Fréttablaðið - 14.06.2005, Page 8
1Hvað heitir skip Eimskipafélagsinssem lagði að við Grundartanga með
ammoníaklekan gám í gær?
2Hvar fann Sólborg ÞH 270 tundurfuflum hádegisbil á sunnudaginn?
3Hvað tafðist lengi Flugleiðavélin semfljúga átti til San Francisco á laugar-
daginn?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Þurrkar um land allt valda vandræðum:
Rignir líklega um helgina
LANDBÚNAÐUR Þó að margir fagni
regnleysinu þá eru þurrkar farnir
að valda vandræðum í landbúnaði
um allt land. Ólafur Dýrmundsson,
ráðgjafi hjá Bændasamtökunum,
segir að ef ekki fari fljótlega að
rigna þá gæti það valdið skaða í út-
haga og ekki síður á túnum. Beitt
hafi verið á tún nú í vor því úthagar
voru ekki tilbúnir og því valdi
keðjuverkun því að heyskap muni
mjög líklega seinka ef fram heldur
sem horfir. Ólafur segir lítið um að
menn vökvi hjá sér túnin, slíkt sé
alltaf erfitt og ómarkvisst.
Haraldur Eiríksson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir nú
sennilega ekki stefna í neitt þurrka-
met, þurrkametið í Reykjavík til
dæmis sé þrjátíu dagar. Hann segir
að útlit sé fyrir einhverja rigningu
austanlands í dag, sennilega verði
þurrt á morgun en svo fari líklega
að rigna eitthvað um land allt fyrir
og um helgina og þá geti bændur
tekið gleði sína á ný.
Sóldýrkendur hafa nú fengið ým-
islegt fyrir sinn snúð undanfarið og
þá er að una bændunum þess að það
rigni smávegis. -oá
FASTEIGNIR Síðastliðinn föstudag
var opnuð ný heimasíða Félags
fasteignasala á slóðinni ff.is. Á
síðunni eru upplýsingar annars
vegar til þeirra sem hyggja á
kaup fasteignar og á hinn bóginn
til þeirra sem ætla sér að selja
fasteign sína. „Reynt er að skýra
út ferli viðskiptanna lið fyrir lið
og hvað það er helst sem neytend-
ur þurfi að hafa í huga,“ segir
Grétar Jónasson, formaður Fé-
lags fasteignasala. Upplýsingar á
síðunni eru aðgengilegar og auð-
veldar í notkun en í hverri viku
munu birtast nýjar fréttir á for-
síðu vefsins af fasteignamarkað-
inum, bæði fróðleikur og fréttir á
léttum nótum.
„Þá er einnig fjallað um það
hvaða kröfur megi gera til fast-
eignasala í gegnum allt ferli við-
skiptanna en mikilvægt er fyrir
neytendur að átta sig á þeim miklu
skyldum og þeirri ábyrgð sem á
fasteignasölum hvíla,“ segir Grétar.
Á heimasíðunni er búið að setja
upp orðabók þannig að fólk geti átt-
að sig á þýðingu ýmissa orða sem
koma fyrir í fasteignaviðskiptum
og þar er einnig listi yfir alla fast-
eignasala og fasteignasölur auk
ýmissa gagnlegra upplýsinga.
Slóð heimsíðunnar er ff.is.
EITUREFNI Fjölmennt lið slökkviliðs
og lögreglu var í viðbragðsstöðu
þegar Lagarfoss, leiguskip Eim-
skipafélagsins, lagðist að bryggju
við Grundartanga í gærmorgun.
Komið hafði verið fyrir leka í
ammóníaksgámi, sem upp hafði
komið þegar skipið var undan
ströndum Skotlands, en slökkvilið
hafði viðbúnað við höfnina þegar
skipið bar að til að tryggja að
frekari leki úr gámnum kæmi
ekki fram þegar hann yrði af-
fermdur. Ákveðið var að afferma
gáminn við Grundartangahöfn
þar sem búist var við hagstæðri
vindátt á Grundartanga.
Skipið kom að bryggju um
klukkan tíu og fljótlega var farið
að afferma aðra gáma en þann þar
sem lekans hafði orðið vart.
Um tíu eiturefnakafarar frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
voru í viðbragðsstöðu. Þegar
gámnum hafði verið komið fyrir á
öruggu og afgirtu svæði hófu eit-
urefnakafararnir að afferma
gáminn og skiptust þeir á tveir og
tveir í einu þar sem um erfitt og
vandasamt verk var að ræða. Alls
voru fimm stórir ammóníakskút-
ar í gámnum og fljótlega var ljóst
að einn þeirra lak. Þegar ljóst var
hver þeirra það var, var sá kútur
fluttur á sérstakt svæði þar sem
komið var fyrir lekann en kútur-
inn mun hafa lekið út frá lokunar-
búnaði kútsins.
Birgir Finnsson, sviðsstjóri hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
sem stjórnaði starfi á vettvangi,
sagði að aðgerðin hefði heppnast
vel í alla staði. Viðbúnaður af því
tagi sem var við höfnina hafi ver-
ið mikill þar sem gæta þurfi
fyllsta öryggis þegar um eiturefni
af því tagi sem um ræðir er til
staðar.
Aðgerðum slökkviliðs var lokið
upp úr hádegi en Lagarfoss sigldi
fljótlega af stað til annarra verk-
efna eftir að hafa affermt gáminn.
hjalmar@frettabladid.is
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN Á BIFRÖST Aðsókn í
nýju námsleiðina HHS hefur farið fram úr
björtustu vonum. Bifröst er fyrsti íslenski
háskólinn sem býður upp á námsleiðina.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst:
Mikil a›sókn
í n‡tt nám
SKÓLAMÁL „Aðsóknin í nýju náms-
leiðina hefur verið framar björt-
ustu vonum. Það eru tveir til þrír
um hvert pláss. Við tökum 45 nem-
endur inn á námsbrautina og af
þeim eru svona 15 til 20 úr frum-
greinadeildinni hjá okkur en þeir
fá sjálfkrafa pláss við námsleið-
ina,“ segir Magnús Árni Magnús-
son, deildarforseti viðskipta- og
hagfræðideildar, um nýja námsleið
HHS sem boðið er upp á við skól-
ann í fyrsta skipti núna í haust. Á
námsleiðinni er tvinnað saman
heimspeki, hagfræði og stjórn-
málafræði. -ifv
HÉRAÐSDÓMUR
Eldur í íbúð:
Engan saka›i
ELDUR Eldur kviknaði í viftu í eld-
húsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýl-
ishúsi í Vesturbergi 138 í Breið-
holti um miðjan dag á sunnudag.
Allt tiltækt slökkvilið á höfuð-
borgarsvæðinu var kallað út en
helmingurinn var kallaður aftur í
höfuðstöðvar slökkviliðs þar sem
ekki var um mikinn eld að ræða.
Slökkviliðið náði að slökkva
eldinn fljótt og örugglega. Tölu-
verður reykur var í íbúðinni og
voru sjö íbúar fluttir á Landspít-
ala – háskólasjúkrahús vegna
gruns um reykeitrun en enginn
þeirra slasaðist alvarlega. Ekki
er ljóst hve miklar skemmdir
urðu á íbúðinni, en þó ljóst að
reykskemmdir hafa verið ein-
hverjar. - lkg
KINDUR Í HAGA Gert er ráð fyrir því að
það rigni um land allt næstu helgi. Bænd-
ur sem hafa haft áhyggjur af langvarandi
þurrkum geta þá tekið gleði sína á ný en
búast má við því að heyskap seinki víða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
VEFSÍÐA OPNUÐ Björn Bjarnason, ráðherra, opnaði formlega nýja vefsíðu Félags fasteignasala
Upplýsingaveita um fasteignaviðskipti:
N‡ vefsí›a tekin í notkun
MARGDÆMDUR AFTUR Í STEININN
29 ára maður var fyrir helgi
dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir
fíkniefnabrot, þjófnað og um-
boðssvik í Héraðsdómi Reykja-
ness. Þá braust maðurinn sem á
langan brotaferil að baki, inn í
bifreið og stal úr henni.
LAGARFOSS HELDUR ÚR HÖFN Eiturefnakafarar komu kútnum sem lak fyrir á öruggu
svæði. Á meðan hélt Lagarfoss úr höfn og sigldi brott út Hvalfjörðinn.
FJÖLMENNI Í VIÐBRAGÐSSTÖÐU Fjölmennt
lið slökkviliðs og lögreglu auk annarra var í
viðbragðsstöðu við Grundartangahöfn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Komi› í veg fyrir leka
Ekkert frekara tjón var› vegna ammóníaksleka í Lagarfossi flegar skipi› lag›ist a› bryggju vi› Grundar-
tanga í gær. Eiturefnaköfurum tókst a› koma í veg fyrir lekann og a›ger›ir tókust í alla sta›i vel.
Hva› er
ammóníak?
EITUREFNI Ammóníak er litlaus
lofttegund sem lyktar afar
illa og er mikið notað sem
kæliefni hér á landi, meðal
annars í frystihúsum. Efnið
er einnig mikið notað við ým-
iss konar iðnaðarframleiðslu,
til dæmis við áburðarfram-
leiðslu og einnig við fram-
leiðslu á söltum sem notuð
eru í iðnaði í ýmsum tilgangi.
Um getur verið að ræða fram-
leiðslu á gerviefnum, svo sem
næloni en einnig er efnið mik-
ið notað til að framleiða hrein-
gerningavörur. -hb