Fréttablaðið - 14.06.2005, Page 43
Sendu SMS skeytið JA MMF á
númerið 1900 og þú gætir unnið.
12. hver vinnur.
Vinningar eru:
Miðar f. 2 Mr & Mrs Smith
Glæsilegur varningur tengdur
myndinni t.d. úr og bolir
DVD myndir
Margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið.
SMS leikur
Lögregla og saksóknarar í Los
Angeles rannsaka nú hvort papar-
azzi-ljósmyndarar brjóti lög í
harkalegum eftingarleikjum eftir
fræga fólkinu í Hollywood. Leik-
konan Lindsay Lohan lenti í
árekstri nýlega við ljósmyndara
sem var að elta hana og ýtti það
við umræðunni um málið. „Það er
mitt álit að aðferðir paparazzi-
ljósmyndaranna séu orðnar meira
og meira árásargjarnir síðustu
ár,“ segir William Hodgman, sem
er yfirmaður glæpadeildar á
skrifstofu saksóknarans í LA.
Hodgman segir að rannsóknirnar
séu á byrjunarstigi og ekki sé
hægt að fullyrða hvort einhverjar
kærur muni fylgja í kjölfarið.
„Menn eru áhyggjufullir yfir því
að einhver eigi eftir að slasast,“
segir Hodgman. Lindsay rétt
slapp við alvarleg meiðsli í
árekstrinum. Ljósmyndarinn sem
á að hafa valdið árekstrinum var
sakaður um árás með lífshættu-
legu vopni, bílnum, en hann var
leystur út gegn 35.000 dollara
tryggingu. Stjörnurnar hafa lengi
kvartað yfir ágangi ljósmyndara
en dauði Díönu prinsessu árið
1997 kom af stað reiðiöldu meðal
fræga fólksins og almennings.
Díana lést þegar bíll sem hún var
í keyrði á ofsahraða á undan pap-
arazzi-ljósmyndurum. Stjörnur á
borð við Madonnu og Tom Cruise
hvöttu almenning til að sniðganga
slúðurblöð og mótmæla þannig
hörkunni í bransanum, og ný lög
voru sett í Kaliforníu sem
vernduðu betur einkalíf fólks. ■
Lögreglan rannsakar
paparazzi-ljósmyndara
GLORIA ESTEFAN, LINDSAY LOHAN OG ANDY GARCIA „Passið ykkur á paparazzi-
ljósmyndurunum,“ sagði Lindsay Lohan á MTV Movie Awards nýlega en hún skrapp með
skrekkinn þegar hún lenti í árekstri við ljósmyndara.