Fréttablaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 5
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 14. júní,
165. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 2.58 13.28 23.59
AKUREYRI 1.44 13.13 00.45
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Sumum nægir að stunda eina íþrótt
sér til heilsubótar en Gísli Pétur Hin-
riksson, leikari stundar fjölbreytta
hreyfingu til að halda þrekinu í lagi og
spáir talsvert í mataræðið í þokkabót.
„Ég hjóla mjög mikið en lenti í slysi fyrir
nokkru síðan. Ég flaug fram fyrir mig og
lenti á öxlinni og tognaði. Það var frekar
leiðinlegt en ég er allur að koma til og hjóla
núna út um allt,“ segir Gísli Pétur.
Gísli Pétur lætur ekki hjólreiðarnar
duga og stundar fjölbreytta hreyfingu til að
halda sér í formi. „Ég ákvað fyrir einu og
hálfu ári að koma mér í form. Ég æfi körfu-
bolta með Íslandsmeisturum í Haukum B
en það er 1. flokkur í meistaradeildinni. Ég
æfi reyndar ekki með þeim á sumrin en á
veturna æfi ég þrisvar sinnum í viku og
keppi einu sinni í viku. Ég reyni líka að
lyfta mikið og tek kipp í því en eftir að ég
meiddist hef ég lítið getað stundað það. Svo
syndi ég kílómetra þegar ég fer í sund og
hjóla mikið í sambandi við leiklistina í
Reykjavík en ég bý í Hafnarfirði þannig að
stundum hjóla ég tuttugu kílómetra á dag
tvisvar til þrisvar sinnum í viku.“
En er leiklistin ekki líkamsrækt út af
fyrir sig? „Í rauninni ekki. Það er meira
huglæg leikfimi. Það er dansarinn sem þarf
í rauninni bara að vinna. En ég hef ekkert
hugsað út í að feta þá braut. Kærastan mín
er dansari og ég læt mér duga að horfa,“
segir Gísli Pétur en hann hugsar líka tals-
vert um mataræðið. „Ég er stöðugt að spá í
mataræðið og ég drekk hvorki né reyki. En
ég er bara svo mikill nammigrís að stund-
um ræð ég ekki við mig. Ég er búinn að inn-
leiða nýtt í þeim efnum – hinn gullna með-
alveg. Allt er gott í hófi.“
lilja@frettabladid.is
Hjólar tuttugu
kílómetra tvisvar í viku
heilsa@frettabladid.is
Neysla á verkjalyfum er líklega
tengd við aukna hættu á hjarta-
áföllum. Þetta kemur fram í
grein í nýjasta tölublaði British
Medical Journal sem sagt er frá
á doktor.is. Vísindamenn telja að
neysla lyfsins Íbúprofen geti auk-
ið líkurnar um allt að 24 prósent
en neysla Diclofenacs um 55
prósent. Rannsókn vísindamann-
anna náði til lyfseðilsskyldra
verkjalyfa. Nýlegu kynntu vís-
indamenn í Bandaríkjunum nið-
urstöður nýrrar skýrslu sem
bentu á mögulega tengingu á
milli neyslu íbúprofens og
brjóstakrabbameins.
Rúmlega 75 prósent af
karlmönnum í Bretlandi
gætu verið yfir kjör-
þyngd eða of feitir
árið 2010 samkvæmt
nýrri könnun og skýrslu
frá Men’s Health Forum.
Á meðan offita hjá kon-
um hefur tvöfaldast á
síðustu tíu árum þá hefur offita
hjá körlum þrefaldast. Sextíu
prósent kvenna eru í megrun
eða sérstöku mataræði á ein-
hverjum tímapunkti en næstum
því níutíu prósent offeitra karla
segjast aldrei fara í ræktina.
Samkvæmt dagblaðinu Mirror
vilja rúmlega þrjátíu prósent
karla liggja í leti, éta og drekka.
Sex mínútur af æfingu á viku
gera jafn mikið og sex klukku-
stundir af æfingu fyrir líkamann
samkvæmt nýrri rannsókn pró-
fessor Martin Giabla. Rannsóknin
birtist í tímaritinu Journal of App-
lied Physiology en 23 konur og
karlmenn á aldrinum 25 til 35
tóku þátt og var það prófað
hvað þau voru lengi að hjóla
þrjátíu kílómetra. Giabla komst
að því að fólk getur hætt að
stunda líkamsrækt í tvo tíma í
senn, þrisvar í viku, og aðeins
stundað hana í tvær mínútur í
senn, þrisvar sinnum í viku.
Gísli Pétur hjólar stundum frá Hafnarfirði til Reykjavíkur.
LIGGUR Í LOFTINU
í heilsu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Skólinn er óréttlátur!
Það er sama hvað ég
er duglegur, verkefnin
klárast aldrei!
Boðskortin fyrir stóra daginn
BLS. 4
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R