Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 32
14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR16
17. júní tilboð!
20% afsláttur af öllum vörum
þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag
Laugavegi 51 • s: 552 2201
SVIPMYND
CANBERRA: HÖFUÐBORG ÁSTRALÍU
Canberra er höfuðborgin í Ástralíu en Canberra er jafnframt þokukenndasta
borgin í landinu en 47 daga ársins er þokuslæða yfir borginni.
Canberra er staðsett á landsvæði sem tilheyrði innfæddum þjóðflokki,
Ngunnawal fólkinu, en nafnið Canberra er talið þýða fundarstaður og eiga
rætur sínar að rekja til frumbyggjaorðsins Kamberra. Evrópskir landnemar
komu til borgarinnar um 1830 og árið 1908 var Canberra valinn höfuðstaður
Ástralíu eftir rifrildi um hvort Melbourne eða Sidney ætti að hljóta þann sess.
Íbúafjöldi: 339.595.
Hæð: 571 metri.
Gjaldmiðill: Ástralskur dollari.
Tungumál: Enska.
Tímasvæði: GMT + 10.
Útflutningsvörur: Kol, gull, kjöt, ull, ál, hveiti, málmgrýti og vélbúnaður.
Staðsetning: Canberra er staðsett í Suðaustur-Ástralíu.
Vissir þú ...
...að minnstu bílabíó í heimi
voru Harmony Drive-in og Hig-
hway 78 Drive-in í Bandaríkjun-
um sem gátu aðeins hýst fimm-
tíu bíla?
...að innrauð tækni var fyrst not-
uð í síðari heimsstyrjöldinni?
...að samkvæmt leitarvélinni
Google er mest leitað að rós á
netinu? Sú dýrategund sem
flesta fýsir að vita um á netinu
er hins vegar köttur.
...að Vulcan-leisirinn í Ruther-
ford Appleton Laboratory í Bret-
landi er orkumesti fókuseraði
leisigeisli í heimi?
...að Komatsu D575A Super
Dozer er stærsta jarðýta heims
en hún vegur 152,6 tonn?
...að lengsti bíll í heimi er 30,5
metra löng, 26 hjóla limúsína
sem Jay Ohrberg í Bandaríkjun-
um bjó til?
...að parísarhjólið Dai-Kan-
ransha á Pallet Town-völlum í
Tókýó í Japan er hæsta parísar-
hjól í skemmtigarði en það er
115 metra hátt frá grunni að
efsta hluta hjólsins?
...að hæsta frístandandi mann-
virki jarðar er Petronius olíu- og
gasborpallurinn en hann gnæfir
570 metra yfir vatnsborði
Mexíkóflóa?
...að Phil Appleby frá Bretlandi
á heimsmet í hæsta skori í
Scrabble, eða alls 1.049 stig?
...að stærsta stundaglas í heimi
er 1,06 metra hátt og 38 sentí-
metrar að þvermáli?
...að Srirangam-hofið í
Tiruchirappalli, Tamil Nadu í
Indlandi er stærsta hof í hind-
úasið í heimi en það þekur
63,1 hektara svæði og er um-
málið 9.934 metrar?
...að stærsta kirkja heims er
basilíka Vorrar frúar friðarins í
Yamoussoukro, höfuðborg Fíla-
beinsstrandarinnar, en kirkjan
er alls 30.000 fermetrar að
stærð og rúmar 7.000 manns í
sæti?
...að prent- og útgáfufyrirtækið
Bertelsmann í Þýskalandi er
með 80.632 starfsmenn og er
stærsta fyrirtæki sinnar tegund-
ar í heiminum?
...að hraðasta eyðing skóga hef-
ur orðið í Búrúndi, í Mið-Afríku,
en þar gisnaði skógurinn um
níu prósent á hverju ári frá
1990 til 2000?
...að mesta pappírsendurvinnsla
fer fram í Þýskalandi en þar eru
70 til 80 prósent pappírs og
pappa endurunnin á ári hverju?
...að Natividad Rico Pérez á
Spáni ræktaði stærstu heima-
ræktuðu lilju í heiminum sem
mældist 59 sentímetrar árið
2002?