Fréttablaðið - 14.06.2005, Side 2
2 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
MÓTMÆLI Mótmæli sem samtökin
Náttúruvaktin stóðu fyrir fyrir
utan Nordica hótel í gær vöktu litla
hrifningu skipuleggjenda alþjóð-
legrar álráðstefnu sem þar fer
fram. Fór nærvera um tíu mótmæl-
enda svo mjög fyrir brjóstið á þeim
að þess var krafist að lögregla yrði
kölluð til.
Voru samtökin að mótmæla því
að slík ráðstefna væri haldin hér á
landi svo lítið beri á en þátttakend-
ur á henni skipta tugum og eru allir
helstu álframleiðendur heims með
fulltrúa á staðnum. Er ætlunin að
samræma framtíðarstefnu iðnað-
arsins næstu ár og áratugi og voru
mótmælendur mótfallnir því að Ís-
land væri í forgrunni slíkra hug-
mynda. Ennfremur er gagnrýnt að
íslensk orkufyrirtæki á borð við
Landsvirkjun og Orkuveitu Reykja-
víkur skyldu styrkja slíka ráð-
stefnu og voru meðal annars Rann-
veigu Rist, forstjóra Alcan í
Straumsvík, formlega afhent mót-
mæli hópsins.
Ráðstefnunni verður framhaldið
í dag en í morgun heldur hópurinn
austur á land og er ætlunin að skoða
þar Kárahnjúkavirkjun. -aöe
Myndband birt af Saddam Hussein:
Vill a› rétta› ver›i yfir sér í Svífljó›
BAGDAD, AP Myndband þar sem
Saddam Hussein sést í yfirheyrsl-
um hefur nú verið gefið út af dóm-
stólnum sem var sérstaklega skip-
aður til að fjalla um mál hans.
Í myndbandinu sést hvar
Saddam er spurður út í voðaverk á
borð við Anfal-fjöldamorðin á Kúr-
dum. Ekki hefur enn verið gefið
upp hvar eða hvenær upptakan er
gerð en þetta er í fyrsta skipti sem
Saddam sést síðan hann kom fyrir
réttinn í fyrsta sinn síðastliðið
sumar.
Lögmaður Saddams hefur lýst
því yfir að einræðisherrann fyrr-
verandi vilji að réttað verði yfir
honum í Svíþjóð og bætti því við að
samkvæmt írösku stjórnarskránni
væri Saddam friðhelgur fyrir
hvers kyns ákærum. Aðspurður
um ástæðurnar fyrir því af hverju
Svíþjóð væri fyrsti kostur sagði
lögmaðurinn að aðstæður væru
slíkar í Írak að ekki væri hægt að
búast við sanngjörnum réttarhöld-
um, líklegra væri að Saddam fengi
sanngjarna málsmeðferð í Svíþjóð.
Ákæruatriðin gegn Saddam eru
fjölmörg, þar á meðal morð á póli-
tískum andstæðingum, efnavopna-
árásir á Kúrda og innrás í Kúveit
og spá flestir stjórnmálaskýrendur
því að hann verði dæmdur til
dauða. ■
Fjárlaganefnd fjallar
ekki frekar um máli›
fiingma›ur stjórnarandstö›unnar segir a› ni›ursta›a ríkisendursko›unar
sé upphaf frekar en endir. Forma›ur fjárlaganefndar segir máli› ekki ver›a
á dagskrá nefndarinnar í dag.
EINKAVÆÐING Formaður fjárlaga-
nefndar ætlar ekki að taka
skýrslu ríkisendurskoðunar um
hæfi forsætisráðherra til umræðu
á fundi nefndarinnar á morgun.
Stjórnarandstaðan segir skjóta
skökku við að forsætisráðherra
hafi kynnt skýrsluna sjálfur.
„Þetta mál er ekki á dagskrá á
fundi fjárlaganefndar því við
erum að ræða allt aðra hluti,“ seg-
ir Magnús Stefánsson, formaður
fjárlaganefndar, aðspurður um
hvort niðurstaða ríkisendurskoð-
unar um hæfi forsætisráðherra
verði á dagskrá nefndarinnar á
fundi í dag.
Magnús segir ekkert ljóst
hvort málið verði tekið upp á
seinni stigum. „Ég hef aldrei efast
um hæfi Halldórs í þessu máli.
Þetta sjónarspil stjórnarandstöð-
unnar eru skot út í loftið og alls
ekki við hæfi.“
Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, seg-
ir að honum komi niðurstaðan á
óvart og að hann telji nauðsynlegt
að fá lagalegt álit vegna málsins.
„Ég hélt að sú skylda sem lögð var
á menn samkvæmt stjórnsýslu-
lögunum væri þannig að menn
ættu að segja sig frá málum þar
sem um vensl eða hagsmuni væri
að ræða. Ég er ekki búinn að
kyngja því að Halldór hafi ekki
verið vanhæfur og þetta mál þarf
að skoða betur,“ segir Guðjón.
Lúðvík Bergvinsson, þingmað-
ur Samfylkingar, segir að honum
finnist óðagot að boða til fundar
með hálftíma fyrirvara. „Það
bendir ekki til mikillar yfirvegun-
ar. Í öðru lagi þá kemur fram í
áliti ríkisendurskoðunar að það sé
ekki hennar hlutverk að fjalla um
lögfræðileg álitaefni og sú spurn-
ing vaknar hvers vegna hún var
þá að taka málið upp að eigin
frumkvæði. Í þriðja lagi finnst
mér einkennilegt að sá sem rann-
sóknin beinist að er látinn kynna
skýrsluna.“
Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður Vinstri-grænna,
segir það með ólíkindum að for-
sætisráðherra lesi upp fyrir
fréttamenn valda kafla úr skýrslu
um meinta spillingu sína sem
samin er af eftirlitisaðila Alþing-
is. „Í mínum eyrum hljómar þetta
frekar sem upphaf en endir.“
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
segir athugunina án alls samráðs
við fjárlaganefnd. „Þetta er að
frumkvæði ríkisendurskoðunar
og okkur algjörlega óviðkomandi.
Ríkisendurskoðandi var á fundi
okkar að kynna ákveðin atriði í
skýrslu sinni um einkavæðingar-
ferlið en ekki neitt hvað þetta
varðar.“ hjalmar@frettabladid.is
Þjóðhagsreikningar:
Mikill vöxtur
einkaneyslu
EFNAHAGSMÁL Þjóðarútgjöld Íslend-
inga, sem eru samanlögð einka-
neysla hér á landi og fjárfestingar,
hafa vaxið um 11,1 prósent á fyrsta
ársfjórðungi ársins miðað við sama
tíma í fyrra þótt landsframleiðsla
hafi ekki vaxið nema um 2,9 pró-
sent á sama tíma. Útgjöldin hafa
því aukist meira en tekjurnar.
Mestu munar um 17,7 prósenta
aukningu á innflutningi á sama
tíma og útflutningur hefur dregist
saman um 3,0 prósent en hvort
tveggja má rekja til hás gengis.
Þetta kemur fram í nýútgefnum
Þjóðhagsreikningum Hagstofunn-
ar. - grs
VERKSUMMERKI RANNSÖKUÐ Lögreglan
hefur enn ekki borið kennsl á þann sem
keyrði pallbíl hlaðinn sprengiefni sem
grandaði fimmtán og særði um sextíu til
viðbótar.
15 farast í tilræði:
Óvíst hver
er ábyrgur
INDLAND, AP Fimmtán létust og
sextíu særðust í sjálfsmorðs-
sprengjuárás í Kasmír í gær. Á
meðal þeirra sem létust var fjórt-
án ára gamall piltur. Enginn hefur
lýst ábyrgð á hendur sér.
Pallbíl, sem hlaðinn var fjöru-
tíu kílóum af sprengiefni, var ekið
í gegnum bæinn og hann svo
sprengdur í loft upp. Skömmu eft-
ir sprenginguna þustu íbúar úr
nálægum húsum út á götu og
brást lögreglan við með því að
beita táragasi.
Samtök sem styðja Pakistan í
deilunni um Kasmír hafa lýst yfir
allsherjarverkfalli í dag til að
mótmæla sprengjuárásinni.
66 þúsund manns eru taldir
hafa týnt lífi í átökum um Kasmír
á síðustu áratugum. ■
NAKIÐ HJÓLAFÓLK Hundruð nak-
inna mótmælenda hjóluðu um
götur ýmissa stórborga Evrópu
nú um helgina til að mótmæla
því hversu háðir Vesturlandabú-
ar eru bensínþyrstum bílum.
Mótmælendurnir hjóluðu hjá
helstu merkisstöðum borganna
og vöktu óskipta athygli hvar
sem þeir komu. Hægt er að
skoða myndir af þessari sérstöku
baráttuaðferð á vefsíðunni
worldnakedbikeride.org.
Umferðarslys:
Vörubíll ók á
unga stúlku
LÖGREGLUMÁL Vörubíl var ekið á tíu
ára stúlku á gatnamótum Kringlu-
mýrar- og Miklubrautar laust eftir
hádegið í gær.
Tók vörubílstjórinn hægri
beygju á grænu ljósi á sama tíma
og stúlkan fór yfir gangbraut og
lenti hún undir afturhjóli bílsins.
Telpan var flutt á slysadeild Land-
spítala-Háskólasjúkrahúss en ótt-
ast var að hún hefði slasast mjög
alvarlega. Til allrar hamingju
reyndust meiðsl hennar minni en
óttast var en hún slasaðist mest á
læri. Var hún lögð inn á sjúkrahús-
ið þar sem fylgst verður með henni
næstu vikurnar. -aöe
Rán framið í Olís Hamraborg:
Ógna›i me›
skrúfjárni
LÖGREGLUMÁL Úlpuklæddur maður
framdi rán á bensínafgreiðslustöð
Olís í Hamraborg í Kópavogi laust
eftir klukkan fimm í gærdag.
Ógnaði hann tveimur starfsmönn-
um stöðvarinnar með skrúfjárni
áður en hann hvarf á brott með
sölu dagsins.
Notaði maðurinn skrúfjárnið
til að opna sjóðsvélina þaðan sem
hann tók allháa peningaupphæð.
Hann hljóp svo á brott gegnum
bílageymslu undir Hamraborg en
þaðan eru fjölmargir útgangar.
Bar leit lögreglu engan árang-
ur en rannsókn stendur yfir. Von-
ast er til að öryggismyndavélar í
bensínsstöðinni og í bílageymsl-
unni komi að notum við að bera
kennsl á manninn. -aöe
SPURNING DAGSINS
Runólfur, eru ekki bara fjög-
urra stjörnu vegir á Íslandi?
Ætli sé ekki nær lagi að þeir séu með
eina stjörnu
Unnið er að úttekt á þjóðvegunum og verða þeim
gefnar stjörnur, frá einni upp í fjórar, eftir öryggi.
Runólfur Ólafsson er framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda.
EVRÓPA
ENGA FREKARI STÓRIÐJUFélagar í samtök-
unum Náttúruvaktin afhentu Rannveigu
Rist mótmæli sín vegna alþjóðlegrar álráð-
stefnu sem hér er haldin þessa dagana.
Mörg íslensk orkufyrirtæki styrkja ráðstefn-
una sem sótt er af öllum stærstu álfram-
leiðendum heimsins.
SADDAM HUSSEIN VIÐ YFIRHEYRSLUR Myndband þar sem Saddam Hussein er yfirheyrður
hefur nú verið gefið út af réttinum sem skipaður var til að fjalla um mál hans. Myndin er
tekin úr því myndbandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
EKKI VANHÆFUR Stjórnarandstaðan sættir sig ekki við álit Ríkisendurskoðunar en stjórn-
arliðar fagna niðurstöðunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Náttúruverndarsinnar mótmæltu álráðstefnu:
Skipuleggjendur
köllu›u til lögreglu
FLUTNINGAVÉL FERST Flugvél af
gerðinni DC-3 fórst skammt frá
Fort Lauderdale í Flórída í gær-
kvöld. Þrír voru um borð og er
óttast að allir hafi farist.
BANDARÍKIN