Fréttablaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 20
Boðskort
Sendu boðskortin í brúðkaupið út tímanlega þar sem margir
skipuleggja helgarnar sínar langt fram í tímann. Biddu jafnframt
viðtakanda um að tilkynna forföll.[ ]
Kaffihús:
Laugavegi 24
Smáralind
Verslanir:
Kringlunni
Smáralind
Laugavegi 27
Suðurveri
Kaffið er ræktað í 1350 m hæð
í hlíðum Pipilto eldfjallsins.
Uppskerutímabilið er frá
janúar út mars og eru berin
hand tínd á hverjum degi á
þessu tímabili.
Kaffið hefur sætt bragð sem
leikur við tungubroddinn,
skarpa ávaxtakennda sýrni en
mjög mjúka með góðri
fyllingu, eftirbragðið er mjúkt
og lifir lengi, má jafnvel greina
reykt bragð.
Njótið vel !
Cup
of Excellence ®
Nicaragua
Cup of Excellence
10% afsláttur
250 gr.
Áður kr 695 - Nú kr 625
Kaffi mánaðarins
S í m i : 5 6 8 6 4 4 0 | b u s a h o l d @ b u s a h o l d . i s
Stá lpottasett á góðu verði
Brúðhjónal istar og gjafakort
Sími 533 1020
NÝJAR VÖRUR
Skeifunni 11d
Viljum og ætlum
að vera saman
Kolbrún og Aron ganga í það
heilaga 13. ágúst, eftir níu
ára samband. Þau standa á
tímamótum, hafa lokið námi
og keypt sína fyrstu íbúð. Þau
eru tilbúin að taka næsta
skref.
Kolbrún Pálsdóttir og Aron Birkir
Guðmundsson hafa verið saman í
níu ár og ætla að ganga að eiga
hvort annað þann 13. ágúst í Há-
teigskirkju. „Við vorum búin að
vera saman í skóla í fjögur ár án
þess að nokkuð gerðist á milli okk-
ar,“ segir Kolbrún. „Svo var það á
dimmisjónballi þegar hann var að
útskrifast að ég lét til skarar
skríða enda ekki seinna vænna.“
„Við vorum nú búin að vita hvort
af öðru lengi, fórum samferða í
strætó einn veturinn en töluðum
aldrei saman,“ bætir Aron við.
Þau fóru fljótlega að búa saman
og finnst tími til kominn að gera
alvöru úr málunum.
Af hverju eruð þið að gifta
ykkur akkúrat núna? „Við stönd-
um á ákveðnum tímamótum núna,
erum bæði búin í námi, vorum að
kaupa okkur íbúð og erum tilbúin
í næsta áfanga af lífinu,“ segir
Aron. „Svo er þetta líka ákveðin
staðfesting fyrir okkur frammi
fyrir okkar nánustu á því að við
viljum og ætlum að vera saman,“
bætir Kolbrún við.
Þau hafa líka gaman af því að
halda veislur. „Við héldum
skemmtilega veislu þegar við út-
skrifuðumst úr háskólanum í
fyrra, höldum brúðkaupið í ár, svo
verðum við þrítug á næsta ári og
svo þurfum við að finna einhver
fleiri tilefni,“ segir Kolbrún. „Þau
koma örugglega,“ bætir Aron við.
Kolbrúnu finnst skipta máli að
gifta sig í kirkju: „Mér finnst það
að vinna sín heit í kirkju merkja
að maður er tilbúinn að leggja allt
undir fyrir hinn aðilann. Þó maður
sé ekki heittrúaður er trúin
ákveðinn bakgrunnur í lífi manns.
Kirkjur eru fallegar, notalegar og
hátíðlegar, tónlist hljómar svo fal-
lega þar og minningin lifir lengi,
enda eins gott þar sem það er ekki
stefnan að gera þetta oft.“ Þau
ætla að halda stóra veislu enda
eiga þau bæði stórar fjölskyldur
og vinahópa. „Okkur langar að
halda fjöruga og skemmtilega
veislu. Við erum bæði mikið mat-
fólk og því var aldrei möguleiki að
það yrði ekki matur í veislunni,“
segir Kolbrún og Aron bætir við:
„Það verður sennilega hlaðborð
því þá blandast fólk saman og
kynnist þegar það er að fá sér að
borða.“
Þau langar til New York í brúð-
kaupsferð en vita ekki alveg hvort
þau hafa efni á því þar sem þau
voru að kaupa sér íbúð. „Það væri
samt gaman að fara eitthvað.“
Hvað varðar kjólinn verður Kol-
brún leyndardómsfull á svip en
Aron kemur af fjöllum. „Ég veit
að það er búið að máta einhverja
kjóla en veit ekki meir.“ Og hann
fær ekki meira að vita fyrr en í
ágúst, nánar tiltekið þann þrett-
ánda. ■
Kolbrún og Aron hafa gaman af því að halda veislur og ætla að halda fjöruga og
skemmtilega brúðkaupsveislu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
„Fólk vill gjarnan sjá
eitthvað til að styðj-
ast við og gefa sér
tíma til að skoða
áður en það tekur
ákvörðun með
boðskortin,“ segir
Þorsteinn Yngvason
hjá Stafrænu prent-
smiðjunni í Hafnar-
firði. Strákarnir í
prentsmiðjunni hafa
hannað mikið af
boðskortum og tek-
ið saman í bók sem
viðskiptavinir þeirra
geta fengið með sér
heim til að skoða.
„Kortin eru stöðluð
og þarf stundum
engu að breyta
nema texta, en text-
inn er alltaf per-
sónulegur,“ segir
Þorsteinn.
Hann segir að auð-
vitað sé alltaf best að
gefa sér tíma í þetta,
en hans reynsla er sú
að fólk sé yfirleitt
alltaf á síðustu
stundu. „Ef fólk er
búið að ákveða kort-
ið og ekki er löng
biðröð í prentvélarn-
ar er yfirleitt hægt að
afgreiða kortin með
tveggja daga fyrir-
vara,“ segir Þor-
steinn.
„Fólki finnst þægilegt
að geta gengið að
hugmyndum að kort-
um og flestir styðjast
við stöðluðu kortin.
Auðvitað vilja sumir
gera eitthvað öðru-
vísi,“ segir Þorsteinn.
Textinn alltaf persónulegur
Stafræna prentsmiðjan hannar og prentar boðskortin fyrir stóra daginn.
Hægt er að skoða kortin á
vefsíðunni smidjan.is en hér
getur að líta nokkur sýnis-
horn.
Þorsteinn Yngvason hjá
Stafrænu hugmyndasmiðj-
unni segir að fólki þyki
þægilegt að hafa önnur
boðskort til að styðjast við.