Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
HEIMSÓKN Dr. Tan Sun Chen, utan-
ríkisráðherra Taívans, kom hing-
að til lands í gær. Kínverskum
embættismönnum gremst heim-
sóknin en íslensk stjórnvöld
ítreka að ráðherrann sé hér ein-
ungis í einkaerindum
Tan kom til landsins síðdegis í
gær frá Noregi en strax við kom-
una til landsins þusti hann upp í
bifreið með dökklituðum glerjum
sem ekið var á brott í snarhasti.
Að sögn kunnugra er ráðherr-
ann hér að kynna sér land og þjóð
og ætlar hann að hitta íslenska
viðskipta- og skólamenn. Hann fer
héðan á morgun.
Íslenska ríkisstjórnin hefur
engan viðbúnað vegna heimsókn-
arinnar og engin áform eru um að
Tan hitti íslenska ráðamenn.
„Þarna er um hreinræktaða einka-
heimsókn að ræða sem ekki snert-
ir á neinn máta íslensk stjórn-
völd,“ segir Gunnar Snorri Gunn-
arsson, ráðuneytisstjóri í utanrík-
isráðuneytinu.
Grunnt er á því góða með ríkis-
stjórnum Kína og Taívan og því
hafa starfsmenn kínverska sendi-
ráðsins tjáð yfirvöldum andstöðu
sína við heimsóknina. „Þeir hafa
lýst yfir vissum áhyggjum af
þessu og hvaða áhrif þetta gæti
haft,“ segir Gunnar Snorri. Hann
kvaðst hins vegar hafa ítrekað að
Íslendingar viðurkenndu aðeins
eitt Kína. „Samskipti Íslands og
Kína eru svo góð og vinsamleg og
hafa verið í svo ágætum farvegi
að ég hef fulla trú á að þeir skilji
að þetta er ekki illa meint.“
Kínverska sendiráðið vildi ekki
tjá sig um málið þegar eftir því
var leitað í gær. -shg
SKÚRIR Á VÍÐ OG DREIF, síst þó
norðan til á landinu þar sem rofað gæti
nokkuð til. Hlýtt í veðri og hiti 12-18 stig,
hlýjast norðan til á landinu. VEÐUR 4
FÖSTUDAGUR
1. júlí 2005 - 175. tölublað – 5. árgangur
15-70%
Afsláttur
ÚTSALA
Ónýtar siðareglur?
Vissulega þarf að endurskoða ýmislegt
í siðareglum Blaðamannafélagsins,
segir Birgir Guðmundsson. Það breytir
samt ekki þeirri grundvallar-
staðreynd að það er á
ábyrgð blaðamanna sjálfra
og þeirra sem kaupa
fjölmiðlaefni að
ákveða á hverjum
tíma hvar markalín-
an liggur.
UMRÆÐAN 22
FH kann ekki að tapa
Eftir að hafa lokið fyrri umferð
Landsbankadeildar karla í fótbolta eru
FH-ingar ennþá með fullt
hús stiga. Í gær voru það
Framarar sem voru
fórnarlamb
Hafnfirðinga.
Valsmenn fylgja
þeim eins og
skugginn en þeir
unnu góðan útisigur
á botnliði Þróttar.
ÍÞRÓTTIR 32
Grét af geðshræringu
Hin árlega skeggvaxtar-
keppni sem kennd er
við sjálfan Tom
Selleck var haldin á
Sirkus á miðvikudag-
inn. Þar báru menn
saman skeggrætur
sínar og kepptust við
að glenna efri vörina
í átt að dómurum.
UNGA FÓLKIÐ 44
VEÐRIÐ Í DAG
500 kr. afsláttur fyrir Námufélaga Landsbankans
Fyrstu Live 8 tónleikarnir:
Áttalíf í
Reykjavík
TÓNLEIKAR Klukkan 20:30 í kvöld
hefjast fyrstu Live 8-tónleikarnir
í Hljómskálagarðinum en þeir
standa yfir til klukkan ellefu í
kvöld. Það er hópur tónlistar-
manna undir nafninu Áttalíf
ásamt fyrrum fréttahauknum
Árna Snævarr sem standa að
þessum viðburði. Með þessu vilja
þeir lýsa yfir stuðningi við Live 8-
hópinn, sem vill meðal annars láta
fella niður skuldir fátækustu
þjóða heims.
Sjá síðu 47
SNJÓLAUG BENEDIKTSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● matur ● tilboð
▲
tíska tíðarandinn heilsa stjörnuspá tónlist pistlar matur
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
1.
júl
í –
7.
júl
í
me
ð s
ínu
ne
fi
&
M
ar
ía
M
ar
ka
n
» N
ÖF
N
ÞE
IR
RA
LI
FA
Ste
fán
Ís
lan
di Nöfn fleirra lifa
● Skálholtshátíð ● sundföt
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
MARÍA MARKAN OG STEFÁN ÍSLANDI:
MAHMOUD AHMADINEJAD Bandaríkjafor-
seti tekur ásakanir um að hann hafi tekið
þátt í gíslatöku fyrir aldarfjórðungi mjög al-
varlega.
Nýr forseti Írans:
Gruna›ur um
gíslatökur
WASHINGTON, AP Bandaríkjamenn,
sem haldið var í sendiráði sínu í
Teheran í 444 daga fyrir um aldar-
fjórðungi síðan, staðhæfa að ný-
kjörinn forseti Írans, Mahmoud
Ahmadinejad, sé einn gíslatöku-
mannanna. George W. Bush
Bandaríkjaforseti sagði í gær að
hann tæki þessarar ásakanir al-
varlega og þær vektu upp margar
spurningar.
Ahmadinejad var meðlimur í
stúdentahreyfingunni sem hertók
sendiráðið 4. nóvember 1979 til
þess að knýja fram framsal
Íranskeisara sem Bandaríkja-
menn höfðu skotið skjólshúsi yfir
eftir klerkabyltinguna sama ár.
Talsmaður hans sagði hins vegar í
gær að Ahmadinejad hefði sjálfur
lagst gegn gíslatökunum. ■
Me› grænar ORA
baunir í Boston
Utanríkisráðherra Taívan í leyniheimsókn:
Íslensk stjórnvöld neita tengslum
M
YN
D
/A
TL
I M
ÁR
G
YL
FA
SO
N
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R
Í SKJÓLI EIGINKONUNNAR Tan Sun Chen vildi augljóslega að koma sín vekti litla athygli því hann faldi sig á bak við eiginkonu sína þegar
reynt var að taka af honum mynd.
STJÓRNMÁL Auknar líkur eru á að
störfum viðræðunefndar flokka
R-listans ljúki með því að listinn
verði leystur upp, segir heim-
ildarmaður Fréttablaðsins úr röð-
um Vinstri grænna. Það er
ágreiningur Vinstri grænna og
Samfylkingar um fjölda fulltrúa
hvers flokks á listanum sem gæti
riðið R-listanum að fullu. Sá
ágreiningur byggist á því að Sam-
fylkingin vill fá fjóra til fimm
borgarfulltrúa eða láta kjósa inn
á listann í opnu prófkjöri meðan
Vinstri grænir vilja tryggja jafna
aðkomu flokkanna.
Heimildarmaður blaðsins
segir enn fremur að greina megi
á mörgum Samfylkingarmönn-
um að þeir líti á Vinstri græna
sem olnbogabarn sem gott væri
að losa sig við eftir að þeir
reyndust Samfylkingunni erfið-
ur ljár í þúfu, bæði þegar Þórólf-
ur Árnason sagði af sér sem
borgarstjóri og í Landsvirkjun-
armálinu.
Sverrir Jakobsson, varamað-
ur Vinstri grænna í viðræðu-
nefnd um R-listann, segir að ef
ekki náist sátt um málið muni
flokkarnir bjóða fram hver í sínu
lagi en þó ganga bundnir til
kosninga. Annar heimildarmað-
ur Vinstri grænna telur hins
vegar litlar líkur á því að Sam-
fylkingin sjái hag sinn í því, þar
sem flokkurinn muni reyna að ná
fylgi frá hægri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
segir að aldrei hafi verið jafnt
hlutfall fulltrúa flokkanna á list-
anum heldur hafi alltaf verið lit-
ið til fylgis flokkanna enda sé
það lýðræðislegt. Hún segir
Samfylkinguna síður en svo líta
á VG sem olnbogabarn þótt
flokkarnir hafi tekist á sem sam-
starfsflokkar.
Eins og áður hefur komið
fram í Fréttablaðinu vilja Fram-
sóknarmenn hins vegar í lengstu
lög halda samstarfinu áfram og
hafa í þeirri viðleitni rætt það
lauslega að láta Orkuveituna í
hendur Vinstri grænum. Fulltrúi
Framsóknarflokksins í viðræðu-
nefndinni segist ekki kannast við
að fulltrúar samstarfsflokkanna
tveggja séu farnir að hóta því að
bjóða fram einir. Hann segir
Orkuveituna ekki heilagt vígi
Framsóknarmanna.
Viðræðunefndin kemur aftur
saman á mánudaginn.
- jse
Stefnir í upplausn
R-lista samstarfsins
Vi›ræ›unefnd glímir nú vi› ágreining Samfylkingar og Vinstri grænna sem
líklegur er til a› sprengja R-listasamstarfi›. Framsóknarmenn tilbúnir a› láta
Orkuveituna lausa til a› halda samstarfinu.