Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 34
Blóðgjafar sem gefa blóð í Blóð-
bankanum í dag fá rauða rós að
launum frá blómabændum. Eins
og víða um heim verður alþjóð-
legi blóðgjafadagurinn haldinn
hátíðlegur í Blóðbankanum í dag
og er það gert til að heiðra blóð-
gjafa fyrir óeigingjarnt starf í
þágu sjúkra. Boðið verður upp á
grillaðar pylsur í bakgarði Blóð-
bankans við Barónstíg og kynning
verður á starfsemi bankans og
blóðgjafafélagsins.
Blóðbankinn þarfnast 70 blóð-
gjafa á dag allan ársins hring.
Marín Þórsdóttir, upplýsingafull-
trúi, segir það ganga ágætlega að
ná þeim fjölda inn. Hins vegar
geti sumrin verið svolítið erfið
þar sem blóðgjafar eru í sumar-
fríi. „Það er því mikilvægt að
blóðgjafar muni eftir okkur áður
en þeir fara í fríið,“ segir Marín
en hún segir alla velkomna að líta
við til klukkan þrjú í dag.
Marín segir að yfirleitt sé
hringt í fólk til að ná þeim fjölda
sem þarf á hverjum degi. Hins
vegar sé alltaf hópur sem gangi
inn þegar þeir eigi leið hjá. „Við
eigum mjög góðan blóðgjafahóp
sem er mjög dyggur, en hann eld-
ist líka og því mikilvægt að við-
halda honum,“ segir Marín en
þeir sem koma til blóðgjafar í
fyrsta sinn gefa einungis
blóðprufu sem síðan er send í
blóðrannsókn. Ef blóðgjafinn
heyrir ekki frá Blóðbankanum í
tvær vikur er hann velkominn að
gefa fulla blóðgjöf sem er um 450
millilítrar. Marín segir þá sem
gefa blóð reglulega vera mjög
dýrmæta. „Sumir koma á þriggja,
fjögurra mánaða fresti alveg eins
og klukkur,“ segir Marín sem tel-
ur að þeir sem hafi komið oftast
hafi gefið yfir 120 gjafir á lífsleið-
inni.
Marín segir Blóðbankabílinn
hafa aukið sýnileika bankans í
Þjóðfélaginu og sé mikilvæg
áminning fyrir fólk um að blóð-
gjöf sé lífgjöf. „Án blóðgjafa væri
lítið um uppskurði eða aðgerðir á
spítulunum,“ segir Marín sem tel-
ur alþjóðlega blóðgjafadaginn
mjög mikilvægan þar sem hann
sé viðurkenning fyrir þá blóðgafa
sem vinni þetta góðverk. ■
18 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
CHE GUEVARA (1928-1967)
fæddist þennan dag.
TÍMAMÓT: ALÞJÓÐLEGI BLÓÐGJAFADAGURINN HALDINN HÁTÍÐLEGUR
„Mér er sama þó ég falli svo lengi sem
einhver annar tekur upp vopn mitt og
heldur áfram að skjóta.“
Che Guevara var argentískur uppreisnarmaður sem tók þátt
í júlíuppreisn Fidel Kastro á Kúbu.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Svava Eggertsdóttir frá Vestmannaeyj-
um er látin.
Elísabet Finnbogadóttir lést á Líknar-
deild Landspítalans mánudaginn 6. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Hrafnistu,
áður Álfaskeiði 49, Hafnarfirði, lést þann
11. júní að Hrafnistu í Hafnarfirði.
JAR‹ARFARIR
11.00 Jón Hallgrímsson, áður til heimil-
is á Kleppsvegi 28, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju.
13.00 Rósa Einarsdóttir verður jarð-
sungin frá Garðakirkju.
13.00 Hörður Jónasson, Hraunvangi 1,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju.
13.30 Guðný Skjóldal Kristjánsdóttir,
Lindarsíðu 2, Akureyri, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
15.00 Dallas Harms Steinthorsson
verður jarðsunginn frá Fossvog-
skapellu.
BLÓÐGJÖF ER LÍFGJÖF Eins og víða um heim verður alþjóðlegi blóðgjafadagurinn haldinn hátíðlegur í Blóðbankanum í dag.
Þennan dag árið 1789 náði Bligh
skipstjóri ásamt átján öðrum sem
lifðu af uppreisnina á Bounty í
höfn í Tímor í Austur- Indíum. Þeir
höfðu þá ferðast nærri fjögur þús-
und mílur í litlum opnum báti.
Þann 28. apríl hafði Fletcher
Christian, fyrsti stýrimaður breska
herskipsins Bounty, staðið fyrir vel
heppnaðri uppreisn gegn skip-
stjóranum og stuðningsmönnum
hans. Skipið hafði verið að flytja
brauðaldingræðlinga frá Tahíti til
að hægt væri að planta þeim í ný-
lendum Breta í Karabíska hafinu.
Ferðin sóttist illa og var erfið.
Slæmt andrúmsloft ríkti milli skip-
stjórans, yfirmanna og áhafnar.
Bligh, sem þurfti að eiga við þrjár
uppreisnir á ferli sínum, var harð-
ráður stjórnandi og móðgaði und-
irmenn sína.
Þann 28. apríl tók Fletcher ásamt
25 öðrum áhafnarmeðlimum
stjórnina á skipinu og setti skip-
stjórann ásamt nokkrum öðrum á
flot í lítilli kænu en lét þeim í té
talsvert af vistum. Þó þótti ljóst að
með þessu væru mennirnir um
borð í bátnum dauðadæmdir
enda staddir í opnum yfirfylltum
báti á miðju Kyrrahafi. Hins vegar
sýndi Bligh ótrúlega sjómanns-
hæfileika og tókst á sjö vikum að
koma bátnum í höfn í Tímor.
Bligh snéri aftur til Bretlands og
sigldi fljótlega aftur til Tahíti þar
sem hann lauk ætlunarverki fyrri
ferðar sinnar að flytja brauðaldin-
plöntur til Vestur-Indía.
14. JÚNÍ 1789 Bligh skipstjóri
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1940 Þjóðverjar þramma inn í
París án mótspyrnu.
1949 Þyrlu er flogið á Íslandi í
fyrsta sinn. Hún var flutt til
landsins svo hægt væri að
reyna slíka vél við björgun-
arstörf og strandgæslu.
1975 Ferjan Smyrill kemur til
Seyðisfjarðar í fyrsta sinn.
Þar með hefjast ferjusam-
göngur milli Færeyja og Ís-
lands.
1982 Samið er um vopnahlé í
Falklandseyjastríðinu.
1986 Fyrsta hjartaaðgerðin er
framkvæmd hér á landi.
1996 Djassdrottningin Ella
Fitzgerald andast.
Bligh skipstjóri bjargast
Fósturfaðir og bróðir okkar,
Gísli Jósefsson
málarameistari,
sem lést mánudaginn 6. júní, verður jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju á morgun miðvikudaginn 15. júní kl. 13.
Matthildur Hafsteinsdóttir,
Sævar Hafsteinsson,
Magnús Jósefsson,
Ragnheiður Jósefsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þorbjörg Einarsdóttir
Hóli, Stöðvarfirði,
lést laugardaginn 11. júní.
Nanna Ingólfsdóttir
Eysteinn Björnsson Anna G. Njálsdóttir
Lára Björnsdóttir Ingólfur Hjartarson
Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir Lars- Göran Larsson
Björn Björnsson Lára G. Hansdóttir
Einar S. Björnsson Þorgerður Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ragnhildur Þorgeirsdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Álfaskeiði 49, Hafnarfirði
lést þann 11.júní sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Þorgeir Sæmundsson Margrét Guðmundsdóttir
Helgi Sæmundsson Guðbjörg Harðardóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Kristín Stefanía Magnúsdóttir
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 15. júní
kl. 14.00.
Magnús Þór Helgason
Einar Magnússon Ingibjörg Bjarnadóttir
Grétar Magnússon Margrét Borgþórsdóttir
Guðríður Magnúsdóttir Magnús Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
Jörundur Sigurgeir Sigtryggsson
Andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 11. júní sl. Jarðarförin
fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 18. júní kl. 14.00.
Helga Sigurgeirsdóttir Hjálmfríður Guðmundsdóttir
Eygló Harðardóttir Runólfur Pétursson
Sigríður H. Jörundsdóttir Hálfdán Óskarsson
Linda Jörundsdóttir Guðmundur Geirdal
Martha Jörundsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
Blóðgjafar fá rauða rós
frá blómabændum