Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 86
54
Hemmi Gunn virðistheldur betur vera
að slá í gegn með
þáttinn sinn Það var
lagið. Samkvæmt fjöl-
miðlakönnun
Gallup sem
birtist í síð-
ustu viku er
Hemmi með
næstvin-
sælasta þátt-
inn á Stöð 2,
með 30,4%
uppsafnað áhorf, aðeins rétt rúmu
prósenti á eftir fréttum Stöðvar 2.
Það sem vekur kannski hvað mesta
athygli er að í þriðja sæti koma
Strákarnir með um tíu prósent
minna áhorf en Hemmi, samt eru
þeir sýndir fjóra daga vikunnar en
Hemmi bara einu sinni. Það er því
ljóst að tími prinsanna í íslensku
sjónvarpi er ekki enn kominn því
veldi kóngsins stendur styrkum
stoðum og mun væntanlega gera
það um ókomna tíð.
Lárétt: 1 fiskurinn, 6 flana, 7 kyrrð, 8
tónn, 9 gremja, 10 snjó, 12 hreyfast, 14
sekk, 15 á nótu, 16 neysla, 17 svar, 18
óbundinn.
Lóðrétt: 1 drykkur, 2 dvelja, 3 sólguð,
4 andstreymið, 5 skipstjóri, 9 flani, 11
skjóla, 13 svara, 14 tunga, 17 tónn.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
– hefur þú séð DV í dag?
Margrét finnur
til með Kylie
Minouge
Þekkir baráttuna
við krabbamein
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Einn
Ágúst Ólafur Ágústsson og
Lúðvík Bergvinsson
Dís
Valgerður Matthíasdóttir, betur
þekkt sem sjónvarpskonan Vala
Matt., mun hætta með þáttinn Inn-
lit – Útlit á Skjá einum innan
skamms. Vala ætlar að söðla um
og mun brátt hefja störf hjá fjöl-
miðlafyrirtækinu 365, sem rekur
meðal annars Stöð 2, Sýn, Frétta-
blaðið og DV. Hún mun koma að
þróun nýrra miðla fyrir yngri
markhópa og verður með þátt á
nýrri sjónvarpsstöð sem heitir
Sirkus.
„Fyrst vil ég taka það fram að
ég hætti á Skjá einum með miklum
trega. Mér þykir mjög vænt um þá
sjónvarpsstöð enda var ég með frá
upphafi í að búa hana til og hef átt
einstaklega gott samstarf við alla
þar. En svo bauðst mér að taka
þátt í mótun á nýju konsepti á
nýrri sjónvarpsstöð. Mér hefur
alltaf þótt gaman að taka þátt í
frumkvöðlastarfi; ég var ein af
stofnendum Stöðvar 2 ‘86, var með
í stofnun Skjás eins 1999 og nú
kemur ný sjónvarpsstöð sem mér
finnst spennandi að taka þátt í að
móta,“ segir Vala sem mun þó
klára þá tvo þætti af Innliti – Útlit
sem hún á eftir á Skjá einum.
Vala mun hefja þróunarstarfið
á nýju stöðinni innan skamms og
boðar nýjungar. „Ég verð með
glænýjan þátt og þar koma ýmsar
nýjungar við sögu.“
Magnús Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri á Skjá einum, þarf nú
að sjá á eftir einum af gullkálfum
stöðvarinnar en kveður hann í
góðu. „Vala hefur verið með þátt-
inn í ein sex ár og það eru fáir
þættir sem hafa verið jafn ending-
argóðir. Hún kom þættinum af
stað en fannst kominn tími til að
fara á ný mið og enduruppgötva
sjálfa sig,“ segir Magnús.
Skjár einn á vörumerkið Innlit
– Útlit og því spurning hvort þátt-
urinn verði sýndur næsta haust
með nýjum stjórnanda. „Það verð-
ur ekki auðvelt að fylla skarð Völu
en það er ákvörðun sem við tökum
með haustinu,“ segir Magnús. „Við
höfum ágætis tíma til að bregðast
við en þetta er vinsæll þáttur og
við munum íhuga það.“
Samhliða sjónvarpsstöðinni
Sirkus verður gefið út blað með
sama nafni í ritstjórn Sigtryggs
Magnasonar og Önnu Margrétar
Björnsson. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er einnig í bígerð
að gefa út nýtt lífsstílstímarit
samhliða þættinum hennar Völu.
Hvorki Vala né Árni Þór Vigfús-
son, sem hefur unnið að þróun
nýrra miðla fyrir 365, vildu stað-
festa það. „Hver veit nema
konseptið sem við erum að vinna
með Völu eigi eftir að teygja sig
yfir í aðra miðla. Það skýrist allt á
næstu vikum,“ var það eina sem
Árni Þór vildi gefa upp um fyrir-
hugað tímarit. kristjan@frettabladid.is
VALA MATT Vinnur nú að tökum á síðustu þáttunum af Innlit – Útlit af Skjá einum. Hún er á leiðinni í Sirkus þar sem hún mun stýra nýjum þætti.
INNLIT – ÚTLIT: HÆTTIR Á SKJÁ EINUM
Vala Matt verður í Sirkus
FRÉTTIR AF FÓLKI
AÐ MÍNU SKAPI
EDGAR SMÁRI ATLASON, GOSPELSÖNGVARI OG MÁLARI
TÓNLISTIN Ég hlusta einna mest á
djass, ekki síst Agnar Má Magnús-
son, einn fremsta píanóleikara ís-
lenskrar djasssögu. Þá er ég sömu-
leiðis hrifinn af Rolling Stones, Led
Zeppelin og þessu gamla rokki
sem einkenndist af góðum söngv-
urum.
BÓKIN Las nýlega bók Huldars
Breiðfjörð, Góða Íslendinga. Huldar
býr yfir skemmtilegri og lifandi frá-
sagnargáfu, skrifar á þann hátt að
maður getur sett sig í sporin. Hug-
myndin er líka frábær; að keyra
burt úr hversdagslífi borgarinnar og
út á land. Það er eitthvað sem ég
gæti sjálfur hugsað mér að gera.
BÍÓMYNDIN Ég mæli eindregið
með Note Book þótt ég sé frekar
inni á hasarmyndalínunni. Eigin-
konan doblaði mig til að horfa
með sér og við höfum trúlega vætt
eina fjóra vasaklúta yfir sögunni.
Hörðustu karlmenn eiga bágt með
sig yfir myndinni og alveg víst að
mjúki maðurinn fellir tár. Þetta er
virkilega falleg saga og myndatak-
an undur. Oftast sé ég þó hrollvekj-
ur á borð við The Grudge, til að
ögra og athuga eigin hörku en
enda oftast með hendur fyrir aug-
um. The Hitchhiker’s Guide to the
Galaxy er líka virkilega góður,
breskur delluhúmor.
BORGIN New York kallar endalaust
á mig. Ég fór þangað átján ára og
þvældist einn um á Manhattan,
sogaðist inn í kraft borgarinnar.
Leið eins og belju á fersku grasi í
byrjun sumars og varð fyrir miklum
innblæstri.
BÚÐIN Retró því stíllinn þar er
gamaldags og rokkaður, minnir á
sjötíurnar.
VERKEFNIÐ Ég er málari að at-
vinnu, syng gospel með Gospelkór
Reykjavíkur og melódískt popp
með dúettnum Símon & Clover,
ásamt Símoni Hjaltasyni á gítar.
Agnar, Huldar og japanskar hrollvekjur
...fær Marentza Poulsen, sem hef-
ur haldið uppi merkjum smur-
brauðsjómfrúa hér á landi. Mar-
entza hefur rekið kaffihúsið Flór-
una í Grasagarðinum í ein átta ár.
HRÓSIÐ
Lausn. Lárétt: 1murtan, 6ana, 7ró, 8
la, 9ami, 10snæ, 12iða, 14mal, 15an,
16át,17ans, 18laus.
Lóðrétt: 1 malt, 2una, 3ra, 4armæðan,
5nói, 9ani, 11fata, 13ansa, 14mál, 17
as.
19. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Kristinn H. Gunnarsson ber höf-uð og herðar yfir aðra þingmenn
Framsóknarflokksins í kosningu um
þingmann ársins sem visir.is og Silf-
urs Egils standa fyrir. Á Vísi er hægt
að velja einn þingmann úr hverjum
flokki sem á fulltrúa á Alþingi og
ræður einfalt atkvæðamagn úrslit-
um um það hver telst þingmaður
ársins. Notendum gefst ennfremur
kostur á að tilnefna einstaklinga
sem þeir vildu helst sjá á þingi og
þar kennir ýmissar grasa. Meðal
þeirra sem nefndir hafa verið eru
Ingibjörg Sólrún, Ásdís Halla, Árni
Johnsen, Egill Helgason, Bobby
Fischer og svo sjónvarpsstjörnurnar
Gísli Marteinn, Sveppi og Hómer
Simpson. Kosningunni á Vísi lýkur
klukkan 18 á laugardaginn og verða
niðurstöðurnar kynntar í Silfri Egils
daginn eftir.
Stóri dagurinn hjá Selmu er runninn
upp, en í kvöld stígur hún á svið með
lagið If I Had Your Love í íþróttahöll-
inni í Kænugarði. Í gær voru tvö rennsli
á öllum lögunum í forkeppninni og var
það gert eins og um væri að ræða
keppnina sjálfa.
Selma birtist þarna í fyrsta sinn í
þeim búningi sem hún hyggst klæðast í
kvöld og gekk flutningurinn í sjálfu sér
vel, en Eurovision-sérfræðingar í blaða-
mannastéttinni höfðu miklar efasemdir
um að búningurinn myndi hjálpa henni
mikið í kvöld. Sumir gengu svo langt að
segja að hann myndi koma í veg fyrir að
hún kæmist áfram. Önnur æfingin var í
gærkvöld og voru fyrirhugaðar ein-
hverjar breytingar á búningnum, en þó
ekki ýkja miklar, en í það minnsta er
talað um að höfuðfat sem hún bar í hluta
lagsins muni fara.
Í kvöld verður engin stigatalning
heldur í lok hennar opnuð tíu umslög
sem innihalda nöfn þeirra landa sem
komast áfram, en það er þó ekki tekið
fram í hvaða röð löndin eru. Það er gef-
ið upp að lokinni aðalkeppninni á laug-
ardag. Það er ljóst samkvæmt áliti
spekinga hér í Kænugarði að það er á
brattann að sækja fyrir Selmu, því að
keppnin er hörð og aðeins tíu af tuttugu
og fjórum þjóðum komast áfram. ■
PJETUR SIGURÐSSON SKRIFAR FRÁ KÆNUGARÐI
Efasemdir me› búning Selmu
Á ÆFINGU Svo gæti farið að Selma Björnsdóttir
breytti um búning fyrir kvöldið í kvöld.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
86-87 (54-55) Fólk 18.5.2005 21:41 Page 2