Fréttablaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 13
Vitaskuld munum vi› halda
áfram á sömu braut enda
metna›armál a› hafa öflugan
Lánasjó› sem sinnir félagslegu
tilliti sínu fyrir alla námsmenn
í landinu.
Metna›arfullar breytingar á LÍN
Undanfarið ár hafa orðið miklar
breytingar til hagsbóta fyrir náms-
menn á Lánasjóði íslenskra náms-
manna. Ber þar hæst lækkun end-
urgreiðslubyrði námslána, lækkun
skerðingarhlutfalls, afnám frí-
tekjumarks, breytingar á ábyrgða-
mannakerfinu, hækkun grunn-
framfærslu, aukið sumarlánasvig-
rúm og fleira. Þetta eru brýn hags-
munamál námsmanna og er
ánægulegt að algjör samstaða
skyldi nást innan stjórnar LÍN um
úthlutanarreglur fyrir næsta vetur.
Lækkun skerðingarhlutfalls
hefur lengi verið baráttumál náms-
manna og hef ég víða orðið vör við
mikla gagnrýni á hlutfallið, en
námsmönnum hefur fundist þeim
refsað fyrir að vinna. Stefna
stjórnvalda undanfarin ár hefur
verið að lækka skerðingarhlutfall-
ið en það var komið upp í 75 pró-
sent, en fer nú niður í 14 prósent.
Þetta er gríðarleg breyting og sam-
hliða því að afnema frítekjumarkið
má gera ráð fyrir því að hagur um
85 prósent námsmanna vænkist
eftir breytinguna. Nú hafa náms-
menn frjálsari hendur til að afla
sér tekna sem er afar jákvætt, ekki
síst vegna þess að við viljum auka
tengsl atvinnulífs og skóla. Lækk-
un endurgreiðslubyrði námslána
var eitt af stærri kosningaloforð-
um Framsóknarflokksins í síðustu
kosningum. Í vetur var lækkunin
lögfest en endurgreiðslan fór úr
4.75 prósent í 3.75 prósent. Varla
þarf að fjölyrða mikið um mikil-
vægi þessa máls en fyrir útskrifað-
an nema með um 250.000 krónur á
mánuði lækkar endurgreiðslan um
30.000 krónur á ári. Það munar nú
um minna. Breytingin er stór liður
í því að gera nám enn arðbærara.
LÍN hefur ásamt bönkunum unnið
að því að gera ábyrgðamannakerf-
ið liðlegra. Nú geta námsmenn, eða
án efa í einhverjum tilfellum að-
standendur þeirra, keypt trygg-
ingu í banka sem ábyrgist lánin
þeirra. Þetta er gríðarlega stórt
réttindamál, ekki síst fyrir þá sem
ekki hafa átt neina aðstandendur til
að skrifa upp á lán sín.
Fleiri atriði voru tiltekin og vil
ég sérstaklega vekja athygli á því
að nú hafa námsmenn sama rétt til
lána yfir sumarmánuðina og á öðr-
um árstíma. Þannig geta náms-
menn flýtt fyrir námslokum sínum
með sumarnámi. Það getur verið
gott úrræði þegar erfitt er að verða
sér úti um sumarvinnu. Það má
með sanni segja að námsmenn
verði betur settir næsta vetur held-
ur en áður varðandi úthlutun LÍN.
Stjórnvöld hafa lagt mikinn metn-
að í að koma til móts við námsmenn
og hafa námsm lýst yfir ánægju
með árangurinn. Vitaskuld munum
við halda áfram á sömu braut enda
metnaðarmál að hafa öflugan Lána-
sjóð sem sinnir félagslegu tilliti
sínu fyrir alla námsmenn í landinu.
Höfundur er alþingismaður og
varaformaður menntamálanefndar.
13ÞRIÐJUDAGUR 14. júní 2005
DAGNÝ JÓNSDÓTTIR
UMRÆÐAN
LÁNASJÓÐUR ÍSLENSKRA
NÁMSMANNA
BRÉF TIL BLAÐSINS
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek-
ið á móti efni sem sent er frá Skoðana-
síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið-
beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
Þrengsli í flugi
Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi hjá Neyt-
endasamtökunum, skrifar
Í ljósi lesendabréfs „Þrengsli í flugi“ í
Fréttablaðinu þann 13. júní vilja Neyt-
endasamtökin koma eftirfarandi á fram-
færi. Nýlega hefur verið til umfjöllunar í
fjölmiðlum könnun ráðgjafastofunnar
Skytrax á aðbúnaði flugfarþega og vöktu
Neytendasamtökin athygli á henni á
heimasíðu samtakanna, www.ns.is,
þann 10. júní sl.
Neytendasamtökin tóku þetta mál upp
fyrir ári síðan í Neytendablaðinu 2. tbl
2004 í grein sem bar heitið „Þröngt
mega farþegar sitja“. Þar var ítarlega fjall-
að um aðbúnað íslenskra flugfarþega og
talað við talsmenn Icelandair og Iceland
Express. Það er því ekki rétt eins og hald-
ið er fram í fyrrnefndu lesendabréfi að
Neytendasamtökin láti sig ekki málið
varða, þvert á móti.
Það er rétt að ítreka að Neytendasam-
tökin eru félagasamtök og eiga allt sitt
undir félagsmönnum. Neytendasamtök-
unum er því miður ómögulegt að taka
upp öll þau brýnu mál sem brenna á
neytendum nema að fá til þess aukinn
stuðning. Það þýðir fleiri félagsmenn
og/eða aukinn fjárstuðning stjórnvalda.
Neytendasamtökin standa fyrir öflugri
hagsmunagæslu neytenda og halda
uppi umræðu um neytendamál á
heimasíðunni www.ns.is og í Neytenda-
blaðinu.
ÞÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR
Í frétt um nýja bók Þóru Krist-
jánsdóttur listfræðings á sunnu-
dag birtist mynd af Margréti
Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði,
en ekki Þóru. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTTING