Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 1. júlí,
182. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.05 13.32 23.57
AKUREYRI 1.58 13.16 24.31
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Snjólaug Benediktsdóttir er í stuttu
fríi hér heima, en hún er búsett í
Boston. Það er þó ýmislegt séríslenskt
sem hún vill helst ekki vera án í út-
landinu.
„Ég tek alltaf með mér grænar ORA-baun-
ir, krydd frá Pottagaldri, íslenskt lamba-
læri og svo kjöt- og grillkrydd sem ég finn
ekki úti,“ segir Snjólaug og skellihlær.
Þó hún sé búsett í Ameríku, þar sem
hamborgararnir eru hvað mest djúsí, borð-
ar hún aldrei hamborgara. „Nei, hvorki þá
né kleinuhringina sem fólk virðist ótrúlega
fíkið í. Það skiptist greinilega í tvö horn
hversu meðvitað fólk er um mataræðið,
fjölmargir stunda líkamsrækt og borða
hollan mat en gríðarlega margir eru allt of
of feitir og mér finnst það sorglegast með
börnin. Það er mikið borðað af eftirréttum
og tertum í Boston.“
Snjólaug segir þó ýmislegt sem hún
myndi sakna frá útlandinu. „Það væru þá
þá helst steikurnar sem við fáum á uppá-
haldsveitingastaðnum okkar, Texas. Mér
skilst að Willie Nelson eigi eitthvað í þeirri
keðju, en þar er alltaf mikið stuð, sungið og
dansað við hvert tilefni og steikurnar engu
líkar. Svo fær maður fínan fisk í Boston, að
ógleymdum humri og hörpudiski sem þeir
kalla reyndar sjálfir fátækrafæði.“
Það sem hefur breyst í matargerð Snjó-
laugar í gegnum árin er notkun grænmetis,
en börnin hennar voru aldrei hrifin af því.
„Fyrir utan hvað það var dýrt,“ segir Snjó-
laug, sem nú notar grænmeti í flest mál.
„Ég eldaði líka alltaf fyrir fimm og er bara
nýhætt því þó við séum löngu orðin tvö.
Maður er ekkert nema vaninn.“
Annað sem hún segist myndu sakna sár-
lega er verðlagið. „Ég fæ alltaf áfall í stór-
mörkuðum hér heima, meira að segja í Bónus,
því verðmunurinn er svo gríðarlegur.“
Dódó gefur uppskrift að rækjurétti sem
er kallaður Rækjuréttur Dódóar. Upp-
skriftin er á bls. 3
edda@frettabladid.is
Grænar ORA-baunir í Boston
Polarn og Pyret í Kringlunni
hefur hafið útsölu á sínum vör-
um sem eru bæði barnaföt og
kvenfatnaður. Flestar flíkurnar
eru á 25-50% afslætti nema
hvað smáröndótti fatnaðurinn
lækkar um tíu af hundraði.
Meðal þess vinsælasta í Polarn
og Pyret er fatnaður fyrir barns-
hafandi konur, til dæmis ská-
bolir sem nú kosta aðeins
2.700 en voru áður á 3.900.
Húsgögn og smávara eru á
hásumarútsölunni í Ikea sem
stendur til 24. júlí. Þar eru yfir
1.000 vörutegundir á lækkuðu
verði. Í eldhúsið fást kollar,
stólar og stólsessur, í svefnher-
bergið, boxdýnur, kommóður,
koddaver og lök og í forstofuna
skó- og fatahillur svo nokkuð
sé nefnt. Þá er alls konar
smávara á útsölunni eins og
plaköt, rammar, púðar
og gardínustangir.
Dömufatnaður er
seldur á 40-70% af-
slætti á sumarútsölu
Cosmo sem bæði er
í Smáralind og
Kringlunni. Þar eru
yfirhafnir, pils, jakk-
ar, kjólar, töskur
og skart svo nokk-
uð sé nefnt og er allt á lækk-
uðu verði. Sem verðdæmi má
nefna svartan hnésíðan
bómullarkjól sem er rykktur í
mittið og er nú á 4.790 en
kostaði fyrir lækkun 7.990.
Snjólaug er nýhætt að elda fyrir fimm þó börnin séu löngu farin að heiman.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Pabbi er
skrýtinn! Ef ég
er með læti þá
skammar hann
mig og ef ég er
rólegur þá mælir
hann mig!
Litrík sumarútsala hjá Bernharð Laxdal
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
tilbod@frettabladid.is