Fréttablaðið - 14.06.2005, Page 12
Mikil er kaupgleði landans. Kaup-
máttur launa hefur aukist stór-
lega og við sjáum enga ástæðu til
að neita okkur um hlutina. Ný
húsgögn, nýr gemsi, nýr bíll eða
jafnvel bílar, leikföng, föt og svo
mætti lengi telja. Fyrir örfáum
mánuðum gekk stór hluti þjóðar-
innar í gegnum skuldbreytingu
lána og greiddi þá m.a. skamm-
tímaskuldir sínar með lengri lán-
um á lægri vöxtum. Yfirdráttar-
skuldir eru aftur orðnar jafn
miklar. Já, það er gaman að
kaupa.
Og mikil er vinnugleði landans.
Allir sem vettlingi geta valdið
vinna og vinna meira, dagvinnu,
yfirvinnu, næturvinnu. Því þrátt
fyrir hægstæð lán, lægri vexti,
lengri lánstíma og allt hvað heiti
hefur þarf að greiða þetta til
baka. Eitthvað hlýtur undan að
láta því sólarhringurinn hefur
ekki lengst og það er svo undar-
legt að þrátt fyrir flóð tækja inn á
heimilin á undanförnum árum,
tækja sem öll eiga að auðvelda
verkin og flýta fyrir, hefur fólk sí-
fellt minni tíma fyrir fjölskyldu,
vini og áhugamál.
Það var áhugavert að hlusta á
hagfræðing Seðlabankans segja
frá því nýlega í viðtali að fólk
virtist hugsa meira um að komast
í gegnum næstu mánaðamót en að
auka eigur sínar. Þess vegna tek-
ur fólk hærri lán til lengri tíma.
Skammtímasjónarmiðið er ríkj-
andi. Fregnir heyrast af slíkri
sóun að það ætti að vera ólöglegt
að fara þannig með peninga á
meðan við vitum að þrátt fyrir allt
lifir of stór hluti þjóðarinnar nán-
ast við sult og seyru. Milljón fyrir
heitan pott og 30 til 40 milljónir
fyrir þrjá bíla í einni innkaupa-
ferð. Slík meðferð peninga er í
besta falli siðlaus. Eða hvað? Er
þetta kannski allt í lagi? Mér er til
efs að þeim, sem þurfa að þiggja
bætur, oft af skornum skammti,
þyki þetta ásættanlegt. Fólk sem
varla á fyrir mat og þarf að
treysta á góðviljaða ættingja, for-
eldra eða börn, er varla sátt við
þessa skiptingu fjármagns í sam-
félaginu.
Og allt skal metið til fjár. Það
þarf að réttlæta menningu með
því að hún gefi meira af sér en
hún kostar þjóðina. Minna er talað
um hin andlegu verðmæti, sjálfs-
mynd og sjálfsvirðingu þjóðarinn-
ar og gildi menningar sem menn-
ingar, burt séð frá tölum í bók-
haldi. Það þarf að reikna út arð-
semi bættra samgangna þótt slík-
ur útreikningur sé í besta falli
vafasamur. Hvað er lagt til grund-
vallar? Hvers virði er byggð í
landinu? Minnisstæð er setning úr
fyrirlestri í Háskóla Íslands fyrir
nokkrum árum; „Það lifa engar
munnmælasögur þar sem ekki
eru munnar til að flytja þær
áfram! Og hvers virði er það okk-
ur að eiga munnmælasögurnar og
aðrar sögur sem lifa aðeins vegna
þess að fólk býr á stöðum og get-
ur flutt þær áfram? Vissulega lifa
einhverjar sögur frá byggðum
sem ekki eru lengur til en þeim
fækkar og margar týnast og finn-
ast kannski aldrei aftur. Er hægt
að meta slíkt til fjár? Þarf endi-
lega að meta þær til fjár?
Peningar eru afl góðra hluta en
geta líka verið handhöfum sínum
fjandsamlegir. Nú virðast pening-
ar skipta öllu máli, þeir flæða um,
skipta um hendur hraðar en
venjulegt fólk skiptir um sokka
og þeir virðast vera hið ríkjandi
afl í samfélaginu. Nú þarf ekki að
efast um gagnsemi og nauðsyn
peninga en þegar önnur gildi virð-
ast hverfa æ lengra frá okkur
hlýtur að þurfa að setja fram
spurningar um forgangsröðun
verkefna, ekki síst hjá fjölskyldu-
fólki.
Áreitið er gegndarlaust, við
„þurfum“ að eignast allt milli
himins og jarðar og peningastofn-
anir eru ekki bara fúsar að lána
okkur peninga heldur beinlínis
halda þeim að okkur. Freisting-
arnar eru á hverju strái og það
getur verið erfitt að standa á
móti. Það þarf sterk bein til að
þola góða daga var einhvern tíma
sagt og það virðist eiga vel við
núna. Nægjusemi og hófsemd eru
hverfandi dyggðir en græðgin og
gegndarlaus neysluhyggja tröll-
ríður samfélaginu okkar. Þetta
hlýtur að bitna á fjölskyldulífi og
á uppeldi barna okkar. Forgangs-
röðunin þarf að breytast og það
ætti að vera lágmarkskrafa okkar
að ein meðalstór fjölskylda geti
lifað vel af launum fyrir eitt og
hálft starf. En þá þarf líka að
draga úr kröfunum, eða öllu held-
ur breyta þeim. Gera meiri kröfur
til fjölskyldulífs og minni kröfur
til veraldlegra hluta. ■
Ríkisendurskoðun segir Halldór Ásgrímsson forsætisráð-herra hafa verið hæfan til að koma að einkavæðingu bank-anna með þeim hætti sem hann gerði og reyndar gott betur.
Hann hefði verið hæfur, að mati Ríkisendurskoðunar, þótt aðkoma
hans hefði verið meiri en hún í raun var.
Á sama tíma segir þingflokksformaður Framsóknarflokksins
nokkuð meira, hann segir um þá sem hafa efast um hæfi forsætis-
ráðherra að þeir hafi háð rógsherferð og forsætisráðherra sjálfur
kveinkar sér undan umræðunni og efasemdunum sem viðraðar
hafa verið síðustu daga og vikur.
Ekki má gleyma að Ríkisendurskoðun er ekki dómstóll. Samt
verður ekki dregið í efa að niðurstöður stofnunarinnar í máli for-
sætisráðherra eru klárar og efasemdir engar. Hins vegar er stjórn-
arandstöðu, fjölmiðlum og kjósendum heimilt hér eftir sem hingað
til að spyrja, jafnvel þótt spurningarnar séu erfiðar. Halldór Ás-
grímsson tengist Skinney-Þinganesi, það er óumdeilt. Fyrirtækið
kom við sögu í aðdraganda sölu bankanna. Þess vegna er ekkert að
því að spurt sé. Og þess vegna verður spurt áfram. Þegar er ljóst
að stjórnarandstæðingar taka niðurstöðu Ríkisendurskoðunar ekki
sem málalokum. Þeir taka undir með Ríkisendurskoðun að niður-
staða stofnunarinnar er ekki lagaleg. Það er einmitt það sem for-
maður Frjálslynda flokksins segir vanta, það er lögfræðilega út-
tekt. Það er ekkert að því að leitað verði eftir áliti annarra en
Ríkisendurskoðunar. Málið er grafalvarlegt. Það er alvarlegt þegar
grunur er um að aðkoma forsætisráðherra hafi ekki verið við hæfi.
Og þótt Ríkisendurskoðun efist ekki um hæfi hans eru samt uppi
efasemdir um að við hæfi hafi verið að hann kæmi að málinu. Það
er ekki stórmannlegt af ráðherra, hvað þá forsætisráðherra að
kveinka sér undan umræðu og gagnrýni. Enginn hefur ráðist að
fjölskyldu ráðherrans, það vill svo til að fjölskylda hans á fjórð-
ungshlut í Skinney-Þinganesi og það er meðal annars, og ekki síst,
þess vegna sem spurningar um hæfi ráðherrans hafa vaknað og um
leið um það hvort það hafi verið við hæfi að hann kæmi að málinu.
Halldór Ásgrímsson var réttilega frá vegna veikinda þegar
bankasalan var gerð. Eigi að síður er erfitt að ímynda sér annað en
að hann hafi vitað hvaða ákvarðanir voru teknar, hvenær og af
hverjum. Allir stjórnendur þekkja þannig verklag. Þess vegna er
því ósvarað hvort það hafi verið við hæfi, að Halldór Ásgrímsson
hafði afskipti af bankasölunni eftir að ljóst var að hann og hans
fjölskylda áttu hagsmuna að gæta. Ríkisendurskoðun segir hann
hafa verið hæfan og það er svo annarra að svara hvort aðkoma
hans hafi verið við hæfi. Þeirri spurningu svara þeir sem kynna sér
málið, hver fyrir sig. ■
14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
SJÓNARMIÐ
SIGURJÓN M. EGILSSON
FRÁ DEGI TIL DAGS
Enginn hefur rá›ist a› fjölskyldu rá›herrans, fla› vill
svo til a› fjölskylda hans á fjór›ungshlut í Skinney-
fiinganesi og fla› er me›al annars og ekki síst fless
vegna sem spurningar um hæfi rá›herrans hafa vakn-
a› og um lei› um fla› hvort fla› hafi veri› vi› hæfi
a› hann kæmi a› málinu.
Í DAG
KAUPGLEÐI ÍSLENDINGA
INGA RÓSA
ÞÓRÐARDÓTTIR
Nú vir›ast peningar skipta öllu
máli, fleir flæ›a um, skipta um
hendur hra›ar en venjulegt
fólk skiptir um sokka og fleir
vir›ast vera hi› ríkjandi afl í
samfélaginu. Nú flarf ekki a›
efast um gagnsemi og nau›syn
peninga en flegar önnur gildi
vir›ast hverfa æ lengra frá
okkur hl‡tur a› flurfa a› setja
fram spurningar um forgangs-
rö›un verkefna, ekki síst hjá
fjölskyldufólki.
Taktu þátt...
í kjöri um áhorfendaverðlaun ársins á visir.is
og þú gætir farið frítt í leikhús - 40 miðar og 4 árskort í boði!
Verðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní
B
as
eC
am
p
Pr
od
uc
tio
ns
Í samvinnu við:
Ef alltaf eru jól ver›a aldrei jól
Tekur varla að tala um tengslin
Þeir sem setja sig í spor Halldórs Ás-
grímssonar forsætisráðherra þessa dag-
ana geta án efa skilið óþol hans gagn-
vart linnulausri og ágengri umfjöllun
stjórnarandstöðunnar og fjölmiðla.
Halldór var varaformaður ráðherra-
nefndar um einkavæðingu á sama tíma
og fyrirtækið Skinney
Þinganes, að hluta í
eigu fjölskyldu hans,
tvinnaðist inn í við-
skipti með hluti
sem síðar tengdust
kaupum á Búnaðar-
bankanum.
Einmitt þarna stendur
hnífurinn í kúnni, því
ákvæði stjórnsýslu-
laga um vanhæfis-
ástæður eru býsna ströng. En eftir að
hafa reifað málið á níu blaðsíðum
komst Ríkisendurskoðandi að því í gær
að í raun hefði verið óþarft að hugleiða
sérstaklega hæfi Halldórs til þess að
fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðar-
bankanum til S hópsins.
Hallærið í góðærinu
Halldór kvaðst á blaðamannafundinum
í gær ýmsu vanur í stjórnmálum en
hann ætlaðist til þess að fjölskylda sín
yrði látin í friði.
Stjórnmálamenn eru vanir atlögu tor-
trygginna fjölmiðla. Stundum reynist
grunur þeirra á rökum reistur. Þannig
var það með Guðmund Árna Stefáns-
son heilbrigðisráðherra þegar hann
sagði af sér 1994. Fæstir muna ávirð-
ingar hans. Þórólfur Árnason borgar-
stjóri þurfti að taka pokann sinn í fyrra.
Sekt hans var áreiðanlega minni en
forstjóranna í olíusamráðsmálinu. Ritt
Bjerregård, eitt sinn menntamálaráð-
herra Danmerkur, varð að segja af sér
þegar hún fór ótæpilega með al-
mannafé á ráðstefnu UNESCO í París.
Og hvað með breskan ráðherra sem
missir ráðherrastól fyrir embættisglöp á
borð við þau að koma au-pair stúlku
inn í landið framhjá lögum og reglum?
Krafan um heiðarleika og trúverðug-
leika hvílir á þjónum almennings, ráð-
herrunum. Nú reynir á trúverðugleika
Ríkisendurskoðanda og forsætisráð-
herra, sem nýlega gekkst undir reglur
um að birta opinberlega upplýsingar
um hagsmunatengsl þingmanna Fram-
sóknarflokksins.
johannh@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
LESTU GREININA Á VISIR.IS
OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
Halldór Ásgrímsson kynnti niðurstöðu Ríkisendurskoðunar.
Sá sem var borinn sökum las upp sýknuorðið
Hæfi og hæfi