Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 67
FIMMTUDAGUR 19. maí 2005 35
O p n u n a r t í m i v i r k a d a g a 1 4 . 0 0 - 1 8 . 0 0 - L a u g a r d a g a / S u n n u d a g a 1 0 . 3 0 - 1 8 . 0 0 - U p p l ý s i n g a s í m i 5 5 1 8 4 6 4
Diesel O’NEILL
NIKE
Osh Kosh adidasSPEEDO
FIREFLY
ColumbiaAnd 1
Confetti
ASICS
Triumph
Cintamani
Rucanor
Röhnisch
Catmandoo
Sundfatnaður í gríðarlegu úrvali
Stakir toppar - buxur á kr. 1.000
Sundbolir á kr. 1.000 og kr. 1.500
Bikini á kr. 1.990
V E R Ð D Æ M I
Okkar verð Fullt verð
CASALL BIKINI 1.990 kr. 5.990 kr. - 7.990 kr.
Osh Kosh síðerma bolir 1.000 kr. - 1.500 kr. 3.990 kr. - 5.990 kr.
Adidas fótboltaskór 2.500 kr. 4.990 kr.
Cintamani fleece 2.500 kr. - 2.990 kr. 7.990 kr. - 9.990 kr.
Confetti úlpur ungbarna 2.200 kr. 6.990 kr.
Adidas gallar, fullorðins 5.000 kr. 9.990 kr.
O'Neill úlpur 4.990 kr. 11.990 kr.
Diesel gallabuxur, takmarkað magn 5.000 kr. - 6.500 kr. 10.990 kr. - 15.990 kr.
Asics barnaskór 3.500 kr. 6.990 kr.
Liverpool treyjur, original 3.500 kr. 6.990 kr.
Mikið úrval af fótboltaskóm
- sundfatnaði - barnafatnaði
(Osh Kosh og Confetti)
Við opnum fimmtudaginn 19.05.05 kl. 14:00.
Casall
Pongs skór Reebok
Kvennalið Breiðabliks undirritaði tímamótasamning:
Frítt á alla leiki í sumar
FÓTBOLTI Rekstrarfélag kvennaliðs
Breiðabliks hefur undirritað
sannkallaðan tímamótasamning
við Toyota, sem hefur ákveðið að
kaupa alla heimaleiki liðsins í
Landsbankadeildinni og því verð-
ur frítt á alla heimaleiki liðsins í
sumar. Toyota og Breiðablik hafa
starfað saman síðan árið 1991 og
Breiðablik ætlar sér stóra hluti í
sumar, þrátt fyrir að vera með
ungt lið.
Þrjár stúlkur sem ætlað er að
styrkja liðið í sumar eru væntan-
legar til landsins á næstu dögum.
Þetta eru miðjumaðurinn Tesia
Kozlowski frá Dayton-háskólan-
um, varnarmaðurinn Meghan Og-
ilvie frá Richmond-háskóla og
sóknarmaðurinn Casey McClu-
skey frá Duke-háskólanum, en
hún á að baki leiki með U-21 árs
landsliði Bandaríkjanna.
Fréttablaðið ræddi við Karl
Brynjólfsson, formann meistara-
flokksráðs kvenna hjá Breiða-
bliki, og spurði hann hvernig það
hefði komið til að liðið er að fá
þrjá leikmenn alla leið frá Banda-
ríkjunum.
„Þetta er gert til að styrkja lið-
ið í heild, því við erum búin að
missa fullt af leikmönnum fyrir
sumarið. Það er búið að jafna
verðlaunaféð milli karla og
kvenna, svo að þetta snýst líka
mikið um peninga. Við ætlum að
vera í toppbaráttu í ár og þetta
verður vonandi grunnurinn að
því.
Við fengum upplýsingar um
þessa leikmenn frá íslenskum
stúlkum sem hafa verið að leika
úti og þær eiga tvímælalaust eftir
að styrkja okkur í sumar,“ sagði
Karl Brynjólfsson í samtali við
Fréttablaðið.
baldur@frettabladid.is
GLAÐIR Á GÓÐRI STUND Það var glatt á hjalla þegar forkólfar Breiðabliks og Toyota
skrifuðu undir tímamótasamninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
66-67 (34-35) SPORT 18.5.2005 22:15 Page 3