Fréttablaðið - 14.06.2005, Síða 1
Ástin notu› í
marka›sskyni
PITT OG JOLIE, CRUISE OG HOLMES
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
SANTA MARIA, AP Michael Jackson
var í gær sýknaður af öllum
ákæratriðum um að hafa mis-
notað þrettán ára gamlan pilt á
búgarði sínum snemma árs
2003.
Réttarhöldin yfir Michael
Jackson hafa staðið yfir í fjóra
mánuði. Kviðdómur kom saman
í dómshúsinu í Santa Maria í
Kaliforníu í síðustu viku og sat á
rökstólum í alls þrjátíu klukku-
stundir.
Um þrjúleytið að staðartíma
var svo dómurinn kveðinn upp.
Kviðdómurinn sýknaði Jackson
af öllum tíu ákæruatriðunum,
þar á meðal því að hafa misnot-
að piltinn og að hafa gefið hon-
um áfengi.
Söngvarinn hefur allaf neitað
öllum sakargiftum og talið
ávirðingarnar vera settar fram í
ágóðaskyni.
Jackson mætti nokkuð seint í
dómsalinn enda dróst dóms-
uppkvaðningin nokkuð. Hann
sýndi svo engin svipbrigði þegar
dómurinn var kveðinn upp. Þeg-
ar popparinn kom út sendi hann
fingurkossa til fjölmargra
stuðningsmanna sinna sem kom-
nir voru á vettvang.
Ríkti mikill fögnuður á meðal
fólksins og meðal annars sleppti
kona nokkur hvítri dúfu í hvert
skipti sem sýknu Jackson var
lýst yfir.
Jackson ávarpaði hins vegar
ekki fólkið heldur hélt sam-
stundis á brott í svörtum jeppa
ásamt fylgdarliði sínu. ■
Fjögurra mánaða löngum harðvítugum réttarhöldum lokið:
Michael Jackson er saklaus
Meðallestur
á tölublað*
69%
48%
*Skv. fjölmiðlakönnun Gallup í maí 2005.
25-49 ára
SVALT Á NORÐURLANDI og fer
að rigna suðaustanlands.
VEÐUR 4
ÞRIÐJUDAGUR
14. júní 2005 - 159. tölublað – 5. árgangur
Einstakur árangur hjá
Gumma Ben
Guðmundur Benediktsson
hefur lagt upp sex
mörk í síðustu
tveimur
leikjum Vals
í Landsbanka-
deildinni.
ÍÞRÓTTIR 20
Ef alltaf eru jól verða
aldrei jól
Inga Rósa Þórðardóttir segir
nægjusemi og hófsemd vera
hverfandi dyggðir á
meðan græðgin
og gegndarlaus
neysluhyggja
tröllríða
samfélaginu.
UMRÆÐAN 12
Hjólar út
um allt
GÍSLI PÉTUR HINRIKSSON:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● heilsa ● brúðkaup
▲
Valger›ur sög› bera alla ábyrg›
EINKAVÆÐING Ríkisendurskoðandi
segir að Valgerður Sverrisdóttir
sem viðskiptaráðherra beri alla
ábyrgð á sölu Landsbankans og
Búnaðarbankans sem átti sér stað
árið 2002. Ábyrgðin varðandi sölu
bankanna hvílir ekki á ráðherra-
nefndinni heldur fagráðherra, í
þessu tilfelli viðskiptaráðherra.
Þetta kemur fram í skýrslu Rík-
isendurskoðunar um hæfi Hall-
dórs Ásgrímssonar til þess að
fjalla um sölu á hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum til S-hópsins árið
2002, sem Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra kynnti á blaða-
mannafundi í gær.
Ríkisendurskoðandi segir að
ráðherranefndin hafi ekki nægi-
lega skýra stjórnsýslulega stöðu
og að lögformleg staða bæði ráð-
herranefndar og framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu sé
óljós.
Hann segir enga ástæðu til að
véfengja hæfi Halldórs Ásgríms-
sonar forsætisráðherra til þess að
fjalla um sölu á hlut ríkisins í
Búnaðarbankanum vegna
óbeinna eignatengsla hans við S-
hópinn sem keypti Búnaðarbank-
ann. Hagsmunir Halldórs og
skyldmenna hans hafi verið smá-
vægilegir.
Á þessum tíma átti Halldór um
1,33 prósenta hlut í Skinney-
Þinganesi, sem átti helmingshlut
í Hesteyri sem var einn stærsti
hluthafinn í Keri, sem var hluti
af S-hópnum. Skyldmenni Hall-
dórs áttu samtals um 25 prósenta
hlut í Skinney-Þinganesi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir það orka mjög tvímælis að
ríkisendurskoðandi sé að úr-
skurða um hæfi Halldórs Ás-
grímssonar. „Ríkisendurskoð-
andi segir sjálfur í skýrslunni að
þarna sé um að ræða lögfræði-
legt álitaefni sem löggjafinn hef-
ur alls ekki ætlað Ríkisendur-
skoðun að leysa úr. Fyrst að lög-
gjafinn hefur alls ekki ætlað rík-
isendurskoðanda að leysa úr
þessu álitaefni, af hverju tekur
hann þá það frumkvæði að gera
það?“ spyr Ingibjörg Sólrún.
Hún segir að eðlilegt sé að aðr-
ir aðilar en ríkisendurskoðandi,
svo sem prófessorar í stjórnar-
farsrétti eða umboðsmaður Al-
þingis, úrskurði um mál sem
þetta.
Ekki náðist í Valgerði Sverris-
dóttur í gærkvöldi.
- sda
Sjá síður 2 og 10.
▲
UNGT FÓLK 40
FRÆGA FÓLKIÐ
Hættur a› hefta
bækur sjálfur
HUGLEIKUR DAGSSON
▲
FÓLK 46
BÓKAÚTGÁFA
VEÐRIÐ Í DAG
Hæfi Halldórs
Halldór Ásgrímsson segist aldrei
hafa hugleitt að skýra frá óbein-
um eignatengslum sínum við S-
hópinn í aðdraganda kaupa S-
hópsins á Búnaðarbankanum.
BAKSVIÐS 10
DÝRKEYPTUR SIGUR Michael Jackson yfir-
gaf dómsalinn strax og dómurinn hafði
verið kveðinn upp. Thomas Mesereau Jr.,
lögfræðingur hans, fylgdi í humátt á eftir.
Ný reikistjarna fundin:
Ekkert líf
vegna hita
ALHEIMURINN Bandarískir stjörnu-
fræðingar hafa fundið reikistjörnu
sem er sú smæsta sem vitað er um
utan okkar sólkerfis.
Massi plánetunnar er ríflega sjö-
falt meiri en massi jarðarinnar en
ólíkt þeim reikisstjörnum sem þeg-
ar hafa verið uppgötvaðar utan sól-
kerfis okkar sem allar eru úr gasi er
þessi talin vera úr föstu efni.
Þessi stjarna, sem stjörnufræð-
ingarnir við Kaliforníuháskóla kalla
„ofur-jörð“, er á sporbaug um sólina
Gliese 876 en hún er fimmtán ljósár
frá jörðu, nærri stjörnumerkinu
Vatnsberanum. Umferðartími henn-
ar um Gliese 876 er aðeins tveir
dagar. Hún er auk þess svo nálægt
sólinni að yfirborðshiti hennar er á
bilinu 200-400 gráður. Því er telja
vísindamenn afar ólíklegt að nokk-
urt líf þrífist þar þrátt gerð hennar.
Tvær gasstjörnur snúast auk þess
um Gliese 876.
„Við höldum áfram að færa
niður mörk þess greinanlega og
þannig komumst við sífellt nær því
að finna stjörnur sem eru á stærð
við jörðina,“ segir Steven Vogts,
einn vísindamannanna. ■
Ríkisendursko›andi segir a› Halldór Ásgrímsson hafi ekki veri› vanhæfur til a› fjalla um sölu Búna›ar-
bankans ári› 2002 flrátt fyrir óbein eignatengsl vi› kaupendur bankans, S-hópinn. Ríkisendursko›andi
segir ábyrg›ina á bankasölunni alfari› á höndum Valger›ar Sverrisdóttur, vi›skiptará›herra.
ÚR RÁÐHERRABÚSTAÐNUM Nokkra undrun vakti að til blaðamannafundarins í Ráðherrabústaðnum í gær var boðað með aðeins fjörutíu
mínútna fyrirvara. Engu að síður létu fréttamenn sig ekki vanta til fundarins þar sem Halldór skýrði frá niðurstöðum ríkisendurskoðanda
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I