Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 40
24 14. júní ÞRIÐJUDAGUR
Það hefur ekki verið hægt að þver-
fóta fyrir fréttum af Angelinu
Jolie, Brad Pitt, Tom Cruise og
Katie Holmes. Pitt og Jolie hafa að
undanförnu hótað lögsóknum á
báða bóga ef einhver blaðamaður
dirfist að spyrja þau út í einkalíf
sitt. Tom Cruise og Katie Holmes
vilja hins vegar ekki gera neitt
annað en tala um sína ást.
Jolie hjónadjöfull?
Sögurnar af Angelinu og Brad eru
ekkert nýjar af nálinni. Þegar til-
kynnt var að þau væru að fara að
leika saman í myndinni Mr. & Mrs.
Smith fóru kjaftasögurnar strax af
stað. Erfiðleikar höfðu verið í
hjónabandi þeirra Brads og Jenni-
fer Aniston þar sem Brad vildi fjöl-
skyldu en Jennifer ætlaði að ein-
beita sér að frama sínum í kvik-
myndum. Brad var ekki sáttur og
öllum var ljóst að gullhjónabandið
hékk á bláþræði. Á sama tíma var
Jolie að gera mikið grín að því að
Colin Farell væri alltaf að reyna
við hana. Þau léku þá saman í Alex-
ander.
Af tökustað Mr. & Mrs. Smith
bárust fregnir af því að Brad og
Angelina væru orðin mjög náin.
Angelina á soninn Maddox og Brad
þráir víst ekkert heitar en að verða
pabbi. Undir lokin sveif sú kjafta-
saga að Jennifer hefði komið að
eiginmanni sínum í „heitum sam-
ræðum“ við Angelinu. Þau skildu
eftir tæplega fimm ára hjónaband í
mars. Aniston hefur ekkert tjáð sig
um samband Brads og Angelinu.
Vafalaust vill hún ekki fórna kvik-
myndaferli sínum vegna þess að
Jolie er jú mun stærra nafn en Ani-
ston og ekki ráðlegt að eiga hana
sem óvildarmann.
Markaðsbrella
Árið hefur hjá paparazzi-ljósmynd-
urum snúist um að ná þeim saman
og það tókst loks í enda apríl. Þá
hafði Jennifer Aniston nýlega lýst
því yfir að hún saknaði Brad síns.
Myndin af þeim fór eins og eldur
um sinu en Brad og Jolie voru þög-
ul sem gröfin. Það ýtti enn frekar
undir þær kjaftasögur að þau væru
saman. Þegar taka átti kynninga-
myndir fyrir Mr. & Mrs. Smith
barst frétt af því að þau hefðu
pantað sér hótelherbergi saman.
Það var ekki fyrr en þau þurftu
að fara í kynningarviðtöl að allar
gáttir opnuðust. Þau hótuðu blaða-
mönnum lögsókn ef þeir spyrðu
persónulegra spurninga. Á rauða
dreglinum forðuðust þau hvort
annað.
Sérfræðingar í kvikmyndum
eru sammála um að allt þetta fár
hafi verið skipulagt í þaula. Brad
og Jolie hafi með þessu móti búið
til mikla eftirvæntingu eftir Mr. &
Mrs. Smith og það sannaðist heldur
betur á frumsýningardaginn.
Myndin halaði inn 51 milljón dala á
sinni fyrstu sýningarhelgi. Kvik-
myndasérfræðingar eru þess full-
vissir að þetta sé einhver best
heppnaðasta markaðsbrella ársins.
Jolie og Pitt létu síðan taka myndir
af sér sem hjón í tímaritinu W. sem
sýnir að þau hafi haft gaman af því
að leika þennan leik.
Óvæntasta par ársins
Ef eitthvað hefði getað skyggt á
Brad Pitt og Angelinu Jolie var
það ástarlíf Tom Cruise. Hjóna-
band hans og Nicole Kidman var
eitt það traustasta í Englaborginni
en þau slitu samverum öllum að
óvörum fyrir fjórum árum síðan.
Þá fór gamall orðrómur af stað um
að Cruise væri samkynhneigður
en hann bar af sér allar slíkar sög-
ur.
Í byrjun maímánaðar birtist
hann með leikkonuna ungu Katie
Holmes upp á arminn í Róm. Heim-
urinn stóð á öndinni þar sem þetta
var alls ekki viðbúið. Katie hafði
nýlega slitið trúlofun sinni og Chris
Klein en Tom Cruise var hættur
með Penelope Cruz.
Cruise og Holmes eru sennilega
eitt óvæntasta par Hollywood síðan
Julia Roberts giftist Lyle Lovett.
Hann er ein stærsta stjarnan í
Hollywood en Katie hefur hægt og
bítandi verið að klifra upp frægð-
arstigann.
Ekki var alveg á hreinu hvernig
þau tvö kynntust en þegar þau birt-
ust í Róm sögðust þau vera „ást-
fangin“ og höfðu þá verið saman í
tvær vikur.
Ég elska hann
Nýlega fór svo eitthvað að hrikta í
heilabúi Tom Cruise. Hann birtist í
þætti Oprah Winfrey þar sem
hann stökk upp á sófa, baðaði út
höndunum og lýsti yfir einskærri
ást sinni á Katie Holmes. Hann
kom síðan fram í þætti Jay Leno
og sagðist „kannski“ hafa misst
stjórn á sér. „Ég geri bara brjálaða
hluti þegar ég hugsa um hana,“
sagði Cruise.
Katie hefur hins vegar sökkt sér
ofan í Vísindakirkjuna sem á hug
Cruise allan. Hún talar ekki lengur
við þá vini sína sem ekki eru í söfn-
uðinum. Tom hefur enn fremur
ráðlagt henni að taka ekki að sér
hlutverk þar sem hún er einhvers
konar fíkill. Ofan á þetta allt saman
komu heimildarmenn fram og
sögðu þetta samband vera mark-
aðsbrellu. Samband þeirra væri
auglýsing fyrir væntanlegar
myndir þeirra beggja en Cruise
leikur í stórmyndinni War of the
Worlds en Holmes í Batman Beg-
ins. Sögusagnirnar urðu það há-
værar að Katie sá sér ekki annað
fært en segja þetta vera rætni og
tóma lygi. „Ég elska hann,“ sagði
hún af sannfæringu. ■
TOM CRUISE Gekk af göflunum í þætti
Oprah Winfrey. Hann fór síðar í þátt Jay
Leno og bar af sér allar sögur um geðveiki.
PAR ÁRSINS Tom Cruise og Katie
Holmes eru tvímælalaust par ársins í
Hollywood. Þau virðast vera ástfangnari
með hverjum degi sem líður þrátt fyrir
orðróm um að sambandið sé ekkert ann-
að en auglýsingabrella
MR. & MRS. SMITH Þau hafa ekki viljað láta mynda sig saman þegar þau hafa mætt á frumsýningar nýjustu mynda sinnar, Mr. & Mrs. Smith.
Pitt og Jolie Hvort ástarfuninn úr myndinni hefur skilað sér frá tökustað og yfir í raunveruleikann er ekki gott að segja. Sumir kalla fárið í
kringum þau bestu markaðsbrellu ársins.
Sögurnar
endalausu
Fræga fólki› fer ótro›nar sló›ir í ástarmálum sínum.
fia› notar ástina í marka›sskyni og til fless a› neita
or›rómi um samkynhneig›. Freyr Gígja Gunnarsson
sko›a›i tvö pör sem hafa beitt samböndum sínum á
ólíkan hátt.