Fréttablaðið - 14.06.2005, Síða 39
23ÞRIÐJUDAGUR 14. júní 2005
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14,
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14, Lau 13/8 kl 14
Sun 14/8 kl 14
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20,
Mi 15/6 kl 20,
Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Þri 14/6 kl 20 - Styrktarsýning,
Fi 16/6 kl 20,
Lau 18/6 kl 20,
Su 19/6 kl 20
Síðustu sýningar
SIRKUS SIRKÖR
- ÓGLEYMANLEG UPPLIFUN
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Sænski nútímasirkusinn Cirkus
Cirkör heldur sýningu sem ber
heitið 99% unknown á stóra sviði
Borgarleikhússins klukkan 20:00
í kvöld. Sirkusinn verður með
fjórar sýningar hér á landi í vik-
unni. Hópurinn sem stofnaður
var í Stokkhólmi fyrir tíu árum
síðan hefur það að leiðarljósi að
breyta heiminum með list, leik
og menntun. Sirkusinn kom hing-
að til lands árið 1990 og hélt sýn-
ingu fyrir fullri Laugardalshöll.
„Vísindamenn við Háskóla-
sjúkrahúsið Karólínska Institu-
tet í Stokkhólmi komu til okkar
og sögðu við okkur að þeir vildu
vinna með okkur. Þeir lögðu okk-
ur til þekkingu sína og spurðu
okkur hvernig hægt væri að
koma þessari þekkingu til breið-
ari áhorfendahóps. Í staðinn fyr-
ir að birta þekkingu sína í lækna-
tímariti þá gera þeir það í sam-
vinnu við okkur en auðvitað er
þetta fyrst og fremst skemmtiat-
riði þar sem þemað er mannslík-
aminn,“ segir Max Dager, alþjóð-
legur framkvæmdastjóri Cirkus
Cirkör.
Í sýningunni er blandað sam-
an fjölleikahúsi, óperu, söngleik,
dansi, leikhúsi og sirkusbrögð-
um. Sýningin ber nafn sitt af því
að einungis eitt prósent manns-
líkamans er þekkt og vilja þeir
sem að henni standa rannsaka
líkama mannsins með því láta
hann gera hluti sem virðast vera
ómögulegir.
Tide Björnfors er leikstjóri
sýningarinnar, sem frumsýnd
var í Þýskalandi árið 2004. Dans-
höfundur er Kajsa Giertz. Þrír
tónlistarmenn og níu sirkuslista-
menn taka þátt í sýningunni sem
tekur einn og hálfan tíma í flutn-
ingi. ■
Fimmta keltneska-norræna-balt-
neska þjóðsagnaþingið verður
haldið hér á landi í Norræna húsinu
og Odda dagana 15. til 18. júní. Í til-
efni af ráðstefnunni verður efnt til
ljóðakvölds klukkan 20 í Norræna
húsinu í kvöld þar sem Daíthí Ó
Hógáin, Bent af Klintberg og Sig-
urður Pálsson munu lesa upp úr
verkum sínum.
„Við erum að skoða menningar-
leg tengsl á milli Norðurlandanna,
Eystrasaltslandanna og landanna
á Bretlandseyjum með því að
skoða þjóðsögur þeirra. Það er
sams konar þjóðsögur í öllum
þessum löndum. Hvert land hefur
sínar sögur en einnig eru svo kall-
aðar flökkusagnir sem eru sögur
eins og Djákninn á Myrká sem
margir halda að sé séríslensk en
er það í rauninni ekki, og sögur af
galdramönnum og nykrum,“ segir
Terry Gunnell, prófessor í þjóð-
fræði við Háskóla Íslands, sem er
einn af skipuleggjendum ráðstefn-
unnar.
Terry segir að ráðstefnan sé
haldin hér á landi því í ár eru 25 ár
síðan byrjað var að kenna þjóð-
fræði við Háskóla Íslands og það er
ekki fyrr en nú sem fyrst er byrjað
að bjóða upp á 90 eininga nám í
þjóðfræði og í fyrsta skipti sem
tveir kennarar eru við þjóð-
fræðiskor.
„Við erum alltaf að reyna að
undirstrika að þjóðfræði snýst ekki
bara um hið gamla heldur líka nú-
tímann því ýmislegt í nútímanum
er þjóðfræði,“ segir Terry og nefn-
ir veggjakrot í því samhengi.
Ráðstefnan verður opin almenn-
ingi svo lengi sem húsrúm leyfir. ■
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 CAPUT hópurinn flytur þrjú
tónverk eftir Áskel Másson í Salnum,
Kópavogi. Einleikari verður hinn frá-
bæri danski túbuleikari Jens Björn-
Larsen. Aðgangur er ókeypis meðan
húsrúm leyfir.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Sænski nútímasirkusinn
Cirkus Cirkör flytur sýninguna 99%
Unknown í Borgarleikhúsinu.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Ljóðakvöld í Norræna húsinu
í tengslum við 5. keltnesk-norræna-
baskneska þjóðsagnamálþingið sem
fram fer í húsinu dagana 15-18. júní.
Daíthi Ó Hógáin frá Írlandi, Bengt
af Klintberg frá Svíþjóð og Sigurður
Pálsson koma fram og lesa úr verk-
um sínum.
■ ■ FYRIRLESTRAR
17.00 Í fyrirlestrarsal Íslenskrar
erfðagreiningar heldur Dr. Catharine
Lord, fyrirlestur um meðferðarúrræði
við einhverfu. Fyrirlesturinn sem
fluttur verður á ensku er einkum ætl-
aður aðstandendum einhverfra en er
öllum opinn.
■ ■ SÝNINGAR
15.00 Óskar Teódórsson opnar
myndlistarsýningu á Landspítala,
Kleppi, Dagdeild. Á sýningunni eru
olíupastel myndir. Sýningin stendur
til 30. júní og er öllum opin.
■ ■ BJARTIR DAGAR
19.30 Stuttmyndakvöld verður í
Gamla bókasafninu við Mjósund.
20.00 Nemendur Listdansskóla
Hafnarfjarðar sýna í húsnæði Hafn-
arfjarðarleikhússins, Strandgötu 50.
20.00 Dýragarðssaga í uppsetn-
ingu Leikfélag Hafnarfjarðar í Gamla
Lækjarskóla.
Sóley S. Bender dósent við hjúkrun-
arfræðideild Háskóla Íslands af-
henti Sigrúnu Klöru Hannesdóttur
landsbókarverði fjöggurra binda
fjölþjóða afræðirit um kynlíf, The
International Encyclopedia of Sexu-
ality, til afnota á Þjóðarbókhlöðu Ís-
lands. Verkið, sem kom út árið 2004,
er endurbætt útgáfa eldra verks
sem kom út í New York á árunum
1997-2001. Í verkinu fjalla sérfræð-
ingar frá nokkrum löndum um við-
horf til kynlífs, kynhegðun, kyn-
hneigð, kynfræðslu og fleira.
Í fjórða bindi verksins er að
finna framlag frá 17 löndum og var
Ísland eitt þeirra. Sóley er ritstjóri
íslenska kaflans og eru þau Þor-
valdur og Sigrún höfundar að efni í
kaflanum.
Verkið hefur fengið góðar við-
tökur meðal fagfólks og fræði-
manna. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Þriðjudagur
JÚNÍ
Fimmta kelteska-norræna-baltneska þjóðsagnaþingið:
Veggjakrot er fljó›fræ›i
TERRY GUNNELL Stendur fyrir þjóðsagnaþinginu sem hefst í kvöld með ljóðaupplestri í
Norræna húsinu kl. 20 þar sem Daíthí Ó Hógáin, Bent af Klintberg og Sigurður Pálsson
munu lesa upp úr verkum sínum.
Sænski sirkusinn Cirkus Cirkör með sýningar á Íslandi:
Samspil lista og vísinda
CIRKUS CIRKÖR Í sýningunni 99%
unknown mætast nútímasirkus og lækna-
vísindi en uppgötvanir læknavísindanna
eru stöðugt að breyta því hvernig við
hugsum og sjáum okkur sjálf sem mann-
eskjur, segir í tilkynningu frá aðstandend-
um sýningarinnar.
N‡tt alfræ›irit um kynlíf
ALFRÆÐIRIT UM KYNLÍF Þorvaldur
Kristinsson fyrrverandi formaður Samtak-
anna 78, Sigrún Júlísdóttir, Sigrún Klara
Hannesdóttir landsbókavörður og Sóley
Bender þegar bókin var afhent til afnota á
Þjóðarbókhlöðunni.