Fréttablaðið - 19.05.2005, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Ferðafrelsi
Og Vodafone
Komdu í Og Vodafone verslun, smelltu þér á www.ogvodafone.is eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
Nú getur þú notað Frelsið þitt í útlöndum. Skráðu þig í Ferðafrelsi Og Vodafone
um leið og þú gengur frá vegabréfinu. Skráning í Ferðafrelsi er án aukagjalds.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
81
34
05
/2
00
5
GÁFUR
Ég er orðinn svo þreyttur á gáfna-dýrkun. Ef einhver er gáfaður
þá er honum hampað og fólk lítur
upp til viðkomandi og fyllist ein-
hverri lotningu þótt hann hafi ekki
gert neitt sérstakt fyrir neinn. Í við-
tölum segir fólk gáfulega hluti. Um-
ræður eru gáfulegar þar sem menn
keppast meira um að vera gáfaðir
en að segja eitthvað sem skiptir ein-
hverju raunverulegu máli. Og oft er
lygin ekki langt undan. Hvað er
svona svakalega merkilegt við gáfað
fólk? Af hverju er það merkilegra
en annað fólk?
MÉR FINNST það álíka fánýtt að
dásama gáfur eins og að dásama lík-
amsburði eða útlit. Greindarvísitala
segir álíka mikið um mann og typpa-
stærð. Fallegt andlit er ekki það
sama og góð manneskja. Sá sem
byggir líf sitt á gáfum fattar einn
daginn að hann býr í grafhýsi. Mað-
ur skilur ekki börnin sín, maka sinn,
vini og fjölskyldu með gáfunum ein-
um. Maður verður að nota hjartað.
MÉR FINNST þeir sem eru upp-
teknir af því að vera gáfaðir oft eins
og þeir séu að hluta til dánir. Þeir
brosa sjaldan og hlæja aldrei. Ég
vorkenni þeim. Ég held að þeir séu
hræddir því þeir þekkja ekki visku
hjartans og kunna ekki neitt í sam-
skiptum. Mér finnst þeir vera að
missa af inntaki lífsins, sem er ekki
að skilja heldur að njóta. Til hvers
að skilja eitthvað ef maður hefur
ekki gaman af því?
GÁFUR eru verkfæri, ekkert
meira. Þær eru eins og byssa,
hvorki betri né verri en sá sem not-
ar þær. Og gáfur eru líka oft kulda-
legar og hafa verið notaðar til
hræðilegra hluta. Aldrei verða eins
miklar tækniframfarir og í stríðum.
KÆRLEIKURINN er gáfaður í
eðli sínu. Gáfur eru ekki kærleiks-
ríkar í sínu eðli, heldur eigingjarnar
og oft hræddar. Heilinn er tilfinn-
ingalaus. Kærleikurinn hefur skiln-
ing á hinum duldu leyndardómum
lífsins. Gáfur geta aldrei skilið hann.
Þess vegna vinna gáfurnar best ef
þeim er stjórnað af kærleikanum.
GÁFUR ERU EKKI LYKILLINN
að hamingjunni. Það er enginn sann-
leikur í gáfum, heldur í fólki með
gott hjartalag. Ég held að okkur
myndi líða miklu betur ef við hætt-
um þessum gáfurembingi og reynd-
um frekar að vera almennileg við
náunga okkar og ekki gáfaðari en
hann.
jongnarr@frettabladid.is
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
88 (56) BAK 18.5.2005 20.47 Page 2