Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 53

Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 53
9FIMMTUDAGUR 19. maí 2005 Jón Geir Jóhannsson, trommuleikari hljómsveitar- innar Hraun og starfsmaður í Dressmann, á mikið af fötum og á erfitt með að gera upp á milli þeirra. „Þessa dagana held ég mest upp á tvær samstæðar flíkur sem ég nota mikið. Það er annars vegar brúnn flauelsjakki frá Batistini og hins vegar forláta hattur sem ég keypti í Austin í Texas og smellpassar við jakkann,“ segir Jón Geir aðspurður um sína uppá- haldsflík. Jón Geir vinnur í Dressmann í Kringlunni og kaup- ir mikið af sínum fötum þar. Jakk- inn góði er þaðan en hatturinn fannst þegar Jón Geir var á tón- leikaferðalagi í Texas. „Þetta er gamaldags herrahattur úr brúnu flaueli sem minnir einna helst á tískuna á fjórða og fimmta ára- tugnum. Ég ætlaði upprunalega að kaupa mér ekta kúrekahatt og hélt að það yrði auðvelt að finna einn slíkan í Austin. Borgin reyndist hins vegar vera minni kúrekabær en ég bjóst við og þótt undarlegt megi virðast fann ég engan kúrekahatt. En ég er mjög ánægður með hattinn sem ég keypti og nota hann mikið.“ Jón Geir spilar með hljóm- sveitinni Hraun, sem heldur tón- leika í kvöld á Café Rósenberg. Þar verða leikin lög af tveimur plötum hljómsveitarinnar, „Partýplötunni Partý“ sem kemur út í dag og „I can’t believe it’s not happiness“ sem er væntanleg seinna í sumar. „Þetta eru frekar ólíkar plötur og við ætlum að leyfa fólki að heyra lög af þeim báðum,“ segir Jón Geir, sem lofar góðum tónleikum strax og útsend- ingu frá Evrópusöngvakeppninni lýkur í kvöld. ÚTSKRIFTAJAKKAFÖT OPIÐ T IL KL. 21:00 Í KRINGLUNNI Í KVÖLD KRINGLUNNI S .568 9017 - LAUGAVEGI S .511 1718 4YOU 19.990 MAO 22.990 PARKS 24.990 VENICE 35.990 TIGER 38.990 BZR 44.990 PAUL SMITH 52.990 það er þá satt, varaliturinn er það eina sem skiptir máli!“ „ Nýir LOVELY ROUGE varalitir, þeir klæða þig betur. Útsölustaðir | Hagkaup snyrtivörudeildir | Lyfja | Apótekið Grafarvogi | Apótekið Iðufelli | Árnes Apótek | Bjarg Akranesi | Jara Akureyri | Lyfjaval Mjódd Kaupauki Með kaupum á Lovely Rouge varalit í Hagkaup fylgir flott burstasett frá Bourjois! Gildir á meðan birgðir endast. fimmtudag til sunnudag frá kl. 13 til 18 Kynning á nýjum varalit frá Bourjois Í Hagkaup Smáralind Snyrtifræðingur verður á staðnum og gefur góð ráð. Trommari með Texas-hatt Heitastur í Cannes HÖNNUÐURINN ROBERTO CAVALLI ER HEITASTUR ALLRA Á KVIKMYNDA- HÁTÍÐINNI. Roberto Cavalli er heitasti hönnuðurinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem heitustu smástirnin klæddust kjólum úr miðjarðarhafslínunni hans. Paris Hilton var glæsileg að vanda um borð í snekkju sinni þar sem hún skrýddist léttum sumarkjól með stórgerðu blómamynstri. Upphaflega var kjólnum ætlað að vera yfir sundföt og er hann létt gagnsær en hin prúða Paris var í hvítum undirkjól innanundir svo alls velsæmis var gætt. Leikkonan Misha Barton er mikill aðdáandi Cavallis og var að sjálfsögðu í kjól eftir kappann og fylgdi honum í veislur, væntan- lega svo hann gæti verið tilbú- inn með títu- prjónana ef mikið lægi við. Paris Hilton er prúð og stúlkuleg en alltaf flott. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 36-53 (08-09) Tíska 18.5.2005 16.19 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.