Fréttablaðið - 19.05.2005, Qupperneq 76
Drengirnir hressu í
hiphop-hljómsveitinni
Loop Troop munu
skemmta íslenskum tón-
leikagestum í þriðja sinn
á morgun. Borghildur
Gunnarsdóttir spjallaði
við Promoe hinn loðna
um nýju plötuna og fleira
forvitnilegt.
Nýjasta plata Loop Troop-með-
lima, Fort Europa, kom nýlega út í
Svíþjóð og er gefin út af útgáfu-
fyrirtæki þeirra drengja, David
vs. Goliath. Hún er ekki enn kom-
in út hérlendis en varla er langt í
það og að sjálfsögðu munu strák-
arnir selja plötuna á tónleikunum.
Loop Troop skipa þeir Dj Embee,
Cosmic, Supreme og Promoe. Sá
síðastnefndi er mest áberandi og
líklega frægasti meðlimurinn.
Hann hefur gefið út fjölda
sólóplatna og er einna eftirminni-
legastur fyrir sérkennilegt útlit
sitt sem einkennist af miklu
skeggi og þykkum og löngum
dreddum.
Hann er geysilega hressilegur
á sviði og býst blaðamaður því við
því sama þegar hann bjallar í hinn
mikla Promoe. „Hallóó?“ svarar
hann rámri og þreytulegri röddu
sem veldur örlitlum vonbrigðum.
Hann er þó kurteis, viðkunnanleg-
ur og hinn fínasti viðmælandi
þrátt fyrir syfju.
Pólitískir textahöfundar
„Ég er mjög sáttur við nýju plöt-
una,“ segir Promoe aðspurður.
„Hún er örlítið ólík fyrri plötunum
aðallega vegna þess að við unnum
hana hraðar en hinar fyrri. Ég held
að það komist líka til skila í tónlist-
inni, það er meira af spontant-hlut-
um og meiri húmor í henni,“
Promoe talar hægt og örlítið
letilega sem er reyndar ágætt því
það auðveldar blaðamanni að
pikka svörin hans inn á lyklaborð-
ið. Hann segir plötuna hafa fengið
ágætis viðbrögð í Svíþjóð þó svo
að ekki séu allir dómar um plöt-
una jákvæðir.
„Margir eru góðir en ekki allir.
Gagnrýnandi Aftenposten var til
dæmis ekki svo sáttur við plötuna.
Ég held að margir textarnir okkar
hugnist ekki öllum,“ segir Promoe
en þeir í Loop Troop eru þekktir
fyrir hápólitíska texta þar sem oft
er deilt harkalega á stjórnmála-
menn. „Sumum finnst við vera að
setja okkur á háan hest með því að
reyna að segja öðrum hvernig þeir
eigi að lifa lífinu. Ég er ekki sam-
mála því, við erum bara að ræða
málefni sem okkur þykja mikil-
væg.“
Hressir á sviði
Promoe er ánægður með að starfa
í tónlistariðnaðinum og er að sögn
í fullri vinnu í Loop Troop. „Við
vinnum ekkert fyrir utan hljóm-
sveitina og erum því mjög heppn-
ir. Einnig höfum við fengið að
ferðast út um allan heim á tón-
leikaferðalögum og höfum meira
að segja komið til Japans og Suð-
ur-Afríku. Við áttum þó augljós-
lega ekki eins marga aðdáendur
þar eins og í Evrópu og til dæmis
í Ástralíu.“
Þeir sem hafa séð hljómsveit-
ina á tónleikum vita að strákarnir
eru með þeim hressari á sviði.
Blaðamaður minnist þess við
Promoe að á síðustu tónleikum
hérlendis hafi þeir meðal annars
tekið „The Shoplifters Dance“ eða
„Búðarþjófa-dansinn“ við mikinn
fögnuð tónleikagesta. Þetta er
eins konar látbragðsdans þar sem
þeir teygja hendurnar út í loftið
og þykjast setja eitthvað í vasann
á milli þess sem þeir dilla sér við
tónlistina. „Já, hann vekur alltaf
mikla gleði í áhorfendahópnum,“
segir Promoe og hlær. „Það var nú
plötusnúðurinn okkar sem fann
þennan dans upp og kenndi okkur
hann. Okkur finnst gaman að
sprella smávegis á sviði.“
Stoppa stutt við
Þrátt fyrir að vera hiphop-lista-
maður segist Promoe aðallega
hlusta sjálfur á reggítónlist.
Blaðamaður grípur þá að sjálf-
sögðu tækifærið og segir honum
frá íslensk-sænsku hljómsveitinni
Hjálmum og er Promoe afar
áhugasamur og langar að tékka á
þeim þegar hann kemur. Á tón-
leikunum á morgun munu Loop
Troop spila lög af nýju plötunni í
bland við gamalt og þekktara efni
og eflaust megum við búast við
skemmtilegum tónleikum eins og
Loop Troop eru snillingar í að
galdra fram úr erminni. Þeir fé-
lagar stoppa þó stutt við og fara
heim til Svíþjóðar strax á laugar-
daginn.
„Ég ætla að slappa af í húsinu
mínu í sveitinni þangað til við
förum til Helsinki og höldum tón-
leika þar.“ Blaðamaður spyr hann
þá meira í gríni en alvöru hvort
hann ætli semsagt að drífa sig
heim til þess að missa ekki af
Evróvisjón segir hann svo nú
ekki vera: „Nei, ég er orðinn
hundleiður á Evróvisjón. Einu
sinni var þetta bara eitt kvöld en
núna er þetta rætt sundur og
saman í margar vikur áður en
keppnin er haldin. Mér finnst
tónlistin sjálf líka leiðinleg þó
svo að það sé auðvitað bara
smekksatriði.“ Tónleikarnir eru
á Gauk á Stöng á morgun og opn-
ar húsið klukkan ellefu, aldurs-
takmark er átján ár og aðgangs-
eyrir 1500 krónur. Upphitun er í
höndum NBC, Dj Paranoya og Dj
Deluxe. ■
> Plata vikunnar ...
NINE INCH NAILS:
With Teeth
„ Skotheld plata
sem ætti að festa
hann í sessi sem
einn merkasta
tónlistarmann okkar tíma.“ BÖS
44 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Hildur Vala: Hildur Vala
„Það á greinilega vel við Hildi Völu að syngja róleg
lög þar sem gullfalleg rödd hennar nýtur sín svo
vel.
FB
Hot Hot Heat: Elevator
„Önnur eiginleg breiðskífa Hot Hot Heat inniheld-
ur svipað magn af glaðlegum tónum, en ekki
sama magn af ferskleika og frumraun þeirra.
BÖS
Fischerspooner: Odyssey
„Týndu prinsarnir í bandarísku raftónlistarsenunni
snúa aftur eftir þriggja ára útgáfuþögn. Biðin var
þess virði, og platan það besta sem þeir hafa
gert.“
BÖS
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Hljómsveitirnar Pearl Jam, Black
Eyed Peas, Maroon 5 og The John
Mayer Trio verða á meðal þeirra
sem munu hita upp fyrir rokk-
hundana í Rolling Stones á tón-
leikaferð þeirra um Bandaríkin í
haust.
Pearl Jam mun hita upp á tón-
leikum í Pittsburgh 28. september
en þetta verður í fyrsta sinn síðan
1997 sem hljómsveitin stígur á
stokk með Stones. Miðasala fyrir
tónleikaferðina hefur gengið vel
og er uppselt á flestum stöðum. ■
LOOP TROOP Svíarnir halda nú tónleika hérlendis í þriðja sinn vegna þriðju breiðskífu
þeirra, Fort Europa. Promoe er hér þriðji frá vinstri, síðhærður, skeggjaður og stór-
skemmtilegur karakter.
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Lokbrá: Army of Soundwaves, Khonor: Handwriting,
Stephen Malkmus: Face the Truth, Jane: Berserker,
Smog: A River Ain’t Too Much to Love, Ariel Pink’s
Haunted Graffiti 2: The Doldrums og að sjálfsögðu
Selma: If I Had Your Love.
>
Lo
kb
rá
>
Selm
a Tónlistarmaðurinn Mugison heldur tónleika á
Nasa annað kvöld en í gærkvöldi lék hann á
Græna hattinum á Akureyri. Hann er nýkominn úr
tónleikaferð um Evrópu sem var
að hans sögn alveg frábær.
„Þetta var magnaður túr. Það er
svolítið fyndið að við þurftum
að ferðast létt og vorum
bara í jakkafötum
því það sést
minna ef þau
eru skítug. Við
vorum orðnir
ógeðslega
illa lykt-
andi
þegar við komum heim,“ segir Mugison. „Við
reyndum að selja skítuga boli af okkur og þeir
seldust eins og heitar lummur, aðallega í Þýska-
landi.“
Nýjasta plata Mugison, Mugimama is this Mon-
keymusic?, fékk undantekningalítið góða dóma á
meðan á tónleikaferðinni stóð og er hann að
sjálfsögðu hæstánægður með viðbrögðin. „Það er
gaman að fá svona margar skoðanir á því sem
maður er að gera. Það var einn slæmur dómur og
það var bara svolítið hressandi. Það er gaman að
fá svona löðrung í andlitið. Þá langar mann að
standa upp og sanna sig betur.“
Tónleikarnir á Nasa hefjast stundvíslega klukkan
21.30 og lýkur klukkan 23.00. „Það verður engin
seinkun. Ég vil að venjulegt fólk geti komið á tón-
leikana, vaknað síðan snemma og farið í garðinn
á laugardeginum,“ segir Mugison, sem heldur
jafnframt tvenna tónleika í Bretlandi um helgina.
Aðgangseyrir á Nasa er 500 krónur.
Tónleikar fyrir venjulegt fólk
> Popptextinn ...
„They’re out to get you, better
leave while you can
don’t wanna be a boy, you
wanna be a man.
You wanna stay
alive, better do what
you can so beat it,
just beat it.“
Michael Jackson stappar í sig stál-
inu í laginu Beat It af metsölu-
plötu sinni Thriller frá árinu 1982.
Pearl Jam hitar upp
PEARL JAM Það er ekki á hverjum degi
sem gruggrokkararnir vinsælu hita upp
fyrir aðrar hljómsveitir.
Búðarþjófadansinn vinsæll
76-77 (44-45) Tonlist 18.5.2005 19.47 Page 2