Fréttablaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 36
14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
> Við orðnir leiðir á ...
... að horfa upp á Kristján Finnbogason,
markvörð og fyrirliða KR, komast upp með
hvert ljóta brotið á fætur öðru án þess að
fá neina refsingu hjá
dómurum. Kristján hefur
ekki enn fengið spjald í
Landsbankadeildinni
þrátt fyrir að hafa
brennimerkt tvo
leikmenn mótherjanna
með takkaskóm sínum.
Heyrst hefur ...
... að ef Óli Stefán Flóventsson, fyrrum
fyrirliði Grindavíkur og leikjahæsti
leikmaður félagsins frá upphafi, fá sig
lausan undan samningi sínum við
Grindavík þá gangi hann til liðs við
Framara og spili með þeim út sumarið.
Óli Stefán lenti í útistöðum við Milan
Stefán Jankovic, þjálfara liðsins og ákvað í
kjölfarið að hætta að spila með liðinu.
sport@frettabladid.is
20
> Við vonumst eftir ...
.... að Óli Stefán Flóventsson spili aftur í
Landsbankadeild karla í sumar, hvort sem
það verður með
Grindavík eða einhverju
öðru liði. Óli Stefán lék
mjög vel með Grindavík
í fyrstu fjórum
leikjunum í sumar og var
einn af lykilmönnum
Suðurnesjaliðsins.
Gu›mundur Benediktsson er fyrsti leikma›urinn í úrvalsdeildinni sem nær a› leggja upp flrjú mörk í
tveimur leikjum í rö› en hann hefur lagt upp 7 af 15 mörkum Valsmanna í sumar.
Sex stoðsendingar í tveimur leikjum
FÓTBOLTI Guðmundur Benediktsson
hefur þegar afrekað það tvisvar
sinnum í fyrstu fimm leikjunum
sem hann náði aldrei á glæstum
níu ára ferli sínum í Vesturbæn-
um.
Guðmundur hefur náð tveimur
stoðsendinga-þrennum í síðustu
tveimur leikjum Valsliðsins, átti
þrjár stoðsendingar í 3-0 sigri á
Fram og svo aðrar þrjár í 5-1 sigri
liðsins í Keflavík um helgina. Guð-
mundur hefur kannski bara skorað
eitt mark í sumar, í 1. umferð gegn
Grindavík, en hlutverk hans hjá
Val snýst um allt annað en að skora
mörkin, hann brýtur upp leik liðs-
ins og er orðinn mjög hættulegur í
öllum föstum leikatriðum sem
hafa verið að skapa mikla hættu að
undanförnu.
Guðmundur lagði upp mark
fyrir Garðar Gunnlaugsson í 2-0
sigri á Skagamönnum í annarri
umferð, hann lagði upp öll þrjú
mörkin í 3-0 sigri á Fram en þau
skoruðu Matthías Guðmundsson,
Sigþór Júlíusson og Baldur Aðal-
steinsson og í Keflavík lagði hann
upp skallamörk fyrir Atla Svein
Þórarinsson og Baldur Aðalsteins-
son úr hornspyrnum og loks mark
fyrir Garðar Gunnlaugsson á
lokamínútum leiksins en Garðar
hafði komið inn á sem varamaður.
Stoðsendingar hafa verið skráð-
ar í efstu deild síðan 1992 og er
þetta í fyrsta sinn sem leikmaður
nær að gefa þrjár stoðsendingar í
tveimur leikjum á sama tímabilinu
og hvað þá í tveimur leikjum í röð.
Guðmundur gaf 37 stoðsendingar
með KR á árunum 1995 til 2004 en
náði aldrei að leggja upp fleiri en
tvö mörk í einum og sama leiknum.
Aðeins 4 með tvær þrennur
Guðmundur er í raun aðeins 16.
leikmaðurinn frá 1992 sem nær
umræddri stoðsendingaþrennu og
aðeins þrír aðrir hafa náð því
tvisvar sinnum á ferlinum. Harald-
ur Ingólfsson gaf fjórar stoðsend-
ingar með ÍA gegn ÍBV 1992 og 3
stoðsendingar með ÍA gegn
Breiðabliki 1994, Bjarki Gunn-
laugsson gaf þrjár stoðsendingar
fyrir ÍA gegn ÍBV 1992 og KR
gegn Víkingi 1999 og Veigar Páll
Gunnarsson gaf þrjár stoðsending-
ar með Stjörnunni gegn Leiftri
2000 og endurtók síðan leikinn
með KR gegn ÍA þremur árum
seinna.
Guðmundur hefur nú gefið 49
stoðsendingar í 152 leikjum í efstu
deild, fimm fyrir Þór Akureyri, 37
fyrir KR og sjö fyrir Val. Haraldur
Ingólfsson hefur gefið flestar
stoðsendingar frá því að skráning
þeirra hófst fyrir 13 árum en hann
gaf 59 stoðsendingar á félaga sína
í Skagaliðinu. Guðmundur er sem
stendur í 3. sætinu, þremur
stoðsendingum á eftir Inga Sig-
urðssyni og verður þriðji leikmað-
urinn frá upphafi til að leggja upp
50 mörk þegar hann gefur næstu
stoðsendingu.
Næsti leikur Valsmanna er
gegn Íslandsmeisturum FH á Hlíð-
arenda á morgun og nú er að sjá
hvað Guðmundur gerir gegn hinni
sterku vörn FH sem hefur aðeins
fengið á sig tvö mörk í fyrstu fimm
umferðunum. ooj@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Þriðjudagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 Stjarnan tekur á móti
Breiðabliki á Stjörnuvelli í
Landsbankadeild kvenna.
20.00 KR tekur á móti Keflavík á
KR-velli í Landsbankadeild kvenna.
20.00 ÍA tekur á móti FH á
Akranesvelli í Landsbankadeild
kvenna.
■ ■ SJÓNVARP
7.00 Olíssport á Sýn. Endursýnt
þrisvar til viðbótar til 9.00 og svo
aftur klukkan 17.45.
19.00 Úrslitakeppni NBA Annar
leikur San Antonio og Detroit
endursýndur.
21.00 Toyota-mótarröðin í golfi á
Sýn. Annað stigamótið fór fram í
Vestmannaeyjum um helgina.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 Bestu leikir NBA á Sýn.
Leikur Chicago og Phoenix í
lokaúrslitunum 1993.
1.00 Úrslitakeppni NBA Þriðji
leikur San Antonio og Detroit sýndur
beint. San Antonio er komið í 2-0.
Manu Ginobili, Argentínumaðurinn í liði San Antonio í miklu stuði gegn Detroit:
KÖRFUBOLTI San Antonio Spurs
hafa unnið fyrstu tvo leikina í úr-
slitaeinvíginu við Detroit Pistons
um NBA titilinn í körfuknattleik,
en öðrum leiknum lauk í fyrrinótt
með 97-76 sigri. Argentínumaður-
inn Manu Ginobili fór enn einu
sinni á kostum í liði heimamanna
en hann var stigahæstur í liði
Spurs með 27 stig.
Heimavöllurinn hefur reynst
Spurs vel undanfarin ár og hafa
þeir ekki tapað fyrir Pistons þar í
sjö ár. Larry Brown, þjálfari Pi-
stons, sagði stöðuna erfiða. „Það
er erfitt að lenda tvö núll undir á
móti liði sem er jafn sterkt og
Spurs á heimavelli. Vonandi
náum við sýna jafn góðan leik og
þeir á okkar velli, þar sem stuðn-
ingsmenn okkar eru frábærir.“
Brown dáðist af körfuboltan-
um sem Spurs spilaði. „Þeir léku
einfaldan og fallegan körfubolta
með hinn frábæra Manu Ginobili
í broddi fylkingar. Hann hefur
reynst okkur erfiður en við mun-
um reyna að finna leið til þess að
stoppa hann. Það eina sem við
getum gert núna er að hugsa um
okkur sjálfa og spila okkar leik.
Ef ég gæti látið Ginobili spila illa,
þá myndi ég gera það.“
Gregg Popovich, þjálfari San
Antonio, sagði stöðuna sem kom-
na væri upp reyna á lið sitt. „Það
er oft auðveldara að bregðast við
því að tapa heldur en að vinna.
Við þurfum núna að vera þolin-
móðir og einbeita okkur að því að
spila okkar körfubolta.“
-mh
San Antonio Spurs komi› í lykilstö›u
Ljótt far er á baki Bjarna Hólms Aðal-
steinssonar, leikmanns ÍBV, eftir spark
sem hann fékk frá markverðinum Krist-
jáni Finnbogasyni hjá KR eftir leik lið-
anna á sunnudag. Þeir lentu saman Í
baráttu um boltann á 74. mínútu leiks-
ins og féllu báðir, dómarinn dæmdi
Bjarna brotlegan. „Þegar við vorum að
fara að standa upp þá sparkar Kristján
skyndilega í bakið á mér. Ég var nátt-
úrulega ekki ánægður með það, stóð
upp og hljóp að honum en hann er
nánast dottinn áður en ég kem við
hann! Það er þá sem ég fæ að líta
rauða spjaldið og er rekinn í sturtu.“
sagði Bjarni Hólm.
Því er ljóst að Bjarni þarf að taka út
leikbann sem hann er ekki sáttur við.
Það eru slæm tíðindi fyrir ÍBV, sem sigr-
aði leikinn gegn KR 2-1,
því leikmannahópur liðs-
ins er ekki breiður og
baráttan í deildinni
er ströng.
„Ég er alveg
helaumur í bak-
inu eftir þetta
og þetta er í
raun verra en
það lítur út
fyrir að
vera.
Það
er
nokk-
uð
ljóst
að
þetta er mál sem eitthvað þarf að fara
að skoða, þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Kristján gerir svona hluti.“ sagði Bjarni
en í byrjun móts var mikið rætt
um háskaleg úthlaup Kristjáns
eftir atvik í fyrstu umferð
Landsbankadeildarinnar
þegar KR og Fylkir áttust
við.
Dómararnir þora ekki
að taka á þessu, þetta
getur verið alveg stór-
hættulegt. Markverðir
komast upp með
mun meira en aðrir
leikmenn og því þarf
að breyta.“ sagði Bjarni.
Kvennahandboltinn:
Alla fer í Val
HANDBOLTI Alla Gokorian hefur
ákveðið að semja við Val og spila
með liðinu næsta vetur en auk
þessa hefur ein efnilegsta hand-
boltakona landsins, Rebekka
Skúladóttir, gengið til liðs við Val
frá ÍR.
Alla hefur síðustu ár spilað
með ÍBV en hún hóf ferilinn á
Hlíðarenda. Rebekka Skúladóttir
er systir landsliðskvennanna
Hrafnhildar, Drífu og Dagnýjar
Skúladætra.
Ljóst má vera að Valsstúlkur
verða nokkuð sterkar á komandi
leiktíð, því auk Öllu og Rebekku
hefur liðið endurheimt fyrirlið-
ann Sigurlaugu Rúnarsdóttur,
Drífu Skúladóttur, Kolbrúnu
Franklín, Hafdísi Hinriksdóttur
og Eygló Jónsdóttur er komin
heim eftir dvöl í Víkinni.
Ánanaust 15 • Sími 551 5960
Húsbyggjendur * Verktakar * Hönnuðir
Efni rannnsakað hjá Rannskókastofnun
byggingariðnaðarins rannsókn nr H85/216
Type A og Type B
Liðin í áttunda riðli í undankeppni HM 2006:
Öll li›in í okkar ri›li komin
me› æfingaleik 17. ágúst
FÓTBOLTI Ungverjar tryggðu sér í
gær vináttulandsleik við Argent-
ínumenn sem fram fer 17. ágúst
næstkomandi í Búdapest.
Þar með er það ljóst að allar
þjóðirnar í okkar riðli í und-
ankeppni HM, nema Ísland, eru
komin með vináttulandsleik 17.
ágúst en FIFA hugsar þennan dag
sem tækifæri fyrir vináttulands-
leiki auk þess sem fjölmennustu
riðlarnir nýta hann einnig til að
spila leiki í undankeppninni.
Íslenska landsliðið hefur ekki
enn tryggt sér leik þennan dag og
því stefnir í það að liðið fá engan
undirbúningsleik fyrir næstu
leiki í undankeppninni sem eru
gegn Króatíu á Laugardalsvellin-
um 3. september og Búlgaríu fjór-
um dögum síðar í Sofíu.
Þrjú af bestu liðum heims,
samkvæmt styrkleiklista FIFA,
mæta liðum úr 8-riðlinum. Brasil-
íumenn (1. sæti) heimsækja
Króata, Svíar fá Tékka (2. sæti) í
heimsókn og Ungverjar taka eins
og áður sagði á móti Argentínu (3.
sæti). Þá taka Búlgarir á móti
Tyrkjum (14. sæti) og Maltverjar
fá Norður-Íra í heimsókn en allar
þjóðirnar í 8. riðli spila þessa leiki
á heimavelli.
-ooj
VILL ENGINN KOMA TIL ÍSLANDS? Lands-
liðsþjálfaranir fá engan æfingaleik til þess
að undirbúa liðið fyrir leikina í haust.
26,5 STIG Í LEIK Manu Ginobili hefur
skorað 26,5 stig í leik og hitt úr 67%
skota sinna í fyrstu tveimur úrslita-
leikjunum gegn Detroit. GETTYIMAGES
STÓRHÆTTULEGUR
Guðmundur
Benediktsson hefur
spilað frábærlega
með Valsliðinu
í fyrstu fimm
umferðum
Landsbanka-
deildarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Kristján sparka›i í mig Er helaumur
BJARNI HÓLM AÐALSTEINSSON Í LIÐI ÍBV: MARINN EFTIR KRISTJÁN FINNBOGASON MARKVÖRÐ KR