Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 35
ÞRIÐJUDAGUR 14. júní 2005 19
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
64
2
0
6/
20
05
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
* pr. mán. Miðast við 36 mán. leigu og 136.000 kr. í tryggingafé.
** pr mán. Miðað við 84 mán. samning og 20% útborgun.
Verðlistaverð 1.849.000 kr.
Tilboðsverð 1.756.000 kr.
Einkaleiga 34.200 kr.*
Bílasamningur 21.060 kr.**
COROLLA WAGON. Fjölskyldubíll með ferðaþrá.
Pláss fyrir fleiri ævintýri
Corolla Wagon er freistandi kostur fyrir fólk sem langar bæði til að njóta
lífsins í borginni og ferðast á eigin vegum. Hönnunin er stílhrein og gleður
augað en ekkert er gefið eftir þegar kemur að notagildi. Innanrými er
sérstaklega vel skipulagt með þægindi og nýtingu í huga og gefur mögu-
leika á miklu farangursrými. Corolla Wagon er sparneytinn og ríkulega
hlaðinn staðalbúnaði.
Líttu inn, skoðaðu og reynsluaktu nýjum Corolla Wagon.
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
God og War
Kippur af Coca Cola
DVD myndir
Aðra tölvuleiki
Og margt fleira.
BTL GAME
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
D3
Þú gætir unnið:
Sendu SMS skeytið
12. hver vinnur.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Stjörnugolf 2005 verður
haldið á Hvaleyrarvelli í
dag þegar hópur þjóð-
þekktra Íslendinga spilar
golf til styrktar góðu mál-
efni. Í þetta sinn rennur
ágóði mótsins til MND
félagsins.
Sannkallað stjörnustríð verður á
Hvaleyrarvelli í dag þegar nokkrar
þjóðþekktar stjörnur etja kappi
hver við aðra á árlegu Stjörnugolfi
2005. Í ár rennur allur ágóði móts-
ins til MND félagsins til rannsókna
á þessum sjaldgæfa og ólæknanlega
sjúkdómi. MND er taugahrörnunar-
sjúkdómur sem þrír til fimm Ís-
lendingar greinast með á hverju ári.
Sjúkdómurinn ágerist venjulega
hratt og af honum leiðir máttleysi
og lömun en vitsmunalegur styrkur
helst þó óskaddaður. Líftími sjúk-
linga eftir að þeir fá sjúkdóminn er
frá einu upp í sex ár en sumir lifa
lengur.
Golfáhugamennirnir Björgvin
Freyr Vilhjálmsson og Ágúst Guð-
mundsson eru upphafsmenn móts-
ins. Þeir fengu hugmyndina í fyrra
og vildu láta gott af sér leiða. Þar
sem söfnunin fyrir Barnaspítala
Hringsins gekk framar vonum
ákváðu þeir að slá upp öðru slíku
móti og búast við að geta
tvöfaldað þá upp-
hæð sem kom
inn í fyrra.
Nokkur fyr-
irtæki hafa
stutt dyggi-
lega við
bakið á þeim
félögum. Það eru Bónus, Brimborg,
Icelandair og KB-banki. „Þetta væri
óhugsandi án þeirra,“ segir Björg-
vin.
Þær stjörnur sem munu veita
málefninu lið með þátttöku í
Stjörnugolfinu eru meðal annars
Eyjólfur Sverrisson og Arnór
Guðjohnsen knattspyrnumenn, Logi
Bergmann Eiðsson, Laddi, Arnar
Jónsson og Stefán Hilmarsson,
ásamt mörgum fleirum.
solveig@frettabladid.is
UPPHAFSMENN Þeir Björgvin Vilhjálmsson og Ágúst Guðmundsson standa fyrir Stjörnu-
golfi 2005 til styrktar MND félagsins.
STJÖRNUSTRÍÐ
Mikill fjöldi þjóðþekktra
Íslendinga tekur þátt í
mótinu. Þeirra á meðal
eru þeir Eyjólfur Sverris-
son fyrrverandi lands-
liðsmaður í knattspyrnu,
Stefán Hilmarsson
tónlistarmaður og
Hermann Gunnarsson
þáttastjórnandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Stjörnur spila golf og styrkja sjúka