Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,24 65,56
117,62 118,20
78,59 79,03
10,56 10,62
10,04 10,10
8,48 8,53
0,60 0,60
95,19 95,75
GENGI GJALDMIÐLA 13.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,88 +0,43%
4 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
ÞRÓUNARLÖND Skilyrði geta komið
í veg fyrir að ávinningur af
skuldaniðurfellingu margra af
fátækustu ríkja heims komist til
þeirra sem mest þurfa á að
halda. „Skilyrði um stjórnhætti,
baráttu gegn spillingu og þróun í
lýðræðisátt útiloka mörg fátæk-
ustu landanna,“ sagði Jónas Þór-
ir Þórisson, framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar í Há-
degisútvarpi Talstöðvarinnar í
gær.
„Mörg af fátækustu löndunum
geta ekki uppfyllt þessi skilyrði
án utanaðkomandi aðstoðar,“
sagði Jónas Þórir. „Aðstoðin nær
því ekki til þeirra sem verst eru
settir en þær þjóðir sem þegar
eru komnar á skrið fá aðstoð.“
Jónas segir jákvætt að þær þjóð-
ir fái aðstoð en ekki megi gleyma
hinum sem ekki eiga hennar
kost.
Jónas segir mörg vandamál
koma upp þegar ráðstafa eigi
fjármunum sem vinnast við
skuldaniðurfellinguna og þar
bíði ærið verkefni frjálsra fé-
lagasamtaka. „Frjáls félagasam-
tök geta tekið höndum saman og
aðstoðað stjórnvöld við að
byggja upp stjórnkerfið,“ segir
Jónas Þórir. „Þau geta jafnframt
verið nokkurs konar varðhundar
á að allt fari vel fram og að að-
stoðin verði ekki spillingu og
misnotkun að bráð.“ ■
Pútín kve›st hlynntur
ni›urfellingu skulda
Tony Blair og Vladimir Pútín sátu á rökstólum í Moskvu í gær flar sem a›sto›
vi› flróunarlöndin og loftslagsmál voru efst á baugi. Vi›ræ›urnar eru li›ur í
fundaherfer› Blairs fyrir lei›togafund átta helstu i›nríkja heims í næsta mánu›i.
RÚSSLAND, AP Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, sótti Vla-
dimir Pútín, Rússlandsforseta,
heim í gær. Niðurfelling skulda
þróunarlandanna og umhverfis-
mál voru þar ofarlega á baugi. Í
kjölfar fundarins hélt svo Blair til
Þýskalands þar sem hann hitti
Gerhard Schröder, kanslara.
Fundur Blairs og Pútíns í gær
er liður í ferð þess fyrrnefnda
fyrir leiðtogafund átta helstu iðn-
ríkja heims í Gleneagles,
Skotlandi, sem haldinn verður í
byrjun júlímánaðar. Þar hyggst
Blair berjast fyrir því að þróunar-
aðstoð við Afríkuríkin verði tvö-
földuð og ná samkomulagi um að
spornað verði við gróðurhúsa-
áhrifum. Leiðtogarnir tveir
ræddu þessi mál í bænum Novo-
Ogaryovo, skammt utan við
Moskvu í gær og virtist fara vel á
með þeim.
Ekki er langt síðan að Rússar
skrifuðu undir Kyoto-bókunina og
skuldbundu sig þar með til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Því vonast Bretar til að
Rússar verði þeim drjúgur banda-
maður í því að sannfæra Banda-
ríkjamenn um að bregðast verði
við hlýnun jarðar með einhverj-
um hætti. Hins vegar hefur verið
grunnt á því góða milli þjóðanna á
síðustu misserum, meðal annars
vegna Íraks og sökum þess að
Bretar hafa veitt andstæðingum
Pútíns hæli í landinu, til dæmis
auðjöfrinum Boris Berezovsky og
Akhmed Zakayev, hægri handar
Aslan Maskadovs, fyrrum leið-
toga Tsjetsjena.
Þeir Pútín og Blair ræddu við
blaðamenn að loknum fundinum
og þar kom fram að Pútín er
hlynntur hugmyndum hins breska
starfsbróður síns um niður-
fellingu skulda fátækra ríkja.
Einnig voru málefni fyrrum
Sovétlýðveldanna þar til umræðu
en róstusamt hefur verið þar
undanfarna mánuði, eins og at-
burðirnir í Úkraínu, Kirgisistan
og Úsbekistan eru dæmi um.
Pútín sagði að Rússland og Vest-
urveldin ættu að vinna saman að
því að gera þennan heimshluta
stöðugri en ekki keppast um
áhrif í honum.
Síðdegis hélt Blair svo til
Berlínar til fundar við Gerhard
Schröder, kanslara. Í dag eru svo
fyrirhugaðir fundir við leiðtoga
Lúxemborgar og Frakklands. Þær
viðræður munu hins vegar öðru
fremur snúast um þær ógöngur
sem Evrópusambandið er komið í
eftir úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslna í Frakklandi og Hollandi
um stjórnarskrársáttmála ESB. ■
Ástæða verðbólgu:
Húsnæ›islán
valda flenslu
EFNAHAGSMÁL Verðbólgan er keyrð
áfram af breytingum á húsnæðis-
markaði, ekki framkvæmdunum
fyrir austan. Þetta sagði Guð-
mundur Ólafsson hagfræðingur á
Talstöðinni fyrir helgi.
„Bankarnir hafa að undan-
förnu fengið dollara eða pund að
láni og keypt íslenskar krónur.
Eftirspurn eftir íslenskum krón-
um er stóraukin og gengi krón-
unnar hækkar,“ sagði hann.
„Kárahnjúkar koma eitthvað
við sögu en sáralítið. Þenslan inn-
anlands stafar af því að vextir á
húsnæðislánum lækka og kaup-
máttur heimilanna vex.“ -ghs
STARFSMENN TELJA ATKVÆÐI Ítalirnir
þurftu að telja færri atkvæði en þeir gerðu
ráð fyrir þar sem kosningaþátttaka var
mjög dræm.
Kosning ógild:
fiátttakan
of dræm
RÓM, AP Ítalir kusu í gær og í
fyrradag um það hvort slaka eigi
á löggjöf um stofnfrumurann-
sóknir og glasafrjóvganir. Kosn-
ingarnar voru hins vegar ógildar
þar sem þátttaka var afar dræm.
Á fyrri degi kosninganna kusu
ekki nema tæp 19 prósent kjós-
enda og þegar yfir lauk í gær var
kjörsóknin aðeins 24 prósent.
Að minnsta kosti helmingur
kosningabærra manna þurftu að
kjósa til að kosningarnar væru
bindandi. Almennt áhugaleysi og
hvatning kaþólsku kirkjunnar til
fólks um að sniðganga kosning-
arnar eru ástæður þessarar
dræmu kjörsóknar. Niðurstöðunni
var ákaft fagnað í Páfagarði. ■
HLÚÐ AÐ SLÖSUÐUM Þessi piltur var einn
þeirra sem bjargaðist í flóðinu á föstudag.
Lík 88 skólafélaga hans hafa fundist en
nokkurra er enn saknað.
Aurflóð í Kína:
Tugir barna
t‡ndu lífinu
KÍNA Nú er ljóst að í það minnsta 92
fórust í skyndilegu aurflóði sem féll
á barnaskóla í Shalan, Heilongjiang-
héraði í Kína á föstudag. 88 þeirra
sem létust voru lítil börn sem
komust ekki út úr kennslustofu
sinni þegar flóðbylgjan skall á skól-
anum.
Mikla úrkomu gerði óvænt fyrir
helgi í héraðinu og urðu flóðin í
kjölfar þess. Gagnrýnisraddir hafa
hins vegar verið á lofti um að van-
ræksla embættismanna kynni að
hafa valdið því að skaðinn var jafn
mikill og raun bar vitni.
Þá týndi 31 lífi í eldsvoða á hóteli
í Guangdong. ■
Samfylkingin í Reykjavík:
Vill vi›ræ›ur
um R-listann
BORGARMÁL Stjórn Samfylkingarfé-
lagsins í Reykjavík vill ganga til
viðræðna um endurnýjað samstarf
innan Reykjavíkurlistans. Í ályktun
stjórnar félagsins, sem hélt fund
síðastliðinn sunnudag, segir að ár-
angur síðustu þriggja kjörtímabila
sé slíkur að ábyrgðarlaust og óskyn-
samlegt væri að slíta samstarfi
Reykjavíkurlistans. Stjórn félags-
ins beinir því til fulltrúaráðs Sam-
fylkingarfélaganna í Reykjavík að
veita félögunum umboð til samn-
ingaviðræðna undir merkjum
Reykjavíkurlistans. ■
BANDARÍKIN
VEÐRIÐ Í DAG
JÓNAS ÞÓRIR ÞÓRISSON Framkvæmda-
stjóri Hjálparstarfs kirkjunnar segir ærið
verkefni bíða hjálparstarfsmanna eftir nið-
urfellingu skulda átján fátækra ríkra þriðja
heimsins.
HUNDELTIR LEIÐTOGAR Blair og Pútín voru léttir í lund að viðræðunum loknum.
Labradorhundur Pútín, Koni, fylgdi þeim eins og skugginn meðan á fundi þeirra stóð.
HUNDAR BÍTA DRENG TIL BANA
Sá hörmulegi atburður varð í San
Francisco í Kaliforníu að tveir
grimmir hundar bitu tólf ára
gamlan dreng svo illa að hann
hlaut bana af. Móðir drengsins
viðurkenndi að heimilishundarnir
gætu verið hættulegir börnum en
engu að síður skildi hún drenginn
eftir heima með hundunum á
meðan hún fór út í búð. Þegar
hún kom til baka var sonur henn-
ar látinn eftir hundsbit.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Skilyrði fyrir niðurfelling skulda fátækustu ríkja heims sögð helst til ströng:
Ávinningurinn gæti fari› fyrir líti›