Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 46
30 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Íslenska landsliðið í handknattleikvar landi sínu til sóma á sunnu-
daginn þegar það bar sigurorð af
því hvítrússneska í Kaplakrika, 33 –
24. Fjöldi manns lagði leið sína í
Kaplakrikann og barði liðið augum
en talið er að yfir 2000 manns hafi
mætt. Sigurreifir mættu
landsliðsmenn síðan á Vegamót þar
sem sannur íþróttarandi ríkti og sást
varla vín á manni. Liðið sat í
reyklausa hluta staðarins og virtist
gera sér grein fyrir að þótt orrustan
hefði unnist væri stríðið ekki búið.
Þarna voru allar helstu
kempurnar, fóst-
bræðurnir Ólafur
Stefánsson, Dagur
fyrirliði Sigurðsson
og Sigfús Sigurðsson.
Einar Hólmgeirsson
mætti óhræddur auk
Guðjóns Vals Sig-
urðssonar sem
hafði rakað dökka
hárið af sér. Viggó
Sigurðsson og
Bergsveinn Berg-
sveinsson voru þó
hvergi sjáanlegir enda hafa þeir
sennilega verið að undirbúa æfingu
sem var víst snemma um morgun-
inn.
Það virðist vera óþrjótandi lyst eft-ir tímaritum á Íslandi. Tímaritaút-
gáfan Fróði auglýsti á dögunum eft-
ir nýjum ritstjóra á nýtt tímarit.
Steinar J. Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Fróða, er nokkuð
brattur og segir alls ekki á dag-
skránni að einhverju blaði verði
hætt en sögusagnir um að útgáfu
b&b verði hætt eru ansi há-
værar. Steinar segir að
verið sé að auka útgáf-
una enn frekar en ekki
sé ljóst af hvaða
gerð
blaðið verð-
ur.
Lárétt:
1 skaprauna, 6 garg, 7 í röð, 8 óreiða, 9
ábreiður, 10 blundur, 12 mjöll, 14 tvístig,
15 rykkorn, 16 hæð, 17 úruxi, 18 kjána.
Lóðrétt:
1 hryggð, 2 traust, 3 samtenging, 4 vald-
ar, 5 hagnað, 9 skordýr, 11 efast ekki, 13
kindin, 14 stóra, 17 útgerðarfélag.
Lausn.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Opið laugardaga frá 10-14.30
SIGIN GRÁSLEPPA
OG SJÓ SIGINN
FISKUR
SIGIN
RÁSLEPPA
OG KÆST SKATASTÓR H M R
,
Hljómsveitin KK-band er komin á
stjá á nýjan leik eftir nokkurt hlé
og ætlar að halda nokkra tónleika
á næstunni til að hita upp fyrir
ferð til Kína í haust.
„Það verður alþjóðleg listahá-
tíð í Kína í október. Óttar Felix
hefur verið úti að kynna sínar út-
gáfur og þeir höfðu áhuga á Lucky
One,“ segir Kristján Kristjánsson,
KK. Með honum í bandinu eru
sem fyrr þeir Þorleifur Guðjóns-
son, á bassa, og Kormákur Geir-
harðsson, trommari. Auk þeirra
hefur nú bæst við Þorsteinn Ein-
arsson, söngvari og gítarleikari
Hjálma.
„Við höfum alltaf verð að leita
að fjórða manninum í bandið. Ég
hef verið að spila með Hjálmum
og Steini hefur haft mikinn áhuga
á að spila með okkur. Við höfum
verið að æfa og taka upp,“ segir
hann og útilokar ekki að plata
komi út með haustinu. Þrátt fyrir
komu Þorsteins í hljómsveitina
segir KK að blúsinn verði enn í
fyrirrúmi. Lætur hann Hjálmana
alfarið sjá um reggíið.
Fyrstu tónleikar KK-bands í
sumar verða á Grandrokki næst-
komandi fimmtudag. Á 17. júní
spilar sveitin síðan á Arnarhóli og
daginn eftir verður hún í Úthlíð í
Biskupstungum á ekta sveitaballi.
KK-band á lei› til Kína
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Lagarfoss.
Yst í norðanverðum Reyðar-
firði, við svokallaðan Lagga.
Um 36 klukkustundir.
Hugleikur Dagsson skrifaði ný-
verið undir samning við bókaút-
gáfuna JPV sem mun gefa út
teiknimyndasögurnar hans vin-
sælu. „Ég mun alla vega gefa út
tvær bækur hjá þeim. Í fyrsta lagi
kemur út bók sem er safn af öllum
teiknimyndasögunum sem ég hef
gert og mun sú bók heita Forðist
Okkur,“ segir Hugleikur og á þá
við bækurnar þrjár Elskið Okkur,
Drepið Okkur og Ríðið Okkur en
áður var það hann sjálfur sem sá
um að hefta bækurnar saman og
koma þeim í sölu. „Núna er ég svo
að vinna í nýrri bók sem mun
heita Bjargið okkur og verður hún
í sömu lengd og hinar þrjár bæk-
urnar og eins uppbyggð, þannig
að það verður teiknimynd á hverri
síðu. Ég er búinn að vinna í henni
í um það bil ár.“
Hann hefur teiknað þessar
teiknimyndir í nokkur ár, auk
þess sem hann gerði teiknimyndir
við Tvíhöfðaþætti sem voru svo
sýndir á Popptíví. Aðspurður
hvort stíllinn eða myndirnar hafi
breyst mikið með árunum segir
hann: „Þetta er nú alveg sami stíll-
inn hjá mér enn þá en ég held að
ég sé orðinn betri í þessum stíl og
sennilega er einhver þróun í sög-
unum sjálfum líka,“ segir Hug-
leikur og er ánægður með útgáfu-
samninginn. „Það er fínt að fá að
hætta að hefta þetta sjálfur.“
Bækurnar voru seldar í búðum
eins og Tólf Tónum, Nexus og
Ranimosk og seldust myndasög-
urnar gífurlega vel. Einnig gaf
Hugleikur út myndasögu á ensku
sem nefndist Our Prayer en sú
var ætluð fyrir túrista og var
samansafn úr þremur fyrstu bók-
unum. Teiknimyndirnar eru í afar
kaldhæðnum stíl og einkennast af
svörtum húmor eins og hann ger-
ist bestur. Þetta er þó ekki það
eina sem Hugleikur vinnur að
þessa dagana heldur er hann að
vinna í að færa teiknimyndasög-
urnar yfir í leikrit.
„Leikritið mun heita Forðist
Okkur eins og bókin og verður
sýnt í haust, á svipuðum tíma og
bókin kemur út.“ Aðspurður hvort
formið á leikritinu verði stuttir
leikþættir í anda teiknimyndanna
hans, þar sem hver og ein er sjálf-
stæð, segir hann svo ekki vera.
„Ég vil helst ekki segja mikið um
það en formið á leikritinu verður
frekar óvenjulegt, svo mikið er
víst. Ég er að vinna í þessu verk-
efni ásamt leikarasamtökunum
Hlutafélag SF. Við fengum styrk
til að gera leikrit eftir bókunum
og munum gera það í samstarfi
við Nemendaleikhúsið og mun
Stefán Jónsson leikstýra verkinu
sem verður svo frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu.“ hilda@frettabladid.is
HUGLEIKUR DAGSSON Hann hefur öðlast þó nokkrar vinsældir með teiknimyndasög-
unum sínum þremur sem selst hafa vel í búðunum. Nú hefur hann skrifað undir samning
við JPV útgáfu sem mun gefa út að minnsta kosti tvær bækur frá honum.
HUGLEIKUR DAGSSON: SEMUR VIÐ BÓKAÚTGÁFUNA JPV
Hættur að hefta sjálfur
FRÉTTIR AF FÓLKI
Dótið Ping-æfingakylfa fyrir kylfinga
Sem er? Kannski ertu búinn að
brjóta allt og bramla heima hjá þér.
Þú hefur enn ekki náð nægjanlega
góðum tökum á sveiflunni og grip-
inu. Í hvert sinn sem þú æfir þig
rekurðu hausinn á kylfunni í eitthvað
og þú getur heldur ekki æft þig í
vinnunni. Ping-æfingakylfan leysir
þetta allt saman. Hún er ekki með
haus og er mun styttri en venjulegar
kylfur. Heimilið er því ekki lengur í
hættu. Það er nauðsynlegt fyrir þá
sem ætla sér einhvern árangur á
golfvellinum að geta æft sig heima
við og kylfan er því hentug fyrir
marga.
Hvernig virkar hún? Kylfan er mjög
góð til þess að æfa sig fyrir framan
spegil þannig að kylfingurinn getur
skoðað sveifluna sína og hún er með
æfingagripi. Einnig segja golfsérfræðing-
ar að ekki sé vitlaust að hita sig aðeins
upp með kylfunni áður en farið er út á
völl.
Hvar fæst hún? Kylfan fæst í golfbúð-
inni Hole in One sem er í Bæjarlind 1,
Kópavogi.
Hvað kostar hún? Kylfan er ekki dýr og
kostar rétt tæplega tvö þúsund krónur.
DÓTAKASSINN
... fá feðginin Ingveldur Ásta
Björnsdóttir og Björn Ágúst Jóns-
son fyrir að útskrifast saman úr
Háskólanum í Reykjavík með
bros á vör.
HRÓSIÐ
Lárétt:
1storka,6org,7jk,8rú,9lök,10lúr,
12snæ,14hik,15ar, 16ás,17úri,18
asna.
Lóðrétt:
1sorg,2trú,3og,4kjörnar, 5akk,9lús,
11viss,13ærin,14háa,17úa.
KK Kristján Kristjánsson, öðru nafni KK, ætlar að skemmta landsmönnum í sumar ásamt
KK-bandinu.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR