Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 45

Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 45
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ {SUÐURLAND } ■■ 9 FR ÉT TA BL AÐ IÐ /S TE FÁ N „Bygging Töfragarðsins á Stokks- eyri hófst í apríl í fyrra og frá þeim tíma höfum við verið nánast nótt og dag við smíðar og undirbúning. Allt er þetta gert á eigin forsendum og við stefnum að því að opna Töfragarðinn á morgun, föstudag,“ segir Torfi Áskelsson, forstöðu- maður Töfragarðsins á Stokkseyri. „Það sem nú getur að líta í Töfragarðinum er aðeins fyrsti áfangi af fjórum. Við erum hér með landsvæði til umráða sem tekur yfir þrjá hektara. Hér á eftir að gera selatjörn, búa til strönd og við ætlum að reyna að fá leyfi fyr- ir innflutningi fleiri dýrategunda. Nú þegar getur að líta hér fjöld- ann allan af dýrum svo sem refi, kalkúna, íslensk hænsni og kanín- ur, en áformað er að fjöldi annarra dýrategunda bætist við. Einnig höfum við komið hér upp leikað- stöðu fyrir börn og því er af nógu að taka. Um þessar mundir er hérna danskur sérfræðingur sem hefur yfirumsjón með uppsetningu springdýnu eða hopp-púða sem settur er upp samkvæmt ströngustu öryggisreglum. Segja má að Töfra- garðurinn fari vel af stað, nú þegar erum við búnir að taka við pöntun- um fyrir 1.200 leikskólabörn í sum- ar. Það er upplagt fyrir fjölskyldu- fólk að koma hingað til okkar á leið sinni um Stokkseyri og Eyrarbakka, en það tæki ábyggilega nokkra daga að komast yfir allt það sem er í boði á þessum stöðum. Uppbygg- ingin hefur verið slík á undanförn- um árum.“ Fyrsta áfanga af fjórum lokið Töfragarðurinn á Stokkseyri hefur til umráða þrjá hektara lands undir starfsemi sína og áformað er að bæta við fleiri dýrategundum í náinni framtíð. Gestir Töfragarðsins geta meðal annars skoðað kanínur. Torfi Áskelsson, forstöðumaður Töfragarðsins á Stokkseyri, er bjartsýnn á reksturinn. REYNISDRANGAR rétt utan Víkur í Mýrdal. Þjóðsagan segir að drangarnir hafi myndast þegar tvö tröll hafi reynt að draga þrímastrað skip að landi en þegar dagsljós brast á hafi þau breyst í stein. Reynisdrangar standa 66 metra upp úr sjónum. 08-09 suðurland x lesið 18.5.2005 16.23 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.