Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 70
38 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Með vorinu verð
ég stórhuga. Læt
mig dreyma um
alls konar fram-
kvæmdir, jafnt
innan húss sem
utan. Nýtt eldhús,
nýja stofu, nýtt
bað og ég veit
ekki hvað. Jafnframt reyni ég að
skipuleggja í huganum hvernig
hægt sé að gera garðinn hugguleg-
an, að minnsta kosti huggulegri en
hann er í dag. Meira er um mosa en
gras og lítið hefur verið um gróður-
setningu sumarplantna síðan ég
flutti inn.
Með allar þessar stórfram-
kvæmdir í huga hef ég þó ekki kom-
ist lengra en að kaupa mér nýja
bókahillu. Loksins þarf ég ekki að
hafa þrefaldar raðir af bókum í hill-
um mínum. Tvöfaldar raðir í sum-
um hillum dugar. Með allt hitt veit
ég ekki alveg hvar ég á að byrja. Ef
ég byrja á einu virðist það hlaða upp
á sig upp í það óendanlega. Áður en
ég veit af er íbúðin orðin óíbúðar-
hæf. Að minnsta kosti í huganum í
allri skipulagningunni.
Garðurinn er annað mál. Mig
dreymir um sólpall, bekki og borð.
Jafnvel grill í einu horninu. Sjálf-
sagt er hægt að byrja að snyrta eitt-
hvað til og rifja upp allt það sem
mér hefur verið kennt í garðrækt í
gegnum tíðina. Miðað við uppruna
minn og margar stundir við að að-
stoða móður mína í garðinum ætti
ég nefnilega að kunna margt. Fátt
virðist þó hafa fest í kollinum, nema
heiti plantna og óljós hugmynd um
hvernig hægt er að raða blómum í
beð þannig að það sé alltaf eitthvað
blómstrandi. Mig rámar eitthvað í
að sum blóm blómstri að vori á með-
an önnur skarti sínu fegursta síð-
sumars. Í mínum garði er aðalá-
herslan á plöntur sem blómstra allt
árið, eins og fífla.
Með hækkandi sól og hitastigi er
engin afsökun lengur fyrir því að
húka inni, lesa bara bækur, horfa á
sjónvarp og láta sig dreyma um
stórframkvæmdir. Líklega er þó
best að byrja bara rólega. Taka eitt
skref í einu til að allt fari ekki úr
böndunum og ég endi með óíbúðar-
hæft húsnæði og garð sem er ekkert
nema mold og urð. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR ER STÓRHUGA Í DAG
Framkvæmdagleði eða hugsjónir
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Aðalvinningur dregin út úr öllum inn sendum SMS-um.
L E I K U R
12.
Spilaðu allar
helstu senurnar úr
Star Wars Episode III
Sendu SMS skeytið
JA SWM á númerið
1900 og þú gætir unnið
Vinningar
Miðar fyrir 2 á StarWars III
StarWars tölvuleikur
Glæsilegur varningur
tengdur myndinni
DVD myndir og margt fleira.
H e i m s f r u m s ý n d
2 0 . 0 5 . 0 5
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Hægt er að blása
björgunarvestið upp
með því að toga í böndin
eða með því að blása í
munnstykkið!
Neyðarútgangarnir eru
merktir með rauðu
„Exit“-skilti!
Ef aðstæður krefjast
neyðarútgöngu munu
flugfreyjurnar.....
klæða sig úr öllum
fötunum! ...nei einmitt
ekki! Eigum við kannski
að fylgjast með núna?!
Ertu þá
vaknaður?
Ha, hvað?
Ég fylgist
alltaf með!
Flott
spilað hjá
þér!
Flott spil-
að hjá þér! Takk. Maður er með
soddan límheila
sko.
Palli! Í ellefta
skipti, viltu taka
bækurnar þínar
af matarborð-
inu!!!
Greinilega límist
ekki allt á þennan
límheila þinn.
Jæja allavega....
Þetta er nú
meiri hópurinn!
Hvernig var dagurinn á
leikskólanum í dag, Solla?
Hann
var full-
kominn!
Fullkominn?
Vá! Það er frábært!
Já!
Já, kennarinn
náði mér
aldrei!
70-71 (38-39) Skripo 18.5.2005 19.42 Page 2