Fréttablaðið - 14.06.2005, Page 6
6 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
JARÐORKA Stjórn Þeistareykja hefur
ákveðið að ganga til viðræðna við
Landsvirkjun um orkuöflun fyrir ál-
ver á Norð-Austurlandi. Bæði
Landsvirkjun og Orkuveita Reykja-
víkur höfðu lýst yfir áhuga á að
eignast hlut í Þeistareykjum ehf. en
Hreinn Hjartarson, veitustjóri
Orkuveitu Húsavíkur, segir að
Landsvirkjun hafi orðið fyrir valinu
þar sem aðkoma Landsvirkjunar að
frekari orkuöflun í Þingeyjarsýsl-
um auki lýkur á nýju álveri á Norð-
Austurlandi.
Hreinn segir að Þeistareykja-
virkun muni geta annað um þriðj-
ungi af orkuþörf nýs álvers í ná-
grenni Húsavíkur. „Það verður hins
vegar ekki ráðist í Þeistareykja-
virkjun nema til komi álver eða
önnur stóriðja á Norð-Austurlandi.
Þeistareykir ehf. hafa nú þegar lagt
nokkur hundruð milljónir króna til
rannsókna á svæðinu en með að-
komu Landsvirkjunar að málinu
verður frekari rannsóknum á
Þeistareykjum flýtt,“ segir Hreinn.
- kk
LÍBANON, AP Þriðja og næstsíðasta
umferð þingkosninganna í Líbanon
var haldin í fyrradag. Flokkum
maroníta og sjía vegnaði ágætlega
en kosið var í austur- og miðhluta
landsins. Flokkar sem börðust
gegn áhrifum Sýrlandsstjórnar eru
með sterk ítök á þessu landsvæði
en fyrirfram var búist við því að
þeir færu með öruggan sigur af
hólmi.
Helst bar til tíðinda gott gengi
flokks Michels Aoun, eins for-
svarsmanna kristinna maroníta og
fyrrum byltingarleiðtoga en hann
snéri aftur úr útlegð fyrir stuttu.
Michel Aoun barðist á sínum
tíma gegn áhrifum Sýrlendinga og
ber kosningabarátta hans þess
mjög merki nú. Flokkur hans er þó
ekki í bandalagi við and-sýrlenska
flokka súnnía. Sökum þess hve
fylgið dreifðist á þá heldur núver-
andi stjórn meirihluta sínum í
þessum hluta landsins. Flokkur
Aouns náði fjórtán þingsætum sem
telst sigur þar á bæ en helsta bar-
áttumál hans var að berjast gegn
spillingu.
Í Beqa-dalnum fékk framboð
Hizbollah og Amal yfirburðakosn-
ingu og jók þar með enn við þing-
sætafjölda sinn. Framboðið er
heldur hlynnt Sýrlendingum
þannig að ljóst er að andstæður eru
að skerpast í landinu.
Fjórði og síðasti dagur kosning-
anna er næstkomandi sunnudag. ■
DÓMSMÁL Sex voru dæmdir í fang-
elsi vegna fíkniefnasmygls frá
Rotterdam í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær. Dómarnir voru frá
hálfu og upp í tvö ár hver. Ung
kona var hins vegar sýknuð af
ákæru um að hafa móttekið ágóða
af fíkniefnabroti.
Dómana hlaut fólkið vegna að-
ildar sinnar að innflutningi á 130
grömmum af kókaíni og um þús-
und stykkjum af e-töflum.
Dómarnir teljast allir nokkuð
þungir dóma miðað við það sem
gengur og gerist í málum sem
þessum. Söluandvirði fíkniefn-
anna hér á landi hefði numið vel
yfir þremur milljónum króna.
Karl Filip Geirsson og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson fengu
þyngstu dómana, alls tvö ár hvor.
Karl Filip var fundinn sekur um
að hafa við annan mann staðið fyr-
ir kaupum á efnunum og lagt á
ráðin um innflutninginn en hann
hefur margoft komist í kast við
lögin áður vegna margvíslegra
brota. Sama gildir um Vilhjálm en
hans þáttur var að mestu bundinn
við að fjármagna fíkniefnakaupin
og hugðist hann hagnast á sölu
efnanna hér á landi.
Aðrir sem að málinu komu
fengu aðeins vægari dóma. Pétur
Steinþór Gunnarsson var dæmdur
til tæplega tveggja ára fangelsis
en hann lagði að hluta á ráðin um
innflutninginn ásamt Karli ásamt
því að hafa milligöngu um að út-
vega efnin gegnum erlendan fé-
laga sinn frá Marokkó, L'Houcine
Bouhlali, sem einnig hlaut 12
mánaða dóm fyrir sinn þátt. Fékk
hann umrædd efni gegnum sam-
bönd sín í Rotterdam þar sem
kaupin voru upphaflega gerð.
Friðrik Þór Bjarnason hlaut
átján mánaða dóm fyrir sína aðild
sem fyrst og fremst fólst í að fjár-
magna kaupin í samvinnu við Vil-
hjálm. Rebekka Jóhannsdóttir var
dæmd til sex mánaða fangels-
isvistar, skilorðsbundið, fyrir að
hafa haft milligöngu um að sækja
efnin á pósthúsið og koma þeim til
skila. Þá var ung kona sýknuð af
að hafa þegið fé frá Bouhlali sem
hún hafði vitneskju um að væri
ágóði af fíkniefnasölu.
albert@frettabladid.is
Hringróður – dagur 9:
Gengur vel
HRINGRÓÐURINN Kjartani Hauks-
syni miðaði ágætlega í sjóferð sinni
um helgina. Hann lagði af stað frá
Reykjafirði á föstudaginn og fór þá
í einni lotu fram að Kaldbaksvík. Á
sunnudaginn reri hann yfir
Húnaflóann. Í gær reri hann frá
Skagaströnd en þá sóttist honum
ferðin hægt vegna mótvinds. ■
Ný samtök gegn álveri:
Atvinnulífi›
einhæft
BYGGÐAMÁL Samtök um fjölbreytta
atvinnuuppbyggingu í Eyjafirðin-
um voru stofnuð á fjölmennum
fundi á Akureyri þann 28. maí síð-
astliðinn. Þau vara eindregið við
þeirri stefnu stjórnvalda að gera
atvinnulíf þjóðarinnar einhæfara
með enn einu álverinu, hugsanlega
við Eyjafjörð. Auk einhæfni telja
þau álver leiða til landspjalla og
loftmengunar.
Í stað álvers vilja samtökin
stuðla að fjölbreytni í atvinnumál-
um með áherslu á nýsköpun, þekk-
ingariðnaði og hátækniiðnaði. ■
Aubenas sleppt:
Laus úr 157
daga prísund
FRAKKLAND Franska blaðakonan
Florence Aubenas kom heim til
Frakklands um helgina eftir fimm
mánaða gíslingu í Írak. Með henni
í haldi í Írak var aðstoðarmaður
hennar.
Aubenas var alls 157 daga í
gíslingu en fyrrum utanríkisráð-
herra, Michel Barnier, sem vann í
málinu þangað til fyrir mánuði,
sagði að Frakkar hefðu ekki greitt
neitt lausnargjald fyrir blaðakon-
una.
Ekki hafa verið borið kennsl á
mannræningjana en rúmenskur
blaðamaður, Ovidiu Ohanesian,
sem var haldið í gíslingu í tvo
mánuði í landinu en síðan sleppt,
varpaði ljósi á málið. Honum var
haldið í gíslingu í 51 dag í klefan-
um við hliðina á Aubenas. - lkg
Átt þú kött sem er ómerktur?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er nauðsynlegt að breyta
stjórnarskránni?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
88%
12%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Einstakt tilboð!
Þjóðhátíðardagshelgi á Hótel Örk
Pantanir í síma:
483 4700
info@hotel-ork.is
www.hotel-ork.is
Daganna 16. - 19. júní
Í tilefni Þjóðhátíðardagsins
17. júní veitum við
Íslendingum og öðrum
gestum tækifæri á að
gera vel við sig og sína.
Frí gisting í tvíbýli á
Hótel Örk ef keyptur er
þriggja rétta
þemakvöldverður hússins.
Verð kvöldverðar einungis
4.900,- krónur á mann.
Fjör fram eftir nóttu í
Hveragerði fimmtudag,
föstudag og laugardag
Veljum íslenskt!
Tómas Þóroddsson og
Jakob V. Arnarson
matreiðslumenn á Hótel Örk
hafa sett saman matseðil fyrir
þjóðhátíðardagshelgina með
úrvals íslensku hráefni.
Golf í Hveragerði
Allir viðskiptavinir Hótels
Arkar býðst að spila frítt golf
á tveimur golfvöllum í
Hveragerði, í Gufudal og við
hlið hótelsins.
BORHOLA Á ÞEISTAREYKJUM Stærstu eig-
endur Þeistareykja eru Orkuveita Húsavík-
ur og Norðurorka og á hvor aðili 47 pró-
senta hlut. Þingeyjarsveit á um fimm pró-
sent og Aðaldælahreppur um eitt prósent.
FUNDIN SEK Fangelsisdómar bíða sex sakborninga af þeim sjö sem ákærð voru fyrir aðild að kaupum og innflutningi á fíkniefnum
snemma á síðasta ári. Áætlun fólksins var að flytja inn lítið magn kókaíns en þegar til kom var þúsund e-töflum bætt við sendinguna.
STUÐNINGSMAÐUR AOUN Michel Aoun sneri aftur úr fjórtán ára langri útlegð fyrir um
fimm vikum síðan og hefur á stuttum tíma hleypt miklu lífi í líbönsk stjórnmál.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Sexmenningar í fangelsi
Sex sakborningar af sjö voru dæmdir í fangelsi fyrir flátttöku sína í kaupum og innflutningi á kókaíni og
e-töflum í Héra›sdómi Reykjaness í gær. Söluver›mæti efnanna er tali› vel yfir flrjár milljónir króna.
Næstsíðasti dagur þingkosninga í Líbanon:
Michel Aoun kom,
sá og sigra›i
Orkuöflun fyrir álver á Norð-Austurlandi:
fieistareykir semja
vi› Landsvirkjun
HANDTEKIN VEGNA HEIÐURS-
MORÐS Gefin hefur verið út hand-
tökuskipun á móður Rahila Iqbal,
norskrar konu af pakistönsku
bergi brotnu, en hún lést í dular-
fullu bílslysi í Pakistan á dögun-
um. Faðir hennar og afi sitja í
fangelsi í Pakistan og bíða dóms
fyrir meint heiðursmorð á
stúlkunni. Faðirinn hlaut dóm í
Noregi árið 2001 fyrir líkamsárás
á unnusta annarrar dóttur sinnar.
ÁTÖK Í DRAMMEN Mikil slagsmál
brutust út í bænum Drammen á
sunnudagskvöld. Allt að 150
manns eru sagðir hafa tekið þátt í
áflogunum. Þurfti að flytja konu á
sjúkrahús í kjölfarið en sex manns
voru færðir í fangageymslur lög-
reglunnar.
NOREGUR
FAGNAÐARFUNDIR Í FRAKKLANDI Jacques
Chirac Frakklandsforseti tók á móti Aubenas
með kossi í Villacoublay í Vestur-Frakklandi.