Fréttablaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR
Frjáls íbúðalán
4,15% verðtryggðir vextir
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar.
Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000
eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Engin sk
ilyrði
um önn
ur
bankav
iðskipti
100%veðsetningarhlutfall
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Áþriðjudag í liðinni viku rannskyndilega upp hér á baksíðu
sumardagur árið 2004. Eitt augnablik
taldi ég fullvíst að ég væri lögð af
stað í tímaflakk - stjórnlausa hopp-
ferð á milli liðinna daga. Nú gæti ég
leiðrétt fyrri mistök, haldið á fund
horfinna ættingja og vina, flakkað um
fortíðina að vild, komið við í gömlum
samtölum og kastað þar inn hnyttnum
tilsvörum sem mér komu til hugar
eftir á. Þetta var orðið spennandi, en
svo sneri ég blaðinu við og leit á for-
síðuna. Æ, hún var sem sagt glæný og
ekki árs gömul eins og baksíðan.
Tæknilegi mistakadraugurinn hafði
skellt einum árs gömlum pistli á bak-
síðu. Þannig var nú það og án þess að
bera ábyrgð á því bið ég lesendur vel-
virðingar - sér í lagi þó þá sem héldu
að þeir væru að leggja upp í ævin-
týralegt tímaflakk.
EN ÞETTA var nú bara alveg óvart,
eins og margir stubbar segja oft á
dag. Það er þó sitthvað óvart og vilj-
andi. Einhver lenti illa í þreskivél
slúðurblaðs á dögunum og kvartaði
undan tilbúningi. Má bjóða þér að
bera lygina til baka á forsíðu? sagði
blaðasnápurinn mjúkri röddu.
Þannig sá hann fram á enn frekari
skemmtilegheit upp úr sama potti
enda má lengi elda úr afgöngum
þótt hráefnið sé skemmt.
SKELEGG FRÖKEN sagðist ætla
að hreinsa fjölmiðlasál sína í sumar
og taka upp öflugar mengunarvarnir.
Hvernig þá? spurðu lagskonur. Nú, ég
ætla að gæta þess að kaupa ekkert
lesefni sem mengar sálina. Ha? hváðu
kerlingar. Jú, ég ætla hvorki að lesa
Slúðrað og slefað né Kjaftað og
kryddað og þaðan af síður Klipið og
klínt. Ég ætla að neita mér um mikil-
vægar upplýsingar dagblaðsins Dellu
og vitleysu og velja ofan í mig vand-
aðar upplýsingar. Ég mun bara lesa
dulítið af blöðum og góðum bókum og
þar við situr. Sem snöggvast stökk ég
í huganum aftur í tímann.
Í SUMARBÚSTAÐAFERÐUM
sjöunda áratugarins var eitt og annað
í farteskinu. Þá gripu spennufíklarnir
með sér Sannar sögur og Sérstæð
sakamál sem virkuðu svipað og hand-
rukkaraævintýri nútímans. Vikan fór
í veskið hjá mömmu með framhalds-
sögu og frægu fólki. Afinn var með
Úrval í frakkavasanum og amman
hafði með sér Alt for damerne.
Skyndilesefnið var kannski ekkert
merkilegra þótt flakkað sé aftur til
fortíðar- bara ögn mildara í minning-
unni.
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Tímaflakk