavegi 100, S. 561 9444
Sólgleraugu
Hagkaupum Smáralind • Hagkaupum Kringlunni
Verð
989.-
Fjöldi
lita
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
34-35 (06-07) Tíska 18.5.2005 16.11 Page 3