Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 50
„Hér hefur verið boðið upp á opna
gistingu á Kirkjubæjarklaustri frá
því árið 1943. Á þessum slóðum
var rekið hótel á Kirkjubæjar-
klaustri í húsnæði þar sem nú er
rekin Kirkjubæjarstofa. Þegar ég
flutti hingað var hótelið á staðnum
rekið frá byrjun júní fram í síðari
hluta ágústmánaðar,“ segir Erla
Ívarsdóttir, ferðaþjónustufulltrúi í
Geirdal við Kirkjubæjarklaustur,
sem búið hefur á svæðinu í tæp 30
ár.
„Á þeim tíma var hásumarið eini
tíminn sem eitthvað var að gera
varðandi ferðamenn. Þeir fáu sem
komu fyrir utan þann tíma fóru á
Hótel Bæ. Hér getur að vísu rignt
eins og á öðrum stöðum á landinu,
endu myndum við ekki þrífast
öðruvísi. En á móti kemur að hér
eru oft hæstu hitatölur landsins og
ég hefði aldrei getað ímyndað mér
það áður en ég flutti hingað að
hægt væri að liggja í sólbaði í
miðjum marsmánuði.
Mikið er af ferðaþjónustubæjum í
næsta nágrenni og nefna má
Hunkubakka, Efri-Vík, Geirland og
Hörgsland. Farfuglaheimili er kom-
ið austur í Fljótshverfi og þeir eru
ansi margir sem við getum hýst hér
á Klaustri yfir sumartímann. Er-
lendir ferðamenn sækja mest í gist-
ingarnar, en Íslendingar kjósa oft
frekar tjaldstæðin, sem eru með
þeim betri á landinu. Hér eru
gönguleiðir gjörsamlega óþrjót-
andi, sagan liggur hér fyrir fótum
okkar og þar stendur Nunnu-
klaustrið á Klaustri upp úr. Yfir
sumartímann er farið daglega á
Laka eftir að fært varð þangað.
Héðan eru ekki nema 70 kílómetrar
í Skaftafell og margir ferðalangar
kjósa að koma hingað til gistingar
og eyða deginum í ferð í Skaftafell
og Jökulsárlón.
Ferðamannatíminn er alltaf að
lengjast hérna á Klaustri og nú er
svo komið að enginn mánuður árs-
ins er án gistinátta hjá ferðamönn-
um. En sumartraffíkin stendur nú-
orðið frá lokum maí og allt fram í
október,“ segir Erla.
14 ■■■ { SUÐURLAND }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hótel Skaftafell
Freysnesi - Öræfasveit - S: (354) 478-1945
Verið velkomin!
Hvort sem þarf að byggja
nýtt eða endurgera gamalt
þá kemur ráðgjöf Hönnunar
að notum:
Upplýsingar um byggingarkostnað er að finna í verðbanka Hönnunar.
• Breytt og aukin notkun húsnæðis
• Burðarþol og brunatækni
• Hreinlætis- og hitalagnir, fráveitur
• Samskipti við byggingaryfirvöld
• Umhverfismál
Grensásvegi 1 · 108 Reykjavík · Sími 510 4000 · Fax 510 4001
honnun@honnun.is · www.hönnnun.is
Að mörgu er að hyggja þegar bændur byggja!
Jöklajeppar Hornafirði
Vélsleða og jeppaferðir um
vatnajökul og nágrenni, allt árið.
Ógleymanleg upplifun
S: 478-1000 / www.glacierjeeps.is
Gesthús eru þyrping 11 hlýlegra parhúsa, parhúsabyggð, á
falllegu útivistarsvæði við Engjaveg á Selfossi. Í hverju húsi eru
gistirými fyrir 2-4, eldunaraðstaða, sjónvarp og baðherbergi með
sturtu. Í þjónustumiðstöð er framreiddur morgunverður og
kvöldverður fyrir hópa auk léttvíns og áfngs öls. Við miðstöðina
eru tveir heitir pottar til afnota fyrir hótelgesti.
Frá Selfossi er stutt til allra helstu ferðamannastaða Íslands
Hæstu hitatölur landsins
eru oft á Klaustri
Fyrir um 25 árum var hafist handa við að byggja fyrstu álmurnar sem tilheyrðu Hótel
Kirkjubæjarklaustri. Frá þeim tíma virðist sem fólk fari að átta sig á hversu veðursælt
er á þessu svæði.
Erla Ívarsdóttir hefur verið með ferðaþjónustu í Geirlandi á Kirkjubæjarklaustri í 17 ár.
Sumarhús að Geirlandi á Kirkjubæjarklaustri.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Áformað er að grafa nokkur hús í Vestmannaeyjum undan vikrinum.
„Í júní ætla ég að byrja á verkefni
sem menn hefur lengi langað til að
framkvæma í Vestmannaeyjum, grafa
hér upp tvö eða þrjú hús sem eru hul-
in undir vikri. Ástæða er til að ætla
að hægt sé að ná þeim í þannig
ástandi að hægt sé að vernda þau til
sýnis fyrir ferðamenn,“ segir Kristín
Jóhannsdóttir, menningar- og mark-
aðsfulltrúi Vestmannaeyja.
„Við ætlum að bjóða ferðamönnum
að taka þátt í uppgreftrinum með
okkur og köllum verkefnið að gamni
okkar Pompei norðursins“. Nú þegar
hefur þetta verkefni að vonum vakið
geysilega eftirtekt. Ferðamálaráð hef-
ur styrkt okkur myndarlega til þessa
verkefnis, sem kostar óneitanlega
töluverðar fjárupphæðir. Við áætlum
að Pompei norðursins sé verkefni til
nokkurra ára og við ættum að sjá í
einhver hús á þessu ári undan vikri
en gætum endað í allt að tíu húsum
þegar allt verður komið.“
Pompeii norðursins
Hið metnaðarfulla verkefni að grafa hús undan vikri í
Vestmannaeyjum hefur vakið mikla athygli og ferðamönn-
um verður gefinn kostur á að taka þátt í uppgreftrinum.
14-15 suðurland lesið 18.5.2005 17.01 Page 2